Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Bloggpása???

23. febrúar 2009 klukkan 08:27
Er að spá í að taka mér pásu frá bloggi......... mér líður þannig!!

Finnst erfitt að koma einhverju niður á blað.......... veit ekki hvað ég á að segja........ stroka út það sem ég er búin að skrifa.......... byrja uppá nýtt............ hætti við allt saman ................ finnst ég vera að blogga meira af skyldurækni en löngun........... verð að viðurkenna að stóra ísskápsmálið og viðbrögðin við því setti mig dáldið út af laginu!!! ....... kannski finn ég blogg-gírinn.......... kannski ekki!!!!

....... er búin að komast að því að ég er meðvirkari en ég hélt!!!! ......... er voðalega mikið í því hlutverki að gera hluti fyrir aðra afþví að annars verða þeir svo leiðir, daprir eða vonsviknir.

Er dáldið að æfa mig í að vera ekki svona meðvirk .......... er dáldið ánægð með að mér tókst það um helgina.......... stóð á mínu, þrátt fyrir að ég vissi að það myndi valda gífurlegum vonbrigðum!!!!

......... það var erfitt ........ en mér tókst það!!!
Frú Megabeib
Guðrún Þorleifs skrifar ...
 
Mikilvægt að misbjóða ekki sjáfum sér. Þú finnur þinn takkt í blogginu sem og öðru.

Kæmeknus
23. febrúar 2009 klukkan 08:36
Auður Þorgeirs skrifar ...
 
Kæra Linda, bloggaðu bara ef þig sjálfri langar það.. okkur finnst það voða gott því þá höfum við eitthvað að lesa:) en ekki gera það af skyldurækni við aðra.. þetta er þitt blogg og þitt líf.
Eigðu góðann dag!
23. febrúar 2009 klukkan 08:37
Dísa skrifar ...
 
Elsku Linda,
Ég skil þig svo vel. Ef þig langar ekki að blogga, þá ekki gera það:) Þó ég njóti þess mikið að lesa bloggið þitt þá er þð samt best þegar það kemur frá hjartanu og augljósri þörfinni til þess að tjá sig. Þú átt að blogga fyrir sjálfa þig ekki aðra. Ég sjálf er hætt að blogga í bili. Finn einfaldlega ekki þörfina og síðustu bloggin mín bera þess glögglega vitni. Vona samt að þú finnir þörfina...myndi sakna bloggsins þíns mikið.
Knús og kram
Dísa
23. febrúar 2009 klukkan 09:03
Ósk skrifar ...
 
já ég skil það vel ef þú vilt taka boggpásu. Engar smá athugasemdir við ísskápssöguna. En það er mjög gaman að lesa Blogin þín, góður penni...
23. febrúar 2009 klukkan 10:13
Guðný skrifar ...
 
Ég skil þig svo sem vel en ég myndi sakna þín. Finnst gaman að lesa bloggin þín og les þau reglulega.
Er hægt að sakna einhvers sem maður þekkir ekki?
23. febrúar 2009 klukkan 16:42
Alice skrifar ...
 
Kæreste Linda!
Ingen blogg, så høres vi forhåbentlig ved på "fjæsen"???
Forsvundet-på-et døgn-ikke-mere-sne-knus fra Alice
23. febrúar 2009 klukkan 18:47
Ragnheiður Ásta skrifar ...
 
Þú átt auðvitað að stjórna því sjálf, hvað, hvenær og hversu mikið þú bloggar.

Eins og það er nú yndislegt að lesa bloggið þitt þá held ég að við verðum bara að sætta okkur við að þú skrifar þegar andinn kemur yfir þig og annars ekki :)

knús úr Kebbló
23. febrúar 2009 klukkan 19:40
dagny sylvia skrifar ...
 
á eftir að sakna skrifanna þinna... bæði því þau eru góð og líka því að þú ert ein af örfáum sem ert virk.

ég fekk fyrst svoldið í magann og roðnaði örlítið fyrir þína hönd vegna ath.semdanna útaf ísskápsmálinu... hehe... pældu í hvernigþetta er á barnalandi... finnst þær náttl bara kostulegar núna... lengi lifi barnalandskonurnar ;) (veit annars einhver hvernig maður kemst þar inn?)

kær kvedja med von um endurkomu i bloggheiminn!!!
23. febrúar 2009 klukkan 21:32
Begga Bauni skrifar ...
Vona svo sannarlega að bloggþörfin komi yfir þig aftur, en þangað til fylgist ég bara með þér og ræktinni þinn á Facebook heheheh... Mér finnst þú geðveikt dugleg í ræktinni, endilega haltu því áfram því að það gerir þér sko örugglega mikið gott.
Knús, Begga
02. mars 2009 klukkan 07:51
Aðalpæjan sjálf skrifar ...
 
Sakna þín
knús og kossar
Anna 5
03. mars 2009 klukkan 12:23
Jóna Á. GísladóttirHalló!! hvar er athugasemdin sem ég skrifaði hér!! Fyrir mörgum mörgum dögum. Skilaði hún sér ekki? Skrifaði ég hana kannski einhvers staðar annars staðar...
04. mars 2009 klukkan 23:12
Guðrún Þorleifs skrifar ...
 
Boring...

Geðveíkt pirrandi að þú nennir ekki að blogga fyrir mig.

Já... ég segi ná bara það sem mér finnst ;)

Góða skemmtun á hittningum.

Bið að heilsa hrafninum :)
05. mars 2009 klukkan 20:16

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar