Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

15 ár!!! Legg ekki meira á þig!!!!

28. maí 2009 klukkan 20:46
Fjúff hvað tíminn er fljótur að líða........ og þó.......... er búin að gera aaaaalveg helling á 15 árum!!!!

Til dæmis:

Eignast tvö börn.
Búa á 5 stöðum.
Læra tvö nám (segir maður þetta svona???) ....... eða ég er allavega búin að útskrifast úr tveimur námum!!!
Eignast fullt af nýjum vinum ......... tapa nokkrum!!!
Læra að TALA nýtt tungumál....... reiprennandi.
Hjóla nokkurhundruð kílómetra!
Ferðast til 9 landa.
Eiga 4 bíla........ en bara eitt hjól!!!
Elda matinn alltof oft.
Þvo þvottinn nokkrum sinnum............ oftar en nokkurn skildi gruna!!!!
Búa í tveimur löndum.
Fara á minnst 6 Damefrokosta ..... þar af tvo á Íslandi!!!

Líka margt sem ég er ekki búin að gera........ en ætla að taka næstu 15 árin í það!!!

Afhverju skildi ég nú velja daginn í dag til að rifja þetta upp???

Jú af því að fyrir 15 árum síðan gekk ég í heilagt hjónaband með Ásanum mínum!!!! ...... í fyrsta skipti!!!!

Ó MÆ GOD hvað ég var hamingjusöm!!!

Ég er alveg óendanlega þakklát fyrir minningarnar.......  það jafnast ekkert á við þær!!!!

........og jafnframt er ég alveg óendanlega þakklát fyrir að hafa fengið að upplifa þennan dag fyrir 15 árum síðan!!!!
Frú Megabeib
Anna fimma skrifar ...
 
Elsku hjartans krúsin mín

ég man þennan dag fyrir 15 árum .... man hvað þú varst hamingjusöm og falleg. Man líka hvað Ásinn þinn var stoltur af brúði sinni, man hvernig hann horfði á þig, svo ástfanginn.
Minningar eru dýrmætur og ómetanlegur fjársjóður sem hjálpa okkur á erfiðum stundum ....... þú ert heppin að eiga margar yndislegar minningar sem sefa söknuðinn sem þú upplifir.

En mikið vantar mig að hitta þig og spjalla ......
Farðu vel með þig mín kæra,
hugsa til þín
28. maí 2009 klukkan 22:42
Ósk Laufey skrifar ...
 
Yndislegur dagur fyrir 15 árum. Það vildi nefninlega svo skringilega til að ég var að taka til í geymslunni minni í dag og fann fullt af myndaalbúmum, og viti menn ég opnaði eitt og hvað var það annað en myndir frá brúðkaupsdegi ykkar, líka frá gæsapartýi ofl. ofl. Og þið voruð bara falleg............

Knús og kossar til þín mín kæra.....
28. maí 2009 klukkan 23:20
Olga skrifar ...
 
Man eftir þessum degi eins og hann hefði gerst í gær, gæsapartíiinu man ég ekki eins vel eftir .. jú það var alveg geðveikt gaman
29. maí 2009 klukkan 10:41
Guðrún Þorleifs skrifar ...
 
Knús
03. júní 2009 klukkan 12:50

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar