Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Góður dagur í dag!!!

31. mars 2009 klukkan 00:22
Fékk póst í dag......... frá Reykjavíkurborg.......... fyrst hugsaði ég með mér: "hvað er Reykjavíkurborg að senda mér póst?? .... örugglega eitthvað í sambandi við þetta Fríkortsdæmi eða eitthvað!!!!"

En nei ónei!!!!

Í bréfinu stóð orðrétt m.a. eftirfarandi:

"Umsóknir þínar um stuðningsfölskyldur hafa verið samþykktar, en ekki er búið að finna fjölskyldur til starfans."

Júhú!!!!! Bara GEÐVEIKT!!! Eitthvað að ganga upp!!!!

Settist niður með börnunum og sagði þeim frá þessu........ þeim fannst þetta frekar skrítið...... stuðnings-hvað??? Afhverju???? Til hvers????

Ég útskýrði málið eins vel og ég gat og þegar umræðum var lokið ........ og dramadrottningin dóttir mín búin að jafna sig á því að vera án móður sinnar HEILA helgi, einhverntíman í framtíðinni........ þá virtist mér á þeim að þau væru nú bara spennt fyrir þessari nýju upplifun.

Þá er það bara að finna þessar fjölskyldur, því þær væntanlega þurfa að vera tvær........ veit ekki meir....... mér finnst bara geðveikt að það sé búið að samþykkja þetta....... kannski get ég bara sjálf fundið fjölskyldu sem tekur að sér elsku börnin mín eina helgi í mánuði.......

....... svo ég geti farið að skipuleggja sumarbústaðaferðina.......... já ég veit......... eiginhagsmunaseggur!!!! Eða þannig líður mér nú samt dáldið........ en ég er samt dáldið með samviskubit yfir því að láta mér detta það í hug að senda börnin mín eitthvert út í bæ..... vond móðir ...... eins og ég geti ekki hugsað um börnin mín........ það eru fullt af mæðrum sem eru í mínum sporum sem geta sko alveg hugsað um börnin sín og þurfa enga stuðningsfjölskyldu....... aumingi ....... þessar hugsanir hendast um í hausnum á mér....... en ég veit það líka að við höfum öll gott af því að fá pásu frá hvort öðru........ allavega svona öðru hvoru!!!!

Fór líka í ræktina í dag........ enda veitti ekki af....... heil vika síðan síðast........ er sko ekki að gera sig!!!!

....... þannig að til að hafa enga afsökun lengur......... gerði ég mér lítið fyrir og keypti eitt stykki árskort!!!

......... og ég ætla að mæta...... því að öll sætin eru upptekin í klúbbnum "styrktaraðilar líkamsræktarstöðvanna"!!!!!
Frú Megabeib
dagny sylvia skrifar ...
 
frábært (og ótrúlegt) að þetta skuli hafa verið samþykkt... bjóst alls ekki við því. En til hamingju :) þetta ætti fólk í þinni aðstöðu að nýta sér mikið meira... líklega vita fæstir af þessu "tilboði". Vona að þu/borgin finnir "rigtig" góðar fjölskyldur sem börnin eiga eftir að fíla í ræmur... er það ekki annars svona sem maður segir í dag???
og það er ekkert annað að gera í stöðunni en að mæta í ræktina... ég fylli t.d. alveg sæti í klúbbnum "styrktaraðilar líkamsræktarstöðvanna"... get alveg sagt þér að það er alveg PAKKFULLT þar.
Svo áfram Linda í ræktinni... á öllum tímum sólarhringsins ;)
k.kv.
31. mars 2009 klukkan 08:36
Aðalpæjan sjálf skrifar ...
 
Vá, frábært að heyra, til lukku með þennan áfanga. Humm, já, þú ert náttúrlega "vond" móðir að vilja leggja rækt við sjálfa þig eina helgi í mánuði, svona til að hlaða "batteríin" fyrir hinar ÞRJÁR helgarnar........
Og hvað heldur þú að við Sindri minn litli, séum að fara að gera, núna á eftir !!!!!!!!!!!!

þú átt þetta skilið - NJÓTTU þess
knús í húsið þitt
31. mars 2009 klukkan 08:57
Nanna skrifar ...
 
Frábært og til hamingju, var sko ekki í vafa að þú myndir koma þessu í gegn.

Og já við skulum bara skella okkur í sumarbústað án barna hið fyrsta....veit um fullt að skemmtilegum hlutum sem við getum gert þar sem börn hafa ekkert gott af að verða vitni af.....eins og t.d. að klára slatta af rauðvíni, liggja í heitapottinum langt fram á morgun og borða nammi og snakk í morgunmat (sem er náttúrulega einhverntíman um hádegi).

Og frábært með ræktina, kannski við getum hist þar af og til, ég verð nefnilega að mæta minnst tvisvar í viku :-)

knús og kossar
Nanna
02. apríl 2009 klukkan 10:49
Jóna Á. GísladóttirTil hamingju til hamingju. Ertu búin að kanna í kringum þig? Stundum er það nebblega þannig að maður fer yfir lækinn til að sækja vatn, leitar langt yfir skammt, sér ekki bjálkann... nei þetta síðast á kannski ekki við. En kannski er einhver þér nálægur sem hefði áhuga á að taka stuðningsfjölskyldu hlutverkið að sér.

Öfunda þig af fyrirhugaðri sumarbústaðaferð.
Ég er byrjuð í ræktinni. Var ég búin að segja þér það kannski? Stefnan hjá mér er (auðvitað) að gera þetta að lífsstíl og því tek ég því rólega. 3x í viku er stefnan. Verður svo vonandi 4x í framtíðinni.
Það er verst hvað kílóin eru farin að elska mig og þyrpast að mér eins og mý að mykjuskán. Enda hef ég löngum þótt aðlaðandi kona.
02. apríl 2009 klukkan 22:51

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar