Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Hvað skiptir máli???

20. janúar 2009 klukkan 16:34
Ferlega er maður fljótur að detta aftur í sama farið!!!!

Nú er námskeiðinu lokið........ og ég get skriðið aftur upp í rúm þegar börnin mín eru farin í skólann..... og ég geri það miskunnarlaust!!!

Ég átti date í morgunkaffi í morgun ..... fór samt upp í rúm aftur!!!! Hefði sko betur farið á fætur eins og ég hafði svo góð plön með í gær þegar ég fór að sofa........ ég ætlaði að vakna með börnunum, fara í sturtu, fara með bílinn í smurningu, fara með bílinn í skoðun og eigendaskipti, fara og kaupa strigaskó........... en öll þessi fínu plön urðu að engu þegar ég skreið uppí aftur!!! Hefði annars betur sleppt því ........ dreymdi þvílíkann ófögnuð ...... eina sem ég get virkilega sætt mig við er það að draumar sem maður dreymir svona árla morguns hafa enga merkingu!!!! ........ eða er það ekki????

Fór í gær og skoðaði íþróttaskó...... ALLIR skórnir í búðinni, sem pössuðu á mig í það minnsta, eru forljótir!!! ...... ég ætla sko ekki að láta sjá mig á hlaupabrettinu í ræktinni í svona ljótum skóm!!!! Þá er næstum því skárra að vera bara berfættur!!!! Veit ekki hvernig ég á að snúa mér í þessu máli...... verð kannski bara að fara í fleiri íþróttavöruverslanir........ það hljóta vera einhverjir skór þarna úti sem eru ekki forljótir og ég passa í!!!!

En ég fann þennan fína ísskáp í gær....... er að spá í að fara bara á eftir og kaupa hann!!!! Veit reyndar ekki hvernig í ósköpunum ég ætla að koma honum heim........ en það hlýtur að reddast!!!! Set hann þá bara í skottið á bílnum mínum ef ekki vill betur!!!! Kannski ég ætti að drífa mig í að fjárfesta í honum ...... svona áður en einhver annar nappar honum á undan mér!!!

Annars finnst mér alltaf skrítið að fara í Holtagarðana......... þar er svona svakalega fínt rúlluband sem færir mann á milli hæða...... veldur það alltaf frekar miklum trega hjá mér að nota það......... sérstaklega fyrst....... því þetta var það verkefni sem Ási minn var að vinna í á fullu þegar hann varð að hætta að vinna!!! Hann hafði pantað bandið inn og allt sem því fylgir....... ég fékk að fylgjast með framkvæmdunum...... bara við kvöldverðarborðið...... amstur dagsins!!!

Fljótlega eftir að hann var farinn frá mér opnaði í Holtagörðum....... eða þetta rennur dáldið í eitt fyrir mér........ en ég man það bara að ég fór fljótlega eftir að það var opnað og það höfðu verið pantaðar vitlausar innkaupakerrur!!!! Þannig að ekki var hægt að fara með kerrurnar á milli hæða þar sem hjólin á kerrunum pössuðu ekki við bandið!!! Hver svo sem ástæðan var man ég bara hvað það var furðulegt að geta ekki komið heim og sagt: "veistu bara hvað....... heldur þú ekki að það hafi verið pantaðar vitlausar kerrur!!!" og fá svo í framhaldi af því upplýsingar um hver hefði gert það.... var það Ási minn eða var það einhver annar??? Og svo að fá ekki að fylgja málinu eftir....... eins og fá ekki að vita hvernig málið var leyst........ það voru bara allt í einu komnar nýjar kerrur!!!!

Ekki það að mér komi það nokkurn skapaðan hlut við........ en bara svona daglegt amstur!!!

Einkennilegt hvernig hlutir eins og kerrur í Hagkaup geta allt í einu farið að skipta þig höfuðmáli!!!!

..... og þetta vekur alltaf upp ljúfsárar minningar...... þær eru ekki eins sárar í dag og fyrir ári síðan....... þá þurfti ég nú bara að taka á honum stóra mínum til að halda andlitinu..... ætli það verði nokkurntímann í lagi fyrir mig að fara á blessað rúllubandið í Holtagörðum????

Þannig að afrek dagsins eru engin......nema reglulega gott spjall í morgunkaffinu sem eiginlega varð að hádegiskaffi....... kannski ég ætti að taka til hérna heima hjá mér og ganga frá eftir partý helgarinnar!!! Er staðráðin í því að vera spök um næstu helgi!!!!

.......... kannski ég þvoi???
Frú Megabeib
dagny sylvia skrifar ...
 
ég myndi sleppa rúllubandinu og taka tröppurnar... það var einhver hér í Sdbg sem bjó á sönderskov sem sagði að tröppurnar skiptu höfuðmáli fyrir útlit rassins ;)
20. janúar 2009 klukkan 20:56
Guðrún Þorleifs skrifar ...
Mér finnst þú hafa afrekað miklu með því að fara í Holtagarða eftir að hafa lesið þessa frásögn!!!
Hlakka til að sjá þig í fyrramálið.
ha ha ha ... átt ekki færðilegan sjéns á að skríða upp í aftur með þessa tímasettningu ;)
Síjú
21. janúar 2009 klukkan 00:17
Jóna Á. GísladóttirÉg tek undir það að maður er ekki til stórræðanna þegar maður tekur snooze-inn á morgnanna sem iðullega breytist í Þyrnirósarsvefn. Nema draumarnir. Ef ég sef of lengi þá byrjar mig alltaf að dreyma svo mikla vitleysu... allt svo mikið vesen.. að ég vakna mikið þreyttari en fyrir Þyrnirósarsvefninn.

Það hlýtur að vera erfitt að rekast á minningar á hverju götuhorni en jafnframt svo óendanlega dýrmætt. Ég trúi því að með tímanum verði það bara óendanlega dýrmætt.

góðan dag til þín (þar sem þú sérð þetta væntanlega ekki fyrr en í fyrramálið... nema auðvitað að þú sért andvaka núna eftir allan svefninn í dag)
21. janúar 2009 klukkan 01:12
Stina skrifar ...
Kom við eins og svo oft áður :) Knus knús
21. janúar 2009 klukkan 09:38

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar