Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Flottasta land í heimi!!

27. apríl 2009 klukkan 19:55

Eftir að hafa eytt deginum í að skoða myndir frá Íslandi, af stöðum sem ég hef aldrei komið á, bara heyrt um, þá verð ég að segja það að Ísland HLÝTUR að vera eitt það fallegasta land í ÖLLUM heiminum!!!

Vá hvað það er fallegt!!!!

Allar andstæðurnar sem maður endalaust rekst á við hverja hæð og nánast hvern hól......... þetta er ekkert smá fallegt!!!

Eftir að hafa eytt deginum í Bláa Lóninu á Laugardaginn, er ekki vafi í mínum huga að það sé einn af áhugaverðari stöðum á Íslandi........ þrátt fyrir að það kosti eins og einn handlegg að fara þangað inn....... þá er það nú alveg þess virði....... bara eins gott að börnin þurftu ekki að borga!!! ......... reyndar ég ekki heldur, var á gestalista....... þetta er útaf nýju VIP stöðunni minni......... er á gestalista allsstaðar þar sem því er við komið!!!! Í Bónus, hjá Olís, í Ríkinu.......... já bara nefndu það ...... á gestalista!!!!

Nú er ég með markmið....... ég ætla að ferðast og skoða landið mitt í krók og kima, fjöll og dali ...... eins langt og jeppinn ber okkur.......

......... eða bara bíllinn MINNNNNN!!!!!

Frú Megabeib
Gunnar H skrifar ...
 
Á ég þá að fara að reyna að draga þig á fjöll með mér (það er að segja þegar ég nenni sjálfur).
28. apríl 2009 klukkan 08:41
dagny sylvia skrifar ...
 
klárlega það fallegasta í heimi... jafnast EKKERT á við það... allsstaðar rekst maður á bletti, skot og þúfur sem eru engu lík. Stelpurnar mínar voru hræddar þegar ég fór með þær í helgarferð á húsbíl eitt sumarið og toldi varla á veginum því ég var alltaf að horfa á FJÖLL... þær botnuðu ekkert í mér og höfðu augun á veginum fyrir mig ;)
28. apríl 2009 klukkan 11:54
Edda Holmberg skrifar ...
 
Ísland best í heimi ... :-)
28. apríl 2009 klukkan 12:56
Alice skrifar ...
 
fortæl lidt mere om den der VIP-status, det lyder ikke så tosset! Og må jeg tilføje, at det da også var på tide at få sådan en............... og velundt!!!!!!
28. apríl 2009 klukkan 13:22
Ég hef gert ansi lítið af því að ferðast um landið okkar. Og þekki það skammarlega illa. Skrítið... að vera kominn á þennan aldur... að skammast sín fyrir fávísi og vankunnáttu. Eitthvað sem ég gat bara hér áður fyrr yppt öxlum yfir, deplað kattaraugunum og sveiflað til ljósa hárinu og enginn tók eftir neinu. Eða það hélt ég. Kannski var það bara misskilningur. En ég allavega gaf dauðann og djöfulinn í það.

VIP hmmm... tell me more
28. apríl 2009 klukkan 21:08

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar