Þvo, þvoði,þvegið, þvugum???
29. apríl 2009 klukkan 21:10
Var svo þokkalega á leiðinni í ræktina............ hef ekki farið síðan í byrjun síðustu viku!!!!
Skaust niður í þvottahús til að ná í leikfimisfötin........... mundi greinilega að þau voru þar........ ég var reyndar líka búin að leita að þeim hér á hæðinni en fann þau ekki .......... svo í þvottahúsinu hlytu þau að vera!!!
Rámaði jafnframt í það að hafa hent þeim í vélina........ svo þau hlytu að vera á snúrunni ásamt hinum fötunum sem rykfalla þar í rólegheitunum!!!!
Er fyrir löngu búin að komast að því að það gerir ekkert til þó að þvotturinn sé sóttur beint á snúruna....... einn hlutur í einu ef maður þarf að nota hann!!! ...... hann krumpar þá ekki í stofusófanum í einni hrúgu á meðan!!!!
Skaust niður......... hrifsaði með mér nokkrar óhreinar flíkur ........ fyrst ég var nú einusinni á leiðinni þarna niður gat ég svo sem alveg hent í vélina í leiðinni!!!!
Þegar í þvottahúsið var komið skimaði ég í kringum mig...... allt eins og við var að búast, þurr þvottur á snúrunum, ef hann væri mikið þurrari væri hann eflaust í duftformi!!!!
Nokkrar tómar klemmur á víð og dreif þar sem þvottur hafði hangið sem nú var kominn í notkun, jafnvel á leiðinni í vélina aftur!!!!
Í fljótu bragði sá ég ekki íþróttafötin mín!!! Hmmmmm....... þetta var skrítið....... en þar sem örskimun útum augnkrókana gefur ekki alltaf bestu niðurstöðuna....... þá taldi ég fyrir víst að mér hefði yfirsést þau!!!
Með fullt fangið teygði ég mig í hurðina á þvottavélinni og opnaði hana....... gerði mig líklega til að henda inn þvottinum sem fyllti fang mitt!!!
............ inn í þvottavélina fóru þau þó ekki ..... því þar inni lágu íþróttafötin mín og steinþögðu!!!! ..... en ó mæ god hvað þau lyktuðu!!!!!
Þannig að það var ekki einn einasti séns á því að ég gæti farið í svo mikið sem aðra skálina á brjóstarhaldaranum sökum súrrar, nánast vikugamallar svitafýlu!!!!
Ég hafði sem sagt verið einstaklega ábyggileg kona og gert allt klárt til að þvo íþróttafötin mín ...... meira að segja sett þvottaefni í þar til gerð hólf!!! .......... bara gleymt að setja vélina af stað!!!!
Nú malar vélin í þvottahúsinu, og ég er að reyna að finna mér eitthvað annað uppbyggilegt að gera en fara í ræktina!!!!
Get ekki varist því að hugsa: "afhverju getur maðurinn minn ekki bara verið hérna til að þvo þvottinn!!!"
....... þá væri þetta þvottahúsalíf miklu einfaldara og ég væri í ræktinni núna!!!!

Frú Megabeib

knús í plús
AR