Aldurinn og tíminn er afstæður!!!!
13. mars 2009 klukkan 23:53
Njótið helgarinnar sem er komin eina ferðina enn!!!
Ég man að einusinni þegar ég var útivinnandi kona þá sagði einn sem mér fannst vera óbærilega aldraður, hefur örugglega í það minnsta verið orðinn 33 ára: "undarlegt með þessa vikur, það eru bara endalaust mánudagar og föstudagar og svo eru nokkrir kaffitímar á milli!!!"
Þá sagði annar vinnufélagi minn...... sem var MIKLU eldri en hinn...... nánast bara að komast á ellilaun...... í það minnsta orðinn 51: "já bíddu bara þangað til þér finnst lífið vera ekkert nema jól og páskar með sumarfríi inn á milli!!!!"
Get ekki sagt að ég hlakki til þess!!!! Þá tekur því nú ekki að taka niður jólaskrautið!!!!
Annars fannst mér athyglisvert þegar ég sá það í fréttunum að það eru 25 ár í þessari viku síðan Guðlaugur vann það stórafrek að synda sér til lífs!!!
Ég tók þessu að sjálfsögðu með stóískri ró unglingsins...... ég var 15 ára......... og fannst þetta vera þvílíkt fjaðrafok og endalaus fréttaflutningur......... yfir ekki neinu!!!
Ég man hvað ég var þreytt á þessari endalausu umræðu um þetta....... só....... hann synti einhvern helling......... só........ gerir maður það ekki ef maður getur synt?? só....... nokkrir kílómetrar.......... só....... var það ekki svona sirka út í ísbúð??? só........ ég meina get nú ekki sagt að mér þyki þetta neitt merkilegt....... og þurfa að brjóta ísinn í einhverju baðkeri til að fá að drekka..... só....... gat hann ekki bara beðið þangað til hann var kominn í eitthvað hús....... ég meina VÁ ....... þvílíkt drama!!!! Endalaust verið að tala um þennan gamla kall sem einn hafði komist lífs af!!! Só........ það var fullt af fólki sem eitt hafði komist lífs af!!! ........... hvað var þetta merkilegra en hvað annað????
Í dag horfi ég öðruvísi á málið.
Þegar ég fer í ræktina þá geng ég í það minnsta 6 kílómetra, helst meira, það tekur mig í það minnsta klukkutíma! Ég er oft við það að gefast upp, og veit að það er ekkert mál, ég þarf bara að stoppa bandið!!! Ekki gat Guðlaugur bara "stoppað bandið" því þá hefði hann hreinlega drukknað!!!!
Þegar ég fer í ræktina þá er ég með vatnsbrúsa með mér. Það er gott því ég þarf ekki annað en rétta út hendina og þá get ég fengið mér vatnssopa........ maður verður nefnilega þyrstur á svona púli!!!!
Greyið Guðlaugur synti 6 kílómetra og hafði engan vatnsbrúsa!!!! Ekki furða að hann skildi hafa hamast við að brjóta ísinn í blessuðu baðkarinu........ maður verður nefnilega ekkert minna þyrstur þegar maður púlar í vatni en á þurru landi!!!! ...... og ekki getur maður drukkið sjóinn!!!!!
Ég eiginlega hálf skammaðist mín fyrir að hafa ekki nennt að fylgjast með fréttunum á sínum tíma......... því án nokkurs vafa var þetta þrekvirki sem maðurinn - gamli kallinn hafði unnið!!!!
Það sem sló mig mest við þessa frétt var þó hversu gamall herra Guðlaugur hafði verið þegar hann synti sér til lífs!!!!
Þessi gamli kall............... var 22 ára!!!!

Frú Megabeib

Þegar ég í denn var að afgreiða í sjoppu, þá fékk ég oft nett taugaáfall, þegar ég var trekk í trekk kölluð KONA, ég var 16 !!!!!
Góða helgi dúllan mín
AR5