Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Er hægt að láta sér leiðast????

30. júní 2009 klukkan 12:09
Skil ekki hvernig unga fólkinu okkar í dag getur leiðst........ hvernig það hefur tíma til að leiðast!!!!

Það er nóg að gera hjá þeim........ ekki var þetta svona í mínu ungdæmi .......... wów hvað þetta virkar eins og ég sé orðin gömul........ en þ.að er ALLS EKKI raunin........ er ennþá bara 32!!!!

Ef börnin eru ekki þeim mun meira upptekin í íþróttum, þar sem engin meðalmennska er leyfileg........ helst að æfa 5 sinnum í viku, helst oftar ...... annars ertu ekki maður með mönnum!!!! Allir stefna á Ólympíuleikana ......... ekki spurning!!!! ...... þá eru þau upptekin við að leika sér í tölvunni, sjónvarpinu, símanum eða iPod-inum .......... eða hvað þetta nú allt saman heitir!!!!

Ég skil bara ekki hvernig hægt er að láta sér leiðast!!!!

Ég man það að þegar ég fór upp í rúm að sofa á kvöldin þegar ég var unglingur, þá var ég búin að bjóða fjölskyldunni góða nótt og fyrir löngu búin að kveðja vinina!!!!

Í dag þegar unglingarnir fara upp í rúm, þá bjóða þeir fjölskyldunni góða nótt og halda svo áfram að tala við vinina, á msn eða í sms!!!! ....... og eru jafnvel á chatti langt fram á nótt ....... og jafnvel bíða eftir því að foreldrarnir sofni svo þau geti laumað sér út til að hitta vinina!!!!

Skrítin tilhugsun!!!

Veit sko að ég hefði ekki verið barnanna best ef þessi tækni hefði verið til staðar þegar ég var unglingur.......... wów nú hljómar aftur eins og ég sé orðin ferlega gömul.... en ég er það hreint ekki........ ennþá bara 32!!!!

Ætla að finna mér hausverkjatöflur....... er frekar þreytt í augunum...... veit ekki hvort það er sökum sótthitans ........ eða útaf því að ég uppgötvaði heim iPods-leikjanna í gær!!!! Ekki mikið mál að vera veikur nú til dags....... og gjörsamlega útilokað að láta sér leiðast!!!!!
Frú Megabeib
Jóna Á. Gísladóttirtil hamingju með hið síendurtekna þrjátíuogtveggjaáraafmæli elskan mín. :o)
Er sótthitinn ekkert í rénun?
30. júní 2009 klukkan 13:35
Dísa skrifar ...
 
Sæl og blessuð

Ég einfaldlega varð að skrifa þér smá kveðju eftir að hafa lesið allt of mikið af blogginu þínu í dag. Og ég meina allt of mikið af því að það er bara búið að taka svo langan tíma ;) Ég datt inn á bloggið þitt fyrir algjöra tiljvilju og bara gat ekki slitið mig frá því vegna þess að saga þín einhvern veginn greip mig svo sterkt. Mér fannst líka á einhvern hátt táknrænt að ég deili fæðingardegi og ári með honum Ása þínum.

Mér finnst skína í gegnum skrif þín að þú syrgir enn og átt enn afar erfiðar stundir en mér finnst líka skína í gegn að þú ert sterk manneskja með húmor fyrir lífinu og sjálfri þér. Gangi þér sem allra best í lífinu og vonandi verða björtu stundirnar framundan fleiri en þær döpru.
01. júlí 2009 klukkan 19:24
Vigdís skrifar ...
 
Sæl skvís...ertu enn lasin elskan? Nú erum við mætt á klakann og Sonurinn ekkert búinn að hitta einkason þinn. Geta þeir ekki hist eitthvað í næstu viku. Ég sjálf hefði svo að sjálfögðu ekkert á móti því að hitta frúnna á bænum. Verðum að fara að redda því.

Knús og batnaðarkveðju
Sonderborgar Dísa.
03. júlí 2009 klukkan 09:56

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar