Eins gott..........
26. mars 2009 klukkan 20:46
.......... að maðurinn minn býr ekki lengur hérna hjá mér!!!! Hann væri sko nett pirraður á mér núna!!!
Ekki það að ég vildi ekki hafa hann hérna...... það veit sá sem allt veit að ég óska einskins heitar..... en get ekki varist því að hugsa þetta núna þegar ég geng hérna um íbúðina!!!!
Málið er það að ég hef þann leiðindar ávana að fara úr skónum mínum um allt hús!!! Sem sagt ekki þegar ég kem innúr dyrunum...... eða sko fer nú úr þeim þegar það er blautt úti eða skórnir eru löðrandi í snjó og annarri drullu...... veð ekki með það inn um alla íbúð........ en svona annars þá fer ég ekki úr skónum þegar ég kem inn.
Þegar ég fer í önnur hús, þá er ég nú kurteis stúlka, enda einstaklega vel upp alin....... og fer úr skónum þegar ég kem innúr dyrunum ........ því það á maður að gera....... eða allavega á Íslandinu góða.
Annars fer ég bara úr skónum þar sem það hentar mér á þeirri stundu sem það hentar mér að fara úr skónum!!! ..... og þar sem þetta er nú einu sinni heima hjá mér ........ þá læt ég það bara eftir mér........ og hef alltaf gert!!!
En þar sem maðurinn minn er ekki lengur til staðar til að annað hvort tuða yfir því að ég fari úr skónum útum allt hús og skilji þá þar eftir ......... eða hreinlega gangi frá þeim eftir mig..... því það gerði hann þessi elska, því þetta fór alveg óhemju mikið í taugarnar á honum............ þá eru skórnir mínir hérna útum ALLA íbúð!!!!
Svo á morgnana þegar ég er á leiðinni útúr dyrunum þá finn ég enga skó til að fara í og þarf að hlaupa útum allt til að leita að skónum, því ekki fer ég út skólaus!!!! ......... þeir geta verið undir eldhúsborðinu, inni á klósetti, inni í stofu, við tölvuna eða jafnvel inni í svefnherbergi!!!!!
....... held jafnvel að ég geri í því að skilja skóna mína eftir útum allt hús........ bara svona afþví að ég get það án þess að það sé tuðað í mér....... eða kannski leynd þrá eftir þessu tuði..... það gæti líka allt eins verið!!!! Því eins ótrúlega og það hljómar þá sakna ég þess!!!!
Þannig að mig vantar alveg nauðsynlega fleiri skó...... þar sem það er meira en nóg pláss í skóhillunni núna þegar þar eru næstum því engir skór lengur .........
......... helst hvít leðurstígvél með pinnahæl!!!!!

Frú Megabeib

mér líst vel á hvítu leðurstígvélin með pinnahælnum, en ætli þú þyrftir ekki að sofa í þeim......... bara svo að þú tínir þeim ekki líka !!!!!!!!!!
knúsogkiss for the megamiss