Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Fossvogur á móti Grafarvogi!!!!

05. júlí 2009 klukkan 19:07
Mikið hentar það mér alveg einstaklega illa að ég skuli vera í forsvari fyrir eitt stk. leiði!!!!!
Það henta mér líka alveg einstaklega illa að leiðið skuli vera ALLA leið uppi í Grafarvogi!!!!

Fyrst ég þarf að hafa aðalumsjón með eitt stk. leiði hefði mér fundist allt í lagi að það hefði bara verið í Fossvogskirkjugarðinum!!!! Það hefði hentað mér mun betur!!!!

Ekki það að ég sé alltaf í Fossvoginum......... en verð að segja að mér finnst nú mun einfaldara að gera mér ferð í Fossvoginn en alla leið upp í Grafarvog!!!!!

Því fátt veit ég leiðinlegra en illa hirt leiði........... þá finnst mér alltaf eins og þar hvíli einhver sem öllum var sama um og enginn nenni að hugsa um leiðið ....... því aðilinn hafi verið svo leiðinlegur í lifanda lífi að allir eru fegnir að hann skuli vera kominn undir græna torfu og komi þar af leiðandi ekki nálægt hinsta hvílustaðnum meira......... blessunarlega lausir við að þurfa ekki að hugsa, sjá eða tala við viðkomandi meira!!!

En það er alls ekki raunin með leiðið sem ég sé um!!! Ási minn var heittelllllllllskaður. Þess vegna finnst mér það ennþá leiðinlegra að það líti ekki vel og snyrtilega út!!!! Hann á þetta sko ekki skilið!!!!!

En þar sem leiðið er ekki í Fossvoginum .......... og ég þarf að sjá um það hvort sem mér líkar það betur eða ver.......... þá VERÐ ég að fara að rífa mig upp á rasshárunum og planta einhverjum fallegum sumarblómum þarna uppfrá!!!!

Fórum í bíltúr áðan til að kíkja á leiðið......... alltof langt síðan að við höfum farið þangað......... vissi ég að allir flottu túlipanarnir sem við settum niður væru löngu búnir og löngu kominn tími á að troða niður einhverjum fallegum sumarblómum.

En ég á góða að......... því að einhver hefur verið svo elskulegur að fjarlægja alla gömlu túlipanana........ einhver hefur líka verið svo elskulegur að stinga niður fána......... meira sá ég ekki úr þeirri fjarlægð sem við vorum í .......... því við fórum ekki útúr bílnum!!!!!

Er þetta í fyrsta skipti sem við förum ekki útúr bílnum þegar við komum upp í garð!!!! ......... gat ég bara ekki hugsað mér það......... garðurinn var fullur af fólki sem var annaðhvort í sunnudagsgöngutúr eða að hamast við að gera leiðin hjá ættingjum sínum falleg!!!! ......... gat ég ekki hugsað mér að fara út með börnin mín tvö og látið þau standa við eyðilegt leiðið hjá föður þeirra, þegar allt er í lit og blóma í kringum hann!!!! ....... láta fólkið í garðinum kannski horfa á okkur og kannski kvískra um hvað leiðið sé ekki fallegt eða illa hirt og aumingja börnin að það sé ekki nóg með að þau séu föðurlaus heldur eigi þau líka vonlausa móður sem geti ekki einu sinni haldið leiði föður þeirra fallegu!!!!!

Strax á morgun verður farið í það að kaupa litskrúðug blóm og þeim plantað huggulega á leiðið í Grafarvoginum!!!!! ....... þá þarf maður ekki að skammast sín lengur fyrir að koma þarna uppeftir!!!!!

Er alveg 100% sannfærð um að ef leiðið væri í Fossvoginum væru pottþétt komin sumarblóm á það!!!!! ....... eða það er allavega það sem ég tel mér trú um!!!!
Frú Megabeib
Guðrún Þorleifs skrifar ...
 
Sannfærð!!!
Á skjánum mínum dúkka oft upp myndir af leiðum og þau eru mjög litrík, sumar sem vetur enda staðsett í Fossvoginu. Stundum koma upp myndir af leiðum sem við eigum upp í Landsveit, hryllilega litlaust og vonlaust að gera fallegt þar. Svo koma myndiir af leiðum úr Christinaskirkjugarði og það eru flottar myndir! Á nú ekki myndir úr flierri kirkjugörðum . . .
05. júlí 2009 klukkan 21:23
Magga "fimma" skrifar ...
 
Það er gott að kíkja í Grafarvoginn og koma svo við í kaffi !!!
06. júlí 2009 klukkan 08:37
Anna fimma skrifar ...
 
Nú eða fá sér örlítið lengri bíltúr og kíkja í kaffi....... tja eða kók !!!!!

En elsku besta Frú Megabeib........ það er ekki hollt að stunda svona sjálfsásökun endalaust, það gerir engum manni gott. Þú ert EKKI vonlaus móðir, og skítt með hvað aðrir hugsa í kirkjugarðinum.
Ég var með markmið og það var að planta blómum á leiðið hennar mömmu fyrir afmælisdaginn hennar, og mér tókst það !! En ég er bara búin að fara einu sinni í garðinn eftir það. Hann pabbi fer á hverjum degi, og ég hafði einhvern móral yfir því, en svo fattaði ég það að fólk hefur misjafna þörf fyrir að vitja leiðis....... ég horfi mörgum sinnum á dag á mynd af mömmu minni og hugsa upphátt og kvekiki kannski á kerti, og það er nóg fyrir mig. Ekki er það fjarlægðin sem er að standa í mér við að fara ekki í garðinn, ég hef ekki þörf fyrir það. Settu þér markmið - eitt í einu og vittu til, það gerist eitthvað í málunum..

En ein loka spurning; " Áttu einhver rasshár eftir ? Ég meina, þú ert alltaf að rífa í þau " !!!!

knús í plús
06. júlí 2009 klukkan 14:58

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar