Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Einn erfiður, en góður dagur að baki.

26. apríl 2009 klukkan 13:53
Er búin að skrifa hátt í hundrað og sjö færslur í hausnum á mér.
Vildi alveg geta sett þær allar hérna inn.
........ eða allavega þessar sem ég man!!!

Endalaust tímaleysi!!! Er þetta spurningin um forgangsröðun???

Fermingardagurinn var alveg yndislegur og hefði ekki getað verið betri frá upphafi til enda!!!
Segi það ekki að hann var alveg óhemju erfiður líka ...... einn sá allra erfiðasti í langan tíma...... en samt svoooo góður.

Mikið vildi ég að hann Ási minn hefði verið með okkur........ getað verið með mér til að sjá hvað strákurinn okkar er flottur og myndarlegur........ mikið var ég stolt móðir!!!

Að sjálfsögðu var hann flottasta fermingarbarnið........ því hverjum þykir alltaf sinn fugl fagur!!!

Ég veit alveg að Ási minn var með okkur, þó svo að hann hafi nú ekki verið svo sýnilegur, þá veit ég að hann var á staðnum, bæði í kirkjunni og hérna heima.

Honum leiddist aldrei veislur og mannamót......... hitta skemmtilegt fólk og fá gott að borða!!!

Ég spurði son okkar að því daginn fyrir ferminguna hvað hann hlakkaði mest til á fermingardaginn .......... og sagði ég við hann að hann ætti að vera alveg 100% hreinskilinn...... og hann er eins og móðir sín, kann ekki að ljúga ....... og hann svaraði: fá gott að borða!!!

Honum kippir í kynið þessari ellllllllsku!!!

Annars finnst mér alveg stórkostlegt hvað þeir feðgar eru líkir........ bæði í útliti og í töktum....... ég tala nú ekki um í sér, skapgerð og háttum......... það er jafnvel óþægilegt stundum!!!

Við áttum yndislega stund þegar gestirnir voru farnir og verð ég að viðurkenna það að ég hef ekki grátið svona mikið í laaaaangan tíma!!!! Hrikalega var þetta erfitt.......... en jafnframt gott og hreinsandi.

Ég á flottasta strák í heimi og er alveg rífandi stolt af honum.

Það eru ennþá til afgangar......... þó svo að ég hafi nú komið nokkrum þeirra í frysti....... þá eru samt ennþá til afgangar........ en þannig vildi ég líka hafa það......... frekar en að það væri ekki nóg!!!!

Dagurinn hefði aldrei gengið svona vel upp og allt í kringum hann ef ég væri ekki með svona stórkostlega gott fólk í kringum mig. Mikið er ég lánsöm og óendanlega þakklát fyrir það.

........ það eru líka ennþá til tvö páskaegg........ ætli ég verði ekki bara að geyma þau þangað til á næstu páskum!!!!!

....... get ég sett þau í frysti????
Frú Megabeib
Ótrúlega falleg færsla. Til hamingju með drenginn ykkar og daginn hans.
Knús frá mér.
26. apríl 2009 klukkan 18:43
Sigurða skrifar ...
 
Inniegar hamingjuóskir með fermingardrenginn, bestu kveðjur :O)
26. apríl 2009 klukkan 18:53
Þóra Sig. skrifar ...
 
Til hamingju með strákinn Linda mín,gott að þið áttuð góðan dag :)
Hilsen frá sumarlandi ;)
ps. Þú mátt skila til mömmu þinnar að ég er ekki búin að gleyma henni, er að bíða eftir öðrum varalitnum. Knus knus
26. apríl 2009 klukkan 22:05
Anna fimma skrifar ...
 
Elsku vinkonan mín og stoltasta móðir flottasta fermingardrengs í heimi ......... erfiðri lífsreynslu fylgja erfiðir dagar, en gott að þú gast grátið og átt hreinsandi stund með börnunum þínum. Það er hræðilega erfitt að lifa með sorginni, en bara svo að þú vitir þá finnst mér þið vera svakalega dugleg.
kær kveðja
Anna
27. apríl 2009 klukkan 11:11
Begga Bauni skrifar ...
Innilega til hamingju með flotta fermingarstrákinn þinn Linda!!! Frábært að dagurinn skyldi heppnast svona vel hjá ykkur.
Kærar kveðjur, Begga
27. apríl 2009 klukkan 14:26

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar