Pælingar á sunnudagsmorgni!!!
19. apríl 2009 klukkan 10:56
Kannski er ég bara orðin óendanlega gömul!!!
Ég er vöknuð klukkan tíu á sunnudagsmorgni og get bara ekki sofið meira, ég var reyndar sofnuð fyrir miðnætti í gærkvöldi, því að ég var svo þreytt að ég gat ekki haldið augunum lengur opnum!!!
Eru þetta ekki klár merki um elli??? Mér líst enganveginn á það!!!
Svo eru börnin mín ennþá sofandi....... ég legg ekki meira á ykkur........ er ég þá ekki komin með þokkalega unglinga á heimilið??? ...... ég bara spyr??? ....... sem þýðir að ég hlýt að vera að verða nokkuð gömul..... ekki satt???
Man alltaf að ég hlakkaði svo til þegar ég yrði gömul og hætt að vinna, þá mætti ég gera það sem ég vildi, og sofa eins lengi og mér hentaði!!!!
Er algerlega að sjá fram á að þetta er ekki að gera sig...... er verulega farin að hræðast að ég geti ekki sofið eins mikið og mér hentar, einfaldlega sökum þess að ég þarf ekki að sofa!!!!
Annars er ég ekki að þola rúmið mitt! Eða æi... ég veit ekki hvernig á að útskýra þetta.... sko.... mér leiðist alveg óendanlega að fara ein upp í rúm....... þessvegna hangi ég oftar en ekki fram eftir öllu og finn mér eitthvað annað mun merkilegra að gera en fara í rúmið!!! Þrátt fyrir að ég svindli nú stundum og börnin mín, unglinarnir, sofi uppí hjá mér...... þá leiðist mér það oftast að fara í rúmið... EIN!!!
Man þegar Ási þurfti að fara eitthvað í burtu sökum vinnu eða náms og ég var skilin eftir ein heima...... þá kom ég mér einmitt aldrei í rúmið ....... var svo oftar en ekki vansvefta og ergileg þegar hann kom loksins heim til mín aftur!!! .......... og var þar af leiðandi alls ekki eins glöð eins og ég hefði verið ef ég hefði verið vel sofin!!! OOOoooohhhh ég er svo klikkuð!!!!
Nú er ég búin að rekast á annað vandamál!!!! Ég hef heldur engan áhuga á því að liggja í rúminu á morgnana ef það er enginn að kúra við!! ........ og þá er ég ekki að meina börnin!!!!
Mikið leiðis mér þetta leiðindar líf!!!!!
Kom öllum borðskortunum í póst....... gerði það á föstudaginn........ þau verða þá ekki borin út fyrr en á morgun, en það verður bara að hafa það!!!!
Annars er bara allt að verða klárt fyrir ferminguna hjá einkasyninum......... eða sko það er auðvitað allt orðið klárt fyrir ferminguna....... það er bara veislan sem frúin er að klikka á!!!
En lifi fyrir þetta séríslenska máltæki:
ÞETTA REDDAST ALLT SAMAN!!!

Frú Megabeib

En mér finnst að þú ættir að fá þér þinn ''einkavin'' til að tala við. Einn af þessum sem situr og hlustar og hefur hæfileika til að hjálpa þér í gegnum myrkrið. Þá er ég að meina geðlækni eða sálfræðing. Þetta tekur tíma elskan mín. Ég veit að það er engin huggun og ég veit að þú veist það. En ég segi það samt; þetta tekur tíma. Og ekki bíða með það of lengi að leita þér professional hjálpar.