Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Maður spyr sig enn og aftur!!!

14. maí 2009 klukkan 18:53
Fjúff..........  talandi um öfgarnar í frúnni....

Man eftir einum 17. júní hér á mínum unglingsárum.

Að sjálfsögðu fór ég í bæinn ..... að degi til, vel að merkja ....... með vinkonum mínum........ það er að segja með vinkonum mínum!!!! Með foreldrunum lætur maður ekki sjá sig á þessum árum....... það er ekki til neitt hallærislegra.... eða það fannst mér í það minnsta þá!!!!!

Það var búið að skreyta stórt svið...... kannski hefur það ekki verið svo stórt........ en í minningunni var það heljarinnar stórt....... þrátt fyrir að ég væri þarna í kringum fimmtán-ish.......þá var það stórt...... og það var staðsett fyrir neðan styttuna þarna á Arnarhóli ....... mér er bara fyrirmunað að muna hvað blessaður maðurinn heitir sem styttan er af....... enda er það algert aukaatriði í þessari sögu!!!!

Allt sviðið var innrammað af blöðrum ........ alveg ferlega flott......... blöðrur í fánalitunum.

Af einhverri ástæðu þá átti að taka niður sviðið og færa það eða eitthvað fyrir kvölskemmtunina....... eða eitthvað......... verst að hún vinkona mín með ofurminnið skuli ekki vera hérna......þá kæmist þetta pottþétt rétt á prent!!! ....... svo það átti að farga blöðrunum!!!

Þetta voru rosalega flottar og stórar blöðrur ....... aaalveg ógeðslega flottar!!!

Fannst mér alveg ferlegt að það skildi verið að taka þessar blöðrur niður...... og spurði ég hvort ég gæti ekki fengið eins og eina eða tvær!!! Var það auðsótt mál...... því blöðrurnar voru hvort sem er á leiðinni að enda lífdaga sína.

Af einhverri ástæðu endaði ég með hálfan bogann sem hafði verið yfir sviðinu....... alveg svakalega hamingjusöm með allar þessar fínu blöðrur!!!

Þá var spurningin um að koma þeim heim!!!! Þar sem farartækið á þessum árum var strætól...... var farið heim með blöðrurnar í strætó!!!!

Skil enn þann dag í dag ekki afhverju strætóbílstjórinn hleypti mér inn í strætóinn...... því ég fyllti hálfan vagninn með blöðrunum mínum!!!!

Móðir mín var reyndar ekki alveg jafn jákvæð fyrir þessum blöðrum og strætóbílstjórinn ....... eða það hlýtur að vera því blöðrurnar fóru aldrei inn heima hjá mér!!!! Voru þær geymdar fyrir utan!!!!

En það var samt einstaklega hamingjusöm stúlka sem fór aftur af stað niður í bæ um kvöldið ........ með allar sínar blöðrur....... sem týndu lífinu ein af annarri á leiðinni ....... og endaði ég í bænum með engar blöðrur um kvöldið!!!

Ætli maður geti tekið einhverjar pillur við þessu????

Maður spyr sig?????
Frú Megabeib
Guðrún Þorleifs skrifar ...
 
S....ari ertu.
14. maí 2009 klukkan 19:24
Anna fimma skrifar ...
 
Ég skil nú ekki hvers vegna þú tókst nú ekki á loft ?????????
Var ég með í för ?????
Ég veit það ekki, en aftur veit ég hvað syttan heitir og hver átti afmæli þennan dag !!!!!!!!!!!!!!!!!!
Ef að við byggjum í Andabæ, þá væri lítið mál að fá pillur við þessu hjá Gergi Gírlausa ...........
15. maí 2009 klukkan 14:26
Anna Aðalpæja skrifar ...
Anna AðalpæjaHva !
er bara ekkert bloggað í blíðunni ?
19. maí 2009 klukkan 21:32

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar