Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Pæling..... skæling........ fræling......... mæling.........

03. júní 2009 klukkan 22:43

Þá er þessi dagur að kveldi kominn........ wów hvað þetta er skáldlegt!!!!

Er algerlega með það á hreinu að ég ætti að vera skáld..... eða rithöfundur....... eða magadansmær!!!

Frétti það um daginn ......... eftir frekar undarlegar draumfarir....... þar sem ég fór til fróðrar konu til að segja mér hvað í veröldinni þessi draumur gæti táknað....... því ég trúi á drauma og tel að draumar eigi sér dýpri merkingu........ sérstaklega þegar þeir eru STÓR undarlegir og gefa enga merkingu!!!!

........ já frétti ég um daginn..... samkvæmt ráðningu draumsins....... að ég þyrfti að fara að velja mér hillu í lífinu........ væri sko alveg til í það......... veit bara ekki hvaða hilla það ætti að vera!!!

Á hún að vera efst, eða neðst eða með kanti eða án??? Á hún að vera stór eða lítil eða mjó eða breið???

Er gjörsamlega, algerlega týnd í þessum efnum!!!! ........ kannski ég ætti að leita mér hjálpar!!! ........ ætli ég þurfi að fara í hillubúð til þess???

Veit bara að ég þarf að velja mér hillu......... skilst að þá öðlist ég einhverja smá sálarró......... það væri dáldið gott...... verð að segja það!!!!

....... er aftur farin að naga neglurnar!!!! ........ þetta er ekki að gera sig........ er ekki alveg nógu gordjöss með nagaðar neglur!!!!

Frú Megabeib
Jóna Á. Gísladóttirhverskonar endemis vitleysa er þetta?! Daginn sem við finnum okkur hillu og hlömmum okkur niður á hana, þá held ég að við séum södd lífdaga. Ég meina það. Við eigum að sveifla okkur á milli hillna.. upp og niður, til hægri og til vinstri. Og til baka aftur. Það þarf að vera fjör í þessu manneskja.
03. júní 2009 klukkan 23:17
ELISA skrifar ...
 
Já hey fékkst þessa ofvirku konu til að brosa af góðu bloggi..ert svo góður penni.. i love it..
smile to you my darling.
mojn Elisa
03. júní 2009 klukkan 23:50
Alice skrifar ...
 
lommefilosofi for gør-det-selv-folk?
Håber sjæleroen kommer flyvende i en forrygende fart
04. júní 2009 klukkan 07:21
Anna fimma skrifar ...
 
Hilla - silla -- grilla---spilla---- frilla !!!!
Nei bölvað rugl er þetta hjá mér....... vildi bara segja þér að með hillu eða án hillu þá ertu frábær eins og þú ert, .... og ég elllllllska þig ofsa mikið.
04. júní 2009 klukkan 12:03
Olga skrifar ...
 
Þetta er auðvitað hausverkur okkar unga fólksins að ákveða hvað við ætlum að verða þegar við verðum stór!! Af hverju fylgir þetta ekki bara í manualnum sem kemur með við fæðingu?
04. júní 2009 klukkan 12:35
Guðrún Þorleifs skrifar ...
 
Pæling, ekki veit ég það sjálf... Held ég...
04. júní 2009 klukkan 20:12

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar