Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Typpi eða tippi ........ maður spyr sig!!!!

17. júlí 2009 klukkan 01:07
Ein uppáhalds setningin mín úr bíómynd ........ og þá er ég að meina íslenskri bíómynd er úr Stellu í orlofi.

Stella í orlofi er náttúrulega bara ein af mínum uppáhalds myndum og ef ég væri að tjá mig eins og svo margir aðrir gera í dag þá gæti ég ekki orða bundist og sagt að Stella í orlofi er bara GARGANDI SNILLD!!!!

Nema hvað að setningin sem um ræðir er: "hugsa þú bara um þíns eigins typpi"!!!!

Þetta hef ég sagt oftar en ég hef tölu á eða kæri mig um að muna....... mér finnst þetta snilldar setning og hægt að nota hana við hin ótrúlegustu tækifæri!!!

Verst að þegar ég læt þetta út úr mér þá hef ég stundum lent í því að viðkomandi móttakari setningarinnar hefur ekki alveg kveikt á perunni og ekki munað eftir Stellu minni í orlofi......... við skulum segja að það hafa komið upp vandræðaleg móment!!!!

Nema hvað.......... ég var að skrifa þessa setningu um daginn ......... og þá fór viðkomandi móttakari setningarinnar að setja út á stafsetningu mína á orðinu typpi!!!

Hélt því fram að það væri skrifað með einföldu i-i líka......... eða það væri bæði jafn rétt!!!! Meira að segja kom með þau undarlegu rök að spyrja af hverju typpi væri eiginlega dregið fyrst það væri skrifað með ypsiloni!!!!!

Ég kem þessu bara ekki inn hjá mér......... mér finnst að typpi eigi að vera skrifað með ypsiloni...... ég hugsa það alltaf með ypsiloni!!!!!

Nema hvað......... einkasonurinn er dáldið mikið klár í íslensku......... allavega klárari en móðir sín....... og þegar ég fer að efast um hæfileika mína til að skrifa íslenskuna rétt .......... spyr ég hann......... svo ég nefndi þetta við hann og hann var algerlega sammála mér í því að typpi á að vera skrifað með ypsiloni!!!!

".....og af hverju er það dregið?" spurði móðirin varfærnislega......... þar sem hægt er að segja henni hvað sem er í íslensku máli og hún trúir því bara eins og nýju neti!!!

Einkasonurinn sagði að það væri ekki dregið af neinu...... ekki frekar en "fyrir" eða "pylsa"!!!!! ..... og ég trúi honum!!!!

Þangað til annað kemur í ljós ætla ég að halda áfram að skrifa typpi með ypsiloni ........... því það er miklu flottara en tippi!!!!!

............ svo er ég að velta því fyrir mér hvort það sé ennþá hægt að fá berjatýnur með vasaljósi!!!!! ........ svona ef ske kynni að maður skellti sér í berjamó einhvern daginn!!!!!
Frú Megabeib
Anna fimma skrifar ...
 
Hverjum er svo sem ekki sama hvort typpi er tippi, eða tippi er typpi............ bara ef það virkar eins og til er ætlast :)
Typpi - a.k.a Reður er hið stórkostlega líffæri sem hangir framan á flestum karlmönnum............... tippi er lítið stykki eða takki = togaðu í tippið / ýttu á tippið ........ en margir rugla þessu saman þar sem sumir óforskammaðir nota orðið tippi til að gera lítið úr einstaka mönnum í þeirri meiningu að tippi = lítið !!!!

Annars er ég fullkomlega sammála þér með Stellu í Orlofi.............. hún er ein besta og orðheppnasta kvikmynd Íslandssögunnar, og frasarnir mikið notaðir í mínum húsum ..... enda allgjör snilld :)

Takk mín kæra vinkona fyrir ómetanlegt og fyndið innlegg á bloggisíðuna mína........ var í miðjum klíðum að borða og það stóð næstum í mér ....... ég hef ekki hlegið svona mikið llllllleeeeennnnnggggiiiii :)
Þú ert yndisleg, takk fyrir að vera til :)
17. júlí 2009 klukkan 10:21
Olga skrifar ...
 
... af hverju er það dregið???.... hvað er þetta með ykkar fjölskyldu öll orð þurfa að vera "dregin"af einhverju...???
17. júlí 2009 klukkan 14:48
Guðrún Þorleifs skrifar ...
 
Blogglestrarkvitt.
Las þetta þegar "mæjónesan var oðin gul"
19. júlí 2009 klukkan 07:04

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar