Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Ísskápssagan endalausa!!! - Miðju hluti

09. febrúar 2009 klukkan 23:12
Ég sit í sófanum mínum í mestu makindum að spjalla við frænku mína um heima og geima........ þegar síminn hringir!!!

Það er lagerstjórinn hjá MAX - raftækjum ........ mikið varð ég glöð......... hélt í sakleysi mínu að hann væri að segja mér að ísskápurinn minn væri rétt á leiðinni kæmi innan hálftíma eða svo!!!!

Mikið vildi ég að það hefði verið raunin.......... en það virðist fátt vera að ganga mér í hag þessa mánuðina ....... svo að sjálfsögðu var það heldur ekki svo með blessaðan ísskápinn!!!!

Lagerstjórinn hringdi með þær fréttir handa mér að ísskápurinn sem ég hefði keypt deginum áður og hafði staðið svo penn á lagernum í Kauptúninu ............. var hreinlega ekki til!!!!!!

HAAAAA ekki til......... ég var nú ekki alveg að skilja þetta........... drengurinn sem hafði selt mér ísskápinn hafði hringt og tékkað á honum og ég stóð við hliðina á honum þegar honum var tjáð að ísskápurinn stæði þarna inni á lager í Kauptúninu!!!!

Já en hann var ekki til......... ég þusaði og tuðaði smá og hann var frekar pirraður lagerstjórinn á þessu skilningsleysi í mér......... þá bauð hann mér í góðmennsku sinni að ég gæti fengið sýningareintakið og 10 DVD spólur í sárabætur fyrir hinn ísskápinn!!!!

Já nei takk!!!! Vil engar SÁRABÆTUR!!!!! Ég vil fá ísskápinn sem ég borgaði fyrir í gær!!!!

Hann er ekki til......... en þú færð 10 DVD spólur í staðinn!!!!!

......... eru þetta eðlileg vinnubrögð........ ég bara spyr????

Ég hélt fast í það að ég vildi bara fá nýjan ísskáp..... þennan sem ég hafði keypt deginum áður.

 ........ langaði ekki rassgat í sýningareintakið........ fullt af fólki búið að handfjatla hann og opna og loka og káfa á honum........ vildi ekki sjá hann!!!! ....... og alls ekki fyrir sama verð og fyrir glænýja ísskápinn sem ég hafði keypt daginn áður beint úr kassanum!!!!! ..... þrátt fyrir þetta kostaboð um 10 DVD spólur!!!!! ......... er ekki í lagi með fólk???

Lagerstjórinn hjá MAX raftækjum hélt fast í það að ég gæti fengið sýningareintakið, án frekari afsláttar, það væri nú þegar búið að gefa svo mikinn afslátt af honum...... eða ég gæti látið kaupin ganga til baka......... sem ég vildi ALLS EKKI......... var búin með þennan ísskápsleiðangurs pakka!!!!

Ég gat ekki fengið ísskáp lánaðann þangað til ný sending kæmi - eftir mánuð - sem breyttist svo í að þessi ísskápur kæmi hreinlega ekki aftur!!!!

Ég snappaði!!!!!

Geta þetta talist eðlilegir viðskiptahættir????

Lagerstjórinn bauð mér að tala við verslunarstjórann....... ég afþakkaði það...... átti ekkert vantalað við hann!!!! Hann hefði þá bara getað hringt í mig ef það hefði verið eitthvað betra að ég hefði talað við verslunarstjórann!!!!

Ég var orðin frekar mikið æst og farin að hækka róminn ansi mikið ......... man ekki hvort ég var farin að kalla lagerstjórann illum nöfnum........ en veit það að ég marg sagði við hann að þetta væru undarlegir viðskiptahættir!!!

Á endanum gekkst ég inn á að tala við blessaðan verslunarstjórann....... hann hafði ekkert frekar til málanna að leggja!!!!

Hvernig í ósköpunum getur verslun selt mér ísskáp, hringt svo í mig næsta dag og sagt að hann sé ekki til en ég geti fengið lakari vöru og 10 DVD spólur í sárabætur!!!!

Hvernig í ósköpunum getur verslun hringt í viðskiptavin sinn og boðið honum tilboð sem viðskiptavinurinn hefur engan áhuga á....... en hefur þá ekkert annað að bjóða viðskiptavininum sem hann getur sætt sig við???

Hvernig í ósköpunum getur verslun hringt í viðskiptavin sinn og sagt honum að verslunin hafi gert mistök en viðskiptavinurinn verði að sætta sig við tilboðið sem verslunin býður honum ........ þó að viðskiptavinurinn vilji ekki sjá það???

Ég játa það hér og nú að ég var orðin fokill....... reifst og skammaðist....... hrópaði og kallaði.......... verslunarstjórinn hafði engin fleiri spil að spila nema jú eitt........ ég gat ekki fengið meiri afslátt á sýningareintakinu en ég gat fengið afslátt af einhverju öðru í versluninni!!!!

Þetta getur ekki verið eðlilegt!!!! EINHVERJU ÖÐRU Í VERSLUNINNI!!!!!

Ég kaupi glænýjan ísskáp!
Hann er ekki til, þrátt fyrir að ég hafi keypt hann!
Mér er boðið sýningareintakið og 10 DVD spólur, hvað átti ég að gera við spólurnar???? Raða þeim í ísskápinn???
Mér er boðið sýningareintakið og afsláttur af einhverju öðru í versluninni!!!! Hvað er að þessu liði??? Ég var að versla ísskáp....... og hafði ekki hugsað mér að kaupa sléttujárn eða ryksugu með afslætti!!!!

Blóðþrýstingurinn var kominn uppúr öllu valdi....... ég titraði........ mér var VERULEGA MISBOÐIÐ!!!!!

Ég var farin að öskra á verslunarstjórann!!!! Hann bað mig um að vera ekki að öskra á sig....... ég öskraði á hann að ég öskraði bara á hann ef mér sýndist svo.

......... það var þá sem hann skellti á mig!!!!!
Frú Megabeib
Margrét skrifar ...
 
sammála því að þau hefðu átt að gefa þér afslátt af sýningareintakinu en ég verð að segja að mér finnst ansi dónalegt af þér að vera öskra á starfsmennina þarna og vera dónaleg við þá sem eru kannski bara að fara eftir reglum sem þeim var sett...
og mér finnst þetta ekkert svo lélegt tilboð, geriru þér grein fyrir að 10 dvd myndir kosta ca. 20.000?
og ef þú varst ekki ánægð með þetta tilboð hefðiru bara geta sleppt þessu :) Allir geta gert mistök, algjör óþarfi að klikkast þó þú getir ekki stjórnað hvað þú færð.
10. febrúar 2009 klukkan 07:39
Olga skrifar ...
 
Linda Björk veldu þér bara annan ísskáp það eru fleiri ísskápar í sjónum....
10. febrúar 2009 klukkan 08:04
Álfheiður skrifar ...
 
Ég get alvag skilið að það hafi fokið í þig þetta eru lélegir viðskiptahættir og sama hvað rassgadas dvd dikarnir kosta það kallast ekki afslátttur að fá eitthvað sem maður hefur ekkert með að gera, gangi þér vel að eiga við þessa sauði í Max
10. febrúar 2009 klukkan 09:05
dagny sylvia skrifar ...
 
Róleg Linda róleg... ;)
Tilboðið er ömurlegt... DVD diskar... ertu unglingur eða??? Þvílíkur óþarfi...! myndi aldrei sætta mig við DVD... get nú ekki annað en hlegið... haha
Þetta er spurning um að vera "flexibel"... auðvitað gat verslunarstjórinn slegið meira af ísskápnum... þarf engin að segja mér að reglurnar séu svo strangar!
En róleg Linda, róleg ;)
Bara fá endurgreitt og versla annarsstaðar :)
10. febrúar 2009 klukkan 09:35
Elísa skrifar ...
 
Gastu ekki fegnið aðra tegund á sama verði og hin kostaði...bara þessi búin betri gæðum eins og klakavél ; )
10. febrúar 2009 klukkan 12:52
Anna aðalpæja skrifar ...
 
Já frú mín góð...... ég þekki þig og ég veit að þú ert með bein í nefinu !!! og ég veit líka að það þarf mikið til að þú verðir dónaleg ....... ég veit ekki hvað starfsmennirnir eru að væla...... komnir með þetta fína skemmtiatriði á árshátíð MAX !!!!!
Auðvitað átti lagerSTJ'ORINN að segja þér að hann myndi tala við næsta stjóra og hann við sinn þar til að það væri hægt að finna ásættanlega útkomu fyrir alla málsaðila.... Ég er kannski svo gamaldags að mér var kennt að góðir verslunarhættir væru að hafa viðskiptavinina ánægða, jú og einu sinni var sagt að viðskiptavinurinn hefði ALLTAF rétt fyrir sér....... hvort það gildir ekki lengur get ég sagt, enda er ég ekki með neytendamálin á hreinu.
Lækkandi blóðþrýstings kveðjur
Frá mér til þín :)
ps. bara svo ég spyrji : afhverju skrifar þú að þetta sé seinni hluti ...... það vantar restina á ísskápssvaðilfarirnar !!!!!
10. febrúar 2009 klukkan 15:18
Anna aðalpæja skrifar ...
 
úps ég sé það núna þú segir miðju hluti ...... mín kann ekki að lesa !!!!
10. febrúar 2009 klukkan 15:19
Alice skrifar ...
 
Det er dog utroligt! At sælge et køleskab som ikke er til. Ja, det burde jo ikke være muligt,.....................eller? Jeg var helt sikkert også blevet aldeles gal i skralden, bedt om mine penge og fundet en konkurrent. Efter sådan en ringe kundebetjening fortjener forretningen slet ikke at få mine penge;-/
10. febrúar 2009 klukkan 16:11
Heiða skrifar ...
 
Það er ekkert sem kemur mér á óvart með þessa verslun, þeir neituðu að taka til baka ónýta matvinnsluvél sem ég keypti einu sinni hjá þeim, sögðu að ég hefði átt að sjá gallannn áður en ég keypti vélina, ég versla aldtrei þarna aftur.
10. febrúar 2009 klukkan 17:26
Tinna skrifar ...
 
Dísess, heldurðu að þeir vinni í því að gera öðru fólki lífið leitt?
ÞAÐ GETA ALLIR GERT MISTÖK! Geta hafa verið tæknileg eða bara eitthvað misfarist, alveg róleg að snappa úr frekju og yfirgangi. Finnst þú mjög dónaleg og ættir helst að biðjast starfsmanna afsökunar..djöfulsins frekja í þér, eins og fólk geti ekki gert mistök, ertu kannski fullkomin og kannast ekki við þau?

Þau buðu þér bætur, 10 dvd myndir eru dýrar, flestar kosta um 2-3 þús. og ekki reyna að segja mér að þú horfir ekki á myndir!

FREKJA
YFIRGANGUR
FREKJA
YFIRGANGUR
FREKJA
YFIRGANGUR
FREKJA
YFIRGANGUR
FREKJA
YFIRGANGUR
FREKJA
YFIRGANGUR
FREKJA
YFIRGANGUR
FREKJA
YFIRGANGUR
FREKJA
10. febrúar 2009 klukkan 17:44
Fía skrifar ...
 
Vóó allt að verða vitlaust, bara komin inn á barnalandsumræðuna ! En ég lenti líka í ísskápsvandræðum, við keyptum ísskáp í Einari Farestveit og þurftum að bíða í 4 mánuði eftir honum, en þeir lánuðu okkur þó ísskáp á meðan ! Ég mundi fá endurgreitt og versla annarsstaðar ef að þeir geta ekki látið þig fá dýrari ísskáp á sama verði ! En gangi þér vel sama hvað þú gerir, kær kveðja, Fía.
10. febrúar 2009 klukkan 18:00
Darri skrifar ...
 
ég hefði skellt á þig hefði ég verið starfsmaðurinn sem þú talaðir við. finnst þú svo dónaleg að það er fáranlegt. sjálfur vinn ég í verslun og þeir sem eru með leiðindi fá bara þjónustu í stíl við það. þú keyptir ískáp sem var svo ekki til.. annaðhvort færðu endurgreitt eða velur annan og bergar eða færð borgaðan mismuninn.
11. febrúar 2009 klukkan 18:19
Kristin BTM skrifar ...
 
tek ofan fyrir þér Linda, láta ekki vaða yfir sig
ég er svo hneyksluð á þessum tveimur sem fannst þú dónaleg...hvað er að heima hjá þeim
þú ferð útí búð og kaupir ískáp og þá færðu ískáp - ósköp einfalt
það er á ábyrgð versluninnar að standa við það sem þeir selja - þú átt ekki að lenda í þessu rugli af því að verslunin er ekki með sitt á hreinu og hver í fjandanum langar í einhverja helv. DVD myndir í dag. Það er markaður á útleið...nokkuð viss að innan 10 ára verða ekki seldar DVD myndir lengur...
Húrra fyrir þér Linda - og hlustaðu ekkert á þessa þöngulhausa sem greinilega leggjast bara niður og láta traðka á sér.
13. febrúar 2009 klukkan 12:09
Jóna Á. GísladóttirJa hérna hér... kona fer í bloggfrí og allt verður vitlaust ;o)

Það fyrsta sem ég hnaut um í frásögninni þinni er sú staðreynd að LAGERSTJÓRINN hafi verið látinn hringja í þig???? Ég vinn við að selja flugfrakt til og frá landinu. Í loadingu verða stundum mistök. Mistök sem ég geri klárlega ekki heldur einhver sem vinnur við loadingu á vélarnar í Keflavík. Mistök gerast. En það þýðir ekki að fólkið í loadingu hringi í viðskiptavininn. Eða fólkið í vöruhúsinu. Það geri ég. Því ég er þjónustufulltrúi og ég seldi fraktina. Skilurðu mig? Það að lagerstjórinn hafi hringt í þig sýnir mér að MAX þótti þessi mistök ekkert til að hafa áhyggjur af. Með öðrum orðum, var skítsama hvernig þetta kæmi við þig.
Auðvitað áttir þú svo sem ekki að gerast orðljót en það veistu. En hei.. kommon við erum bara mannleg.
Það sem Darri skrifar er sláandi. Er svo komið fyrir aðilum í þjónustu að ef kúnninn fer í taugarnar á afgreiðslu-/þjónustuaðilanum, þá geri hann í því að veita þeim kúnna verri þjónustu??!!! Ekki er þá sá starfsmaður að gera fyrirtækinu sínu nokkurn einasta greiða.

Langar að þakka þér fyrir kveðjurnar til mín. Þótti afskaplega vænt um þær og bið þig að fyrirgefa að ég hafi ekki svarað. Ég held ég hafi fengið einhvers konar blogg-bráðaofnæmi. Ég held ég sé á batavegi.
15. febrúar 2009 klukkan 11:52

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar