Laugardagur í ræktinni!!!!
Innan í hausnum á mér er allt á yfirsnúningi!!!!
Ég hugsa í hringi!!!!
Ferlega er þetta óþægilegt........ þá verð ég eitthvað svo ónóg sjálfri mér...... ætli það sé ekki skynsamlegt að setjast niður og vinna heimavinnuna mína úr námskeiðinu sem ég var á....... efa það ekki eina einustu sekúndu að það hjálpar!!!! Það er bara svo vont!!!
Ég sagði það....... ég hugsa í hringi!!!!
Vildi óska þess að mér liði ekki svona......... er eitthvað svo tætt!!!!
Undanfarnar vikur....... já jafnvel mánuði er ég búin að gera fullt af "grænseoverskridende" hlutum...... fara laaaaaaangt út fyrir það sem ég er vön að gera..... þrátt fyrir að halda mig í sama farinu eins og sofa fram að hádegi, þvo ekki þvott og nenna ekki að elda, þrífa eða taka til!!!!!
Ég sit og naga á mér neglurnar!!!
Ég hangi endalaust á netinu í leit að einhverju sem ég veit ekki hvað er!!!
Mér finnst gaman að dansa...... mér finnst alveg óhemju gaman að daðra!!!
Ég man eftir því að þegar við hjónin fórum saman út að dansa....... Ási dansaði nú ekki mikið......... sat heldur og kjaftaði og hafði auga með konunni sinni!!!! Kom svo og dansaði við mig þegar aðrir karlmenn á dansgólfinu fóru að gerast full nærgöngulir að hans mati!!!
Það var gott......... því þá gat ég daðrað alveg eins og vitleysingur...... vitandi það að það yrði aldrei neitt meira...... það var "save" ........ og ef einhver misskildi skilaboðin sem ég sendi frá mér og hélt að ég vildi eitthvað meira og ætlaði sér þá að sækja það........ kom Ási minn og bjargaði mér!!!!
Nú er ekki eins "save" að dansa og daðra......... nú hef ég ekki lengur Ása minn til að bjarga mér ef einhver misskilur skilaboðin!!!!!
Þetta er hættulegur leikur.......... en "grænseoverskridende" ........ og ég er búin að stunda dans og daður á fullu í hvert skipti sem ég hef farið út að dansa........ og þau eru ekki ófá skiptin!!!!
Gott að ég er farin að þekkja dyraverðina....... get notað þá sem "vara" Ása!!!!
Í kvöld ætla ég að vera spök og fara á tónleika!!! Það verður gaman!!!!
Búin að fara í ræktina í dag...... þar sem ég ætla ekki að fara og dansa í kvöld....... þá tók ég extra vel á því!!!!
Kannski ég taki til og þrífi hérna heima hjá mér....... ekki veitir af!!!!

Ég held þu þurfir að gefa þér sanngjarnan tíma til að naga neglurnar, ekki þvo þvottinn, ekki nenna að þrífa og ekki nenna að elda.
Daður er gott., hollt og hressandi. Svo framarlega sem maður skilgreini sig ekki út frá athyglinni sem það skilar manni.
Hvaða tónleika fórstu á í kvöld? (þú ert ýkt dugleg í ræktinni... hata þig fyrir það ;o)
Góða skemmtun á tónleikum. Ætlaði að bjóða þér í mat, reyni aftur þegar þú ert ekki upptekin. Ég er búin að fara í 3 búðir en finn hvergi dósaupptakara !!!
knús í krús
ég