Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Ísskápssagan endalausa!!! - Seinni hluti

10. febrúar 2009 klukkan 23:12

Ég var gjörsamlega orðlaus!!! ............ algerlega kjaftstopp........... stóð opinmynnt og horfði á símann .......... ætlaði bara ekki að trúa þessu........ gat það verið að VERSLUNARSTJÓRINN sjálfur hafi skellt á mig????

Mín fyrstu viðbrögð voru að hringja til baka í verslunina ......... og segja verslunarstjóranum til syndanna!!!!

En þar sem ég er nú orðin eldri en tvævetur, hefði eflaust gert það fyrir einhverjum árum síðan ...... þá vissi ég að það myndi ekki hafa neitt uppá sig!!! ....... ég var alltof reið og mér ALLTOF mikið misboðið til að það gæti leitt til neins ....... allavega ekki til góðs!!!!

Gerði ég mér fulla grein fyrir því að þetta var nánast það eina sem blessaður verslunarstjórinn gat gert í stöðunni........ ég var STJÖRNUVITLAUS!!!!! ...... engin leið að tjónka við mig þegar þarna var komið sögu!!!! Ég veit að ég var komin út fyrir öll velsæmismörk........ var farin að haga mér eins og krakki í sandkassa þar sem hann fær ekki gulu skófluna sem hann telur sína eign!!!! Grenjaði nánast af reiði, frekju, yfirgangi, ókurteisi og óhemjugangi!!! ........ ég hefði örugglega líka skellt á mig ef ég hefði verið í sporum verslunarstjórans!!!!

Um það bil 15 mínútum eftir að verslunarstjórinn skellti svona snyrtilega á mig, fékk ég sms!!!

"Skapurinn fannst i kauptuni, verdur sendur til thin a eftir."

Ég gat ekki annað en hlegið, enda farið að renna reiðin ........ dísús ........ senda manni sms!!! Að sjálfsögðu hafa þeir ekki undir neinum kringumstæðum þorað að hringja í mig!!!! Enda bandbrjáluð konan!!!!!

Ég beið spennt........ ísskápurinn minn var á leiðinni!!!!

Bílstjórinn hringdi...... hann hafði auðheyranlega heyrt af óhemjuganginum í frúnni....... allavega sagði hann að ég væri konan sem væri búin að gera allt vitlaust!!!!! ...... hann sagði að ísskápurinn minn væri á leiðinni til mín og væri væntanlegur innan hálftíma!!!

Aðstoðarbílstjórinn hringdi........ hann fann ekki inngagninn hjá mér!!! ......... skrítið........ hann var við rétt húsnúmer í vitlausri götu!!!!! ........ átti ég hreinlega ekkert að fá þennan blessaða ísskáp??? ........ hvað var í gangi????

Ísskápurinn MINN komst loksins á leiðarenda........ og alla leið inn á eldhúsgólf....... þar var hann settur niður við hliðina á hinum ísskápnum sem ég hafði kippt útúr innréttingunni eftir að ég fékk sms-ið!!!!

Ég var svo glöð........ svo ánægð........ svo hamingjusöm!!!!!

Ég byrjaði í snatri að taka umbúðirnar utan af nýja fína ísskápnum mínum!!!

Þá kemur í ljós ........... þessi svaka flotta, stóra skella í lakkinu ........ alveg inn í járn!!!! ....... og reyndar tvær aðrar mun minni aðeins neðar!!!!! Það var greinilegt af plastinu sem var utan um ísskápinn að hann hafði lent í hnjaski........ hvar veit ég ekki...... en það vantaði allavega stórt stykki í lakkið!!!!

Ef þessi rispa hefði nú kannski verið á hliðinni........ þá hefði ég bara haldið kjafti....... langaði ekkert sérlega mikið að hringja í MAX raftæki aftur!!!! En skellan var eins beint framan á hurðinni eins og hægt var!!!! Þetta er alveg ótrúlegt!!!! Ég hringdi í snatri í bílstjórann til að hann gæti séð þetta með eigin augum svo það færi ekkert á milli mála að ísskápurinn hefði komið svona til mín!!!!

Nú NEYDDIST ég til að hringja í MAX raftæki næsta dag!!!

Var ég komin á það að ég yrði líklegast bara að sætta mig við það að ég yrði að finna mér nýjan ísskáp einhversstaðar annarsstaðar ...... fá þennan endurgreiddan ........ það var allavega ekki hægt að tjónka neitt við verslunarstjórann........ og sýningareintakið ætlaði ég ekki að fá... þrátt fyrir 10 DVD spólurnar!!!!! Þeir gætu þá bara komið og náð í ísskápinn........
Hringdi í MAX og fékk að tala við rekstrarstjóra fyrirtækisins......... ætlaði sko ekki að tala við verslunarstjórann ...... hann hafði auðsjáanlega ekkert að segja í þessu fyrirtæki!!!

Loksins kom maður í símann hjá fyrirtækinu sem vissi að það sem á undan var gengið voru ekki alveg eðlilegir viðskiptahættir. Hann harmaði það að lagerstjórinn og verslunarstjórinn skildu ekki hafa talað við hann deginum áður!!!! Ég talaði við hann í smá stund, sagði honum mína hlið á málinu, sagði honum að mér þættu þetta undarlegir viðskiptahættir, sagði honum undan og ofan af samskiptum mínum og stjóranna tveggja!!!!

Hann tók fagmannlega á þessu. Sagðist finna lausn á málinu sem við gætum bæði sætt okkur við og láta annan mann hringja í mig til að klára málið!!!!

Það hringdi maður úr Kauptúninu. Bauð mér sýningareintakið sem hann var með ....... bíddu nú voru sýningareintökin allt í einu orðin tvö!!!!! ......... og 10.000.- króna afslátt af því!!!! Nú erum við að tala saman..... ÞETTA eru eðlilegir viðskiptahættir!!!!
Í millitíðinni kom reyndar upp sú hugmynd að það væri kannski bara hægt að skipta um hurð á mínum ísskáp...... þá fengi ég bara hálft sýningareintak!!!! Það var eitthvað flóknara í framkvæmd.... tæki jafnvel nokkra daga ........ en ef það væri það sem ég vildi..... þá gerðu þeir það að sjálfsögðu fyrir mig....... ef ég væri viss um að ég vildi ekki sýningareintakið!!! ....... ég hugsaði stíft........ vildi ekki eintakið í Holtagörðum ..... en hafði ekki séð þetta í Kauptúninu. Ákvað svo að ég myndi kíkja í Kauptúnið og ákveða mig þar á eftir!!!

Áður en ég komst í Kauptúnið til að kíkja á sýningareintakið þar þá hringdi síminn!!! Það var bílstjórinn!!! Hann hafði fundið ísskáp inni á lager í Holtagörðunum sem var í umbúðunum ennþá, hvort ég vildi ekki bara fá þann ísskáp!!!!

HALLÓ!!!!! HVAÐ ER Í GANGI!!!! Ísskáparnir allt í einu orðnir 4!!!! ...... sem daginn áður var bara eitt sýningareintak sem ég vildi ekki!!!! ....... nei hinir skáparnir voru ekki inni í kerfinu, bla bla bla!!!! ....... ég þáði að sjálfsögðu þetta góða boð bílstjórans!!!!

Nú á ég glænýjan flottan ísskáp sem kælir smjörið þannig að það er næstum ekki hægt að smyrja því og kókið verður að ískrapi......... alveg dásamlegt!!!!

Frú Megabeib
Guðrún Þorleifs skrifar ...
Ok. Þér finnst sem sagt kalt kók betra en vogt. Ég skil ;)
11. febrúar 2009 klukkan 04:20
El'isa Henn'y skrifar ...
 
til hamingju með nýja ísskápinn. Það kemur alltaf upp villa hjá mér í fyrsta...þegar ég er að samþykkja þessi komment...frekar leiðinlegt..
11. febrúar 2009 klukkan 07:46
Alice skrifar ...
 
Hold op for en virkelig hverdagshistorie. Hvad der nu undrer mig mest er ikke din vrede men snarere hvordan situationen er en ganske anden alt efter hvem du talte med. hmmm....... det er tydeligvis ikke alle der har samme ideer om hvad der er fornuftig forretningsgang og kundeservice.
11. febrúar 2009 klukkan 07:50
Maja skrifar ...
Þetta er eins og í spennumynd!
Mikið er gaman að lesa það sem þú skrifar, þú ættir nú bara að leggja þetta fyrir þig (skriftir þ.e.a.s)
Kærar kveðjur úr Grindavík
11. febrúar 2009 klukkan 09:44
Begga Bauni skrifar ...
Það er aldeilis að þú hefur þurft að hafa fyrir þessum ísskápskaupum Linda mín, en það hafðist allt á endanum.
Njóttu nú kalda kóksins (sem ég hélt bara að þú værir hætt að drekka því að þú ert alltaf í ræktinni) og vertu þolinmóð við smjörið þegar þú ert að reyna að smyrja því á brauðið ;o)
Kær kveðja, Begga
11. febrúar 2009 klukkan 11:29
Lynn skrifar ...
 
Til hamingju með nýja ískápinn!

Þú verður að setja mynd af gripnum í albúmið svo við fáum að sjá.

Kveðja
11. febrúar 2009 klukkan 17:23
Edda frænka skrifar ...
 
Til hamingju með ísskápinn ;-) .... hvað segir þú ertu ekki til í ræktina um "miðjar nætur" hehehe....
11. febrúar 2009 klukkan 21:04
dagny sylvia skrifar ...
 
greinilega ekki stjorn á málunum þarna í MAX. Minnsta málið að stela ísskápum án þess að það fattist... ;)
Er samt ekki enn að ná 10 DVD tilboðinu!!! það kostar nú bara hámark 450 dkr að leigja 10 DVD (nýjar). og hver nennir að safna DVD heima hjá sér... er semsagt ekki enn að ná þessu!!! held ég verði að fara inn á Barnaland og ath málið ;)
Til hamingju með ísskápinn og góða helgi
12. febrúar 2009 klukkan 10:14
Jóna Á. GísladóttirAkkúrat. Rekstrarstjóri. Manneskja sem kann að taka á málunum. Reyndar hefði verslunarstjóri átt að kunna það líka.

hehe ég get ímyndað mér hvernig þér varð við að sjá helvítis skelluna á skáphurðinni. Ég hefði sennilega lagst í gólfið og sparkað og barið, eins litlu krakkarnir gera þegar þeir eru orðnir úrvinda af þreytu.

Til hamingju með skápinn mín kæra. Njóttu vel.
15. febrúar 2009 klukkan 11:58
Jóna Árný skrifar ...
 
Vona að nýji ískápurinn virki ennþá!! Ekki mun ég fara í MAX næst þegar ég kem í bæinn, amk ekki eftir þessi vinnubrögð hjá þeim. You go girl (í ræktinni og öllu saman :) )
19. febrúar 2009 klukkan 12:47

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar