Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Tæknin tekin í sínar hendur!!!!

24. júlí 2009 klukkan 19:13
Kæri herra Guð! Fyrirgefðu að ég er að trufla en.......

Svona byrjaði sms-ið sem ég sendi í nótt!!!
Ég veit að þetta hljómar gjörsamlega fáránlega en ....... ég gat ekki sofnað og var farin að hugsa í hringi.....

..... og þar sem ég trúi á Guð og veit að hann er til ..... tala oft við hann..... bæði upphátt og í hljóði, þá fannst mér alveg tilvalið að senda honum sms!!!

Ég hef oft skrifað honum bréf og finnst það oft virka miklu betur en það sem ég segi upphátt eða það sem ég er að segja við hann í huganum....... en þar sem ég var komin upp í rúm og ekki með nein skriffæri við höndina var þetta nokkuð góð leið ...... enda lít ég svo á að Guð sé einn af mínum allra bestu vinum!!!!

Mér finnst dáldið leiðinlegt hvað fólk verður skrítið þegar ég segi því að ég trúi á Guð!

Ég hef nú ekki alltaf gert það ...... ætlaði t.d. ekki að fermast þar sem ég trúði nú ekki á þennan Guð þarna eða það sem honum fylgdi...... en það er breytt í dag!

Ég er búin að margsanna það fyrir mér að hann er til þessi ellllllska!!!

Eflaust halda margir að ég hafi "frelsast" eftir að Ási minn fór frá mér........ en það er bara ekki þannig!!!

Eflaust gætu einhverjir velt því fyrir sér hvernig í ósköpunum mér detti í hug að trúa á Guð sem tók manninn minn frá mér og börnunum okkar!!!! ..... hvers konar kvikindi hann sé eiginlega og ég svo að trúa á þetta illfygli!!!!

Well ég geri það nú samt........ á minn einka eigin hátt ...... og ég á í alveg ágætis sambandi við hann og er þakklát fyrir að hafa hann í mínu lífi!!!!

...... þó svo að hann eigi það nú til að gera ekki alveg eins og ég hafði hugsað mér eða láta hluti gerast sem henta mér alls ekki ...... er ég samt sátt, því hann hefur hjálpað mér við svo ótrúlega margt annað að það vegur það alveg upp......... er það ekki líka svoleiðis með góð vinarsambönd að það er ekki alveg alltaf ALLT sem hentar??????

....... en sms-ið komst til skila og ég sofnaði von bráðar með bros á vör....... vitandi það að það væri kominn vanur maður í málið....... sem kann að taka á því og leysa það!!!!

Hvort það hentar mér svo eða ekki ......... verður að koma í ljós!!!!
Frú Megabeib
Edda frænka skrifar ...
 
Alveg hreint brilljant :-) ég trúi líka á Guð, en hef aldrei sent honum sms, vantar númerið hjá honum .. hehehe..... Vona að hann vinni vel úr málinu :-)
24. júlí 2009 klukkan 19:37
Brynja og Ragga skrifar ...
 
Linda mín, það er svo gaman að fylgjast með þér blóimið mitt, endilega halda áfram að skrifa, svo ég geti haft ánægju af..... svolítið eigingjarnt...hehe..... langaði bara að segja þér þetta, og já ég trúi líka.... annars væri þetta allt öðruvísi þetta líf.... knús og kram kv. Brynja Bryll
25. júlí 2009 klukkan 21:14
Guðrún Þorleifs skrifar ...
Knús úr Breiðholtinu <3
27. júlí 2009 klukkan 23:06
Anna fimma skrifar ...
 
þú ert hreint yndisleg mín kæra :)
mér finnst þetta alveg brilljant hjá þér og ég er þess fullviss að allt reddast þetta hjá þér.
31. júlí 2009 klukkan 15:27
Jóna Á. Gísladóttirveit ekki afhverju þessi færsla fór fram hjá mér í gær þegar ég var að lesa hjá þér. Kannski voru það forlögin, því hún lyfti upp annars frekar strembnum degi hjá mér í dag.
Þú ert krútt.
07. ágúst 2009 klukkan 13:57

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar