Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Stađur: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Stađur: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Stađur: On the Kleik

Ég

Páskaegg!!!

11. apríl 2009 klukkan 10:57
Páskaegg..... þetta er kannski ekki skrítin fyrirsögn í ljósi þess að það eru nú einusinni að koma páskar og páskadagurinn sjálfur er á morgun!!!! En..........

Fyrir ári síðan voru líka páskar!! Við litla fjölskyldan fórum og keyptum okkur páskaegg, eitt á mann nr. 4, keyptum meira að segja eitt handa Ása mínum líka, reyndar bara nr. 2, en páskaegg samt!!!

Svo fórum við á páskabingó í skólanum hjá Viktoríu. Þar vann hún páskaegg, en fékk náðarsamlegast að skipta því út fyrir Makkintoss dollu..... við vorum jú komin með páskaegg!!!

Við fórum líka á páskabingó hjá Oddfellow. Þar fara öll börnin heim með vinninga og að sjálfsögðu eru það páskaegg á páskabingói!!!!

Þannig að nú vorum við komin með 6 páskaegg og eina Makkintoss til að snæða yfir páskana. Fyrir utan það að okkur hafði verið sendur glaðningur frá Danmörkinni sem innihélt m.a. páskakanínur úr súkkulaði ásamt fleira góðgæti!!! Já og gott ef ég fékk ekki líka páskaegg í afmælisgjöf, þar sem ég átti nú afmæli á páskadag!!!

Til að gera langa sögu stutta þá náðum við að klára eitthvað af páskaeggjunum. Páskakanínurnar ásamt tveimur páskaeggjum, einu nr. 4 og öðru nr 2 og hálfri Makkintoss voru til leeeeengi!!!

Í einhverju tiltektarkastinu hjá frúnni, skellti hún páskakanínunum inn í skáp .......... þær eru þar ennþá!!!!
Í einhverju þynnkukastinu hjá frúnni, át hún litla páskaeggið....... en það var ekki fyrr en á þessu ári!!!!
Öðru hvoru var Makkintossdollan opnuð og uppúr henni týndir ætir molar...... hún kláraðist í gær!!!!
Páskaegg nr. 4 er ennþá uppi á skáp!!!!

Svo við fjölskyldan ákváðum að vera skynsöm og kaupa ekki páskaegg í ár. Við ætluðum að láta okkur duga þessi sem við vitum að við fáum hjá Oddfellow. Voru allir sáttir við það. Komum við heim af bingóinu sátt og sæl og stilltum páskaeggjunum upp við hliðina á hinu frá því í fyrra!

Alveg ótrúlegt, en það er ekki hægt að sjá hvort páskaeggið er frá 2008 og hvort er frá 2009!!! Nema þetta frá 2008 er orðið rykfallið!!! Hvað ætli það séu mörg páskaegg frá fyrri árum í umferð ár hvert???

Þá eru til á heimilinu 3 stk páskaegg nr.4 og allir ánægðir með það!!!

Þá fór frúin á spilakvöld. Var sigurvegari kvöldsins. Sigraði gjafakort í Smáralindina og........ jú jú páskaegg!!! Nr. 5!!!!! Það fékk stað uppi á skáp við hliðina á hinum 3 páskaeggjunum nr. 4.

Þegar frúin fór heim úr vinnunni á miðvikudaginn, var hún leyst út með páskaeggi!!! Nr. 5!!!!

Þannig að uppi á skáp hjá okkur eru tvö stk. páskaegg Nr. 5 og þrjú Nr. 4 ........ sem sagt FIMM páskaegg!!!

Væri ég alveg til í að gefa eitthvað af þessum páskaeggjum til einhverra sem ekki fá neitt páskaegg í ár!!! Og þá er ég ekki að tala um fullorðið fólk sem ekki tímir að kaupa sér páskaegg!!! Heldur til einhvers sem ekki hefur átt pening til að kaupa páskaegg, sérstaklega ef það eru börn sem eiga í hlut!!!

Þannig að ef þú veist um einhvern sem hefur þörf fyrir páskaeggin mín, endilega láttu mig vita svo ég geti gefið þau!!!!!

Vil miklu frekar að einhver börn/þurfandi fái að njóta þess að fá páskaegg frekar en ég þurfi að fara að þurrka af þeim!!!!
Frú Megabeib
Anna fimma skrifar ...
 
Heldur betur ofgnótt af eggjum á heimilinu .... ég veit ekki um neitt barn sem hefur ekki fengið egg, en ég læt þig vita.
en að hinu, ég fékk tvær mínútur til að tala svo að ræðan bíður betri tíma, en ég notaði vel mínúturnar tvær´

Góða nótt og gleðilegan Páskadag,
hugsa miiiiikið til ykkar.
12. apríl 2009 klukkan 00:38
Guđrún Ţorleifs skrifar ...
 
Páskaknús frá einni sem ætlar með 6 lítil páskaegg til USA á fimmtudaginn því dótturnni þar langar að gefa fjölskyldunni sinni þar EGG. Það eru víst bara kanínur í USA ;)
12. apríl 2009 klukkan 17:56
dagny sylvia skrifar ...
 
ég fékk ekkert og er þó barnaleg með eindæmum...
Börnin fengu sitthvort og gáfu mér bita, því þrátt fyrir að senda þær einar á páskabíngó með það fyrir markmiði að vinna eitt handa mér, var alltof góð mæting og fullt af gráðugu fólki sem vann páskaeggin frá börnunum mínum og mér...!
13. apríl 2009 klukkan 21:27
Jóna Á. Gísladóttirja hérna. Ég sé hér ađ kommentiđ mitt frá ţví í dag hefur ekki skilađ sér. Ég gleymi alltaf ţessum fjandans stađfesingartölum eđa orđum eđa hvađ ţađ nú er sem mađur ţarf ađ pikka inn til ađ festa komment.

Mig langar ađ vita hvort páskaeggin komust til einhverra sem ţurftu meira á ţeim ađ halda en ţiđ.
Svo sagđi ég eitthvađ ofsalega gáfulegt en man alls ekki hvađ ţađ var.
Knús til ţín og ţinnar familíu.
13. apríl 2009 klukkan 23:54

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar