Maður spyr sig!
08. maí 2009 klukkan 21:03
Við mæðgur erum búnar að eyða síðustu, ja ætli það séu ekki tveimur og hálfu tímunum í að taka til í fataskápnum hjá einkadótturinni.
Þetta er búið að vera einstaklega áhugavert verkefni.
Hún á mikið magn af fötum sem hún notar ALDREI! Hún velur alltaf að fara í sömu fötin aftur og aftur. Held að þetta sé að einhverju leyti leti, en hentar mér í sjálfu sér ekkert illa. Minni þvottur fyrir vikið!
En það er samt ótrúlegt hvað það er mikið af einstæðum sokkum sem safnast saman í einni sokkaskúffu. Púff hvað ég er ekki að þora að fara í mína sokkaskúffu! En ætti kannski að gera það þar sem ég eiginlega get ekki lokað henni. Set bara sokkana sem ég nota alveg fremst og þá þarf ég bara rétt að skúbba henni fram og til baka eftir þörfum. Hef grun um að það liggi nokkur hundruð einstakir, einmana, vinalausir sokkar í skúffunni sem enginn vill tala við, nema kannski ruslatunnan!
Er búin að komast að því að þetta á líka við um fingravettlinga. Annar hluti parsins á það til að taka upp á þeim ósið að bregða sér eitthvað í burtu og lætur svo ekki sjá sig aftur! Þannig að hinn helmingurinn situr eftir með sárt ennið og framtíðin blasir við í ruslatunnunni.
Og hversu oft er það svo svoleiðis að þegar maður er búinn að henda þessum einstaklingi, sama hvort það er nú sokkur eða hanski, sem er búinn að þvælast um frá ómunatíð, að hinn helmingurinn dúkkar upp, skælbrosandi, að vísu ekki út að eyrum því þeir hafa ekki eyru! Skilja svo ekkert í því afhverju ÞEIR eru orðnir einstæðingar og hin óumflýjanlega ruslatunna tekur ómettandi við þeim!
Kannski hittast allir þessir einstæðingar svo í Sorpu, og leiða þar saman hesta sína aftur! Hver veit! Kannski hittist þar röndóttur sokkur og tekur saman við einn einlitan fjólubláan sokk eða jafnvel hanska! Maður er kannski ekki fordómafullur eða vandlátur þegar sokkur er kominn í Sorpu!
Kannski er þetta eins með mannfólkið? Hvar er þá Sorpa? Skemmtistaðir bæjarins?

Frú Megabeib

Þegar stórt er spurt, er oft fátt um svör ........... amk. hjá mér.
En á mínu heimili leystist þetta vandamál af sjálfu sér, miðsonurinn ákvað að það væri flottast að vera í ólíkum sokkum, þannig að þegar móðirin var búin að raða þeim samviskulega saman og hafa þá á vísum stað....... þá gerði hann það vísvitandi að tæta 2-3 pör í sundur til að fá nógu ólíka sokka fyrir daginn !!!!!!!
Svo má alltaf fjárfesta í einlitum sokkum og ganga alltaf í sama litnum ?
bara svona að pæla,
sokkakveðjur
A5