Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Meðvirk!!!

16. febrúar 2009 klukkan 12:03
......... ótrúlegt hvað ég get verið svakalega meðvirk........ nú er þetta nýja orðið sem er "inn" hjá mér þessa dagana!!!!

Það er hægt að vera meðvirkur á svo svakalega margan hátt.........

Ætli það að vera meðvirkur alki sé ekki það sem er þekktast........ ég er það ekki!!!

En ég er meðvirk í svo mörgu öðru.

Eins og það að í morgun þegar ég var á brettinu í ræktinni var þáttur á einum skjánum........ ótrúlegur þáttur... skil ekki hvernig fólk getur látið hafa sig út í allskonar vitleysu........  en það virðist vera hægt að hafa fólk út í ótrúlegustu vitleysur ......... bara fyrir peninga!!!!

...... það er hægt að hafa mig út í ótrúlegustu vitleysur ....... ég tala nú ekki um ef það er dans og daður í boði...... en ég held að það væri ekki hægt að hafa mig út í þessa vitleysu ..... þrátt fyrir alla peningana!!!!

....... nema hvað að þessi þáttur gengur út á að fara í gegnum einhverja hindrunarbraut....... skil ekki afhverju fólk gerir þetta........ það virðist enginn geta komist í gegnum blessaða brautina án þess að fara á kaf í leðjur, hrynja ofan í vatn og verða kýldur af einhverjum boxhönskum!!!! ......... en það virðist ekki vera neinn hörgull á þáttakendum!!!

Þar sem ég stend á brettinu og labba og hleyp til skiptis........ og horfi á þennan þátt........ þá verð ég að passa mig....... því að hvert skipti sem einhver dettur/kastast .......... ofan í vatnið eða leðjuna....... missi ég jafnvægið........ dett með þeim!!!!! ......... verð VERULEGA að passa mig!!!! Finn alveg að mér skrikar fótur og ég er við það að hrynja á brettinu!!!! ........ og það er sko ekkert vatn eða leðja til að grípa mig ef ég skildi falla!!!!

Þrátt fyrir að ég sé nú athyglissjúk......... þá hef ég ekki í huga að hrynja á blessuðu brettinu......... get ekki séð það fyrir mér að það væri neitt voðalega gordjöss......... og ég er dropp dedd gordjöss þessa dagana og þar af leiðandi gengur þetta eiginlega ekki upp!!!!

Af þessum orsökum þá reyni ég nú að beina sjónum mínum á einhvern annan skjá þegar þessi blessaði þáttur er kominn á skjáinn!!!! .......... en ég á erfitt með að láta vera....... finnst svo athyglisvert að fólk skuli láta hafa sig út í þessa vitleysu........ og ég er svo meðvirk að ég swinga til og frá þegar liðið hrynur!!!!

Annars væri það nú alveg til að kóróna það að ég fengi góða flugferð þarna á brettinu og bætti við nokkrum marblettum við þessa sem ég náði mér í um helgina!!!!

Man ekki eftir að hafa fengið einn svona stóran marblett .......... hvað þá svona marga minni á ótrúlegustu stöðum á einu kvöldi!!!!!
Frú Megabeib
Begga Bauni skrifar ...
hahahah... það er óhætt að segja að þú lifir þig inní sjónavarpsefnið...
En hvað varst þú eiginlega að gera um helgina??? Varstu kannski að taka þátt í upptökum á svona þætti og dast bæði í vatnið og leðjuna og fékkst nokkur högg frá boxhönskunum á leiðinni?
En farðu nú ekki að detta á brettinu, það er örugglega frekar vont
Kv. Begga
16. febrúar 2009 klukkan 12:09
Aðalpæjan sjálf skrifar ...
 
Ég er svona "hlaupabrettismeðvirk" líka ..... eða er það bara sjóveiki ? Riða til og frá og á erfitt með að halda jafnvægi ...... en ef þú ferð nú að taka upp á því að detta, skal ég lána þér video-upptökuvél, svo að þú getir kannski unnið einhvern pening í svona Fyndnum Myndum í Sjónvarpinu......... þú getur blurrað yfir þig ef þér finnst gorjösinn eitthvað minnka við byltuna !!!!!
Annars þá var þessi "meðvirkni" sérstaklega áberandi á árunum áður en ég varð hefðarfrú....... þá voru ófá skiptin sem pæjan sjálf fór í skíðaferðir á helstu skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins. Og í óteljandi skipti riðaði ég til falls þar ...... ekki i miðjum sallýbununum, ..... nei, standandi algjörlega kyrr !!!!! Geislanum og Múraranum til ómældrar kátínu ....... þau vildu nú meina að þetta væri athyglissýki í mér ..... það var víst alltaf einhver karlpeningur nálægt , humm, humm !!!
Knús í plús
Ég
ps. ertu blá eftir Pallaball?
16. febrúar 2009 klukkan 14:03
Alice skrifar ...
 
hmmm blå mærker. Jeg tror nu hvis du virkelig forsøger at huske tilbage til hin dag i Køben, hvor din tiltro til min nydelige damecykel gik i retningen af, at den nok kunne klare samme forhindringer som et "fjallahjól". Dét kom der skór et enormt blåt mærke ud af. Pas nu godt på dig selv, husk sport kan være nok så farligt;.)
16. febrúar 2009 klukkan 15:19
Aðalpæjan sjálf skrifar ...
 
Vá..... til hamingju með 3. sætið..... sko mína !!!
16. febrúar 2009 klukkan 17:48
Jóna Á. Gísladóttirhehe þetta er tegund meðvirkni sem ég hef aldrei heyrt um. Ég aftur á móti get hlegið að þessum þáttum út í eitt.. í svona 10 mínútur. Svo fæ ég nóg. En Sá Einhverfi hlær að þeim og þess vegna elska ég þættina.

Tell... about the marbletti
16. febrúar 2009 klukkan 22:45
Erla skrifar ...
Hæ skvísa!
Ert þetta sem sagt þú sem ert að gera allt kreisí í landi hinna brjáluðu húsmæðra aka Barnalandi. Nú á ég eftir að njósna um þig á netinu.......og í ræktinni....úúú skerí.
Kveðja, Erla ....
16. febrúar 2009 klukkan 23:15
dagny sylvia skrifar ...
 
hehe þú ert eins og litlu strákarnir í ps... vagga til og frá ;)
geturðu ekki slökkt á sjónvarpinu og horft á einhver búnt í staðin...? ef maður er nógu meðvirkur, verður maður fitt af að horfa á annað fitt fólk ;)
ég verð alltaf svo fitt þegar það er vm og em í handbólta og fótbolta... en þessá milli er ég bara sulta!
18. febrúar 2009 klukkan 10:18
dagny sylvia skrifar ...
 
hehe þú ert eins og litlu strákarnir í ps... vagga til og frá ;)
geturðu ekki slökkt á sjónvarpinu og horft á einhver búnt í staðin...? ef maður er nógu meðvirkur, verður maður fitt af að horfa á annað fitt fólk ;)
ég verð alltaf svo fitt þegar það er vm og em í handbólta og fótbolta... en þessá milli er ég bara sulta!
18. febrúar 2009 klukkan 10:18

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar