Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

18 ár!!!

05. apríl 2009 klukkan 19:38
Fjúff hvað tíminn er fljótur að líða!!!

Í dag eru 18 ár síðan við hjónin settum upp hringa......... skrítin tilhugsun....... ennþá skrítnara að ég skuli muna eftir þessu!!! ...... því það var sko ekki ég sem mundi eftir þessum degi, heldur var það maðurinn minn sem sá algerlega um að muna það!!!!!

Kannski hann hafi svindlað því besti vinur hans á einmitt afmæli í dag...... svo það er frekar auðvelt fyrir hann að muna það ......... en samt var það nú ekki planið.

Man að við ætluðum sko að setja upp hringa þann 4. apríl ...... þá gæti ég allavega munað það fjórða, fjórða........ en hringarnir voru ekki tilbúnir á réttum degi...... því ég vildi ómögulega fá einhverja hringa sem ekki voru sérstaklega búnir til fyrir okkur....... og þar af leiðandi vildi ég frekar bíða í einn dag til að fá réttu hringana!!!! ........ sem þýðir það að ég gat aldrei munað hvaða dag við settum þá svo upp!!!!!

...... er rétt að nota tímann á meðan boðskortin renna útúr prentaranum........ jú jú búin að búa þau til....... stefnan er sett á að koma þeim í póst á morgun........ ekki seinna vænna....... eins gott að hún svilkona mín tók fram fyrir hendurnar á mér og við settumst niður og skipulöggðum hvernig fermingarveislan hjá einkasyninum á að vera!!!!

.......... má ekkert vera að þessu........ er farin að skrifa nöfn og heimilisföng á boðskortin........
Frú Megabeib
Guðrún Þorleifs skrifar ...
 
Flott dagsettning ;)
Knús <3
05. apríl 2009 klukkan 19:44
Anna fimma skrifar ...
 
Til lukku með daginn, var að hugsa til þín, en þorði ekki að senda sms !!!!! minnug um afglöp mín síðast :(
Hafðu það gott mín kæra - frábært að heyra með boðskortin, gott að eiga góða að.
kveðja og knús
Anna panna
06. apríl 2009 klukkan 09:17
Jóna Á. Gísladóttirfimmti fjórði fimmti/fjórði 5-4 5/4 5.4 05.04
það er viss hrynjandi í þessu. Bæði sjónrænn og.. og... hvað heitir það: heyrn-vænn, eyrna-vænn, hljóð-rænn? Allavega... þú veist hvað ég meina.
Til hamingju með daginn í gær.
Eru boðskortin komin í póst?
06. apríl 2009 klukkan 18:35

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar