Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Sviti og tár......... eða bara mega sviti!!!!

21. janúar 2009 klukkan 17:26
Mikið er ég svakalega ábyggilega, ábyggileg!!!!

Var að koma úr ræktinni ........ sveitt og sæt!!!! Gleymdi semsagt heima: handklæði, sturtusápu, þurrum nærfötum!!!!

Fór því bara í úlpuna og fer bara í sturtu hérna heima!!! Þangað til verð ég sveitt og sæt!!!!

Annars fékk ég dásemdar hrós áðan....... í ræktinni...... hitti gamlan vin og hann sagði: "mikið svakalega líturðu vel út....... þú glóir!!!" ......... wów......... semsagt sveitt og sæt!!!!

Átti frekar erfitt með að sofna í gærkvöldi......... þrátt fyrir að hafa stútað eins og einni Ísfólksbók fyrir svefninn....... lá og hugsaði um allt milli himins og jarðar og fann enga eirð í að liggja þarna og láta svefninn ná tökum á mér!!!!

Ég var gjörsamlega búin að komast að því hvað ég ætlaði að blogga um í dag........ og að sjálfsögðu er ég búin að steingleima því!!!! Bara um leið  og svefninn sigraði held ég!!!!

Annars skil ég ekki hvað ég get svitnað hrikalega þegar ég er í ræktinni........ þetta getur ekki verið eðlilegt!!!!
Ég er varla farin af stað þegar ég er byrjuð að svitna......... og svo rennur bara af mér í stríðum straumum!!!! Mér finnst ég ALLS EKKI innbyrgða svona mikinn vökva ...... þannig að ég get ekki skilið hvaðan þetta kemur...... nema þetta sé fita sem er búin að umbreytast í vatn og spýtist út um svitaholurnar!!!! Það hljómar alls ekki illa!!!!
Frú Megabeib
Guðrún Þorleifs skrifar ...
Ha ha haaaa...
Þú ert æði! Er þessi sviti ekki bara kókið sem rennur beint út, því ekki fitnar þú af því. Það veit ég ;)
Ekki svitna ég svona þegar ég æfi, svo hallærislegt Muuuuuhhhhhhhhhhhhaaaaaaaaaaa
Farin á námskeið. Ekki í penu kvitti ;)
Knús og takk fyrir góða stund gullið mitt, þú glóir líka ósveitt ;)
Nú er ég farin.......
21. janúar 2009 klukkan 18:09
Júlla skrifar ...
 
Óggeeðsslllega ertu dugleg kona. Ég alveg dáist af þér, vildi að ég væri búin að rífa mig upp á rassgatinu og skella mér í ræktina, ætti að taka þig til fyrirmyndar og koma mér af stað. Keep up the good work!!!!
21. janúar 2009 klukkan 19:48
Jóna Á. Gísladóttirhvað gerist þá þegar fólk svitnar í sundi? Oj.. vil ekki hugsa um það einu sinni.

Sviti er góður. það er gott að svitna þegar maður er í ræktinni. Maður verður hreinn að innan. Eða það finnst mér allavega.

Það er ekki amalegt að fá svona gló-hrós. Til lukku með það. Þessi vinur hefur greinilega augun hjá sér og kann að koma hugsunum sínum í orð. Love it!!

Geðillskan náði aftur tökum á mér í kvöld. Úff.. þetta er ekki góð tilfinning.
21. janúar 2009 klukkan 23:15

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar