Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Einstæð móðir með engin börn!!!!

10. ágúst 2009 klukkan 18:57
Þetta verður undarleg vika!

Einkasonurinn rétt kom heim í gær eftir viku veru í Vatnaskógi og fór aftur á stað í morgun fyrir aðra viku í Vatnaskógi!!!

Við mæðgur erum að pakka niður fyrir ferð einkadótturinnar í Ölver og ætlar hún að koma heim á föstudaginn!!!

Það verður einstaklega skrítið að vera ALEIN heima í svona marga daga!!! ......... en ég efa það ekki að ég finni mér eitthvað skemmtilegt til dundurs........ eins og heimsækja eitt eða tvö kaffihús, fara í bíó..... stunda hömlulaust kynlíf...... æi já alveg rétt það get ég ekki!!! var næstum því eiginlega alveg búin að gleyma því!!!! það vantar gjörsamlega aðrar persónur og leikendur til að geta gert það!!!! ....... eða kannski eins gott að hafa þetta bara í eintölu!!!!

 ...... en hitt er alveg möguleiki!!!! ..... það er að segja kaffihúsin og bíóferðin......... er með leikfélaga í því!!!!

Þvottakarfan er tóm....... gæti svo sem alveg skúrað og kannski þurrkað af........ svona ef mér leiðist á milli kaffihúsaferða!!!

Sjúkkett........ þarf EKKERT að elda í 4 daga!!!!! ......... ekki það að ég eldi...... heldur er það bara kvöðin um að þurfa að elda sem er að sliga mig!!!!

Börnin mín yndislegustu eru meira að segja farin að tala um það að það sé aldrei eldað eða þvottur þveginn á þessu heimili!!!!......... verð líklegast að fara að gera eitthvað í þessu..... get ekki látið börnin alast svona upp!!!!

já og svo er það eitt að lokum;

NÚ ER KOMIÐ STOPP....... á tjúttið hjá konunni!!!! ........... gloríur seinustu tjúttævintýra standa frúnni ennþá ljóslifandi fyrir hugsskotssjónum og þarf hún ekki annað en loka augunum og þá sér hún þetta allt saman fyrir sér.......... Ó MÆ GOD!!!!

............ allavega þangað til næst!!!!!
Frú Megabeib
Anna fimma skrifar ...
 
Gloríur, !!!! hverjum er ekki sama um gloríur...... þær gera lífið bara skemmtilegra :)
Annars var ég að senda ykkur 5 póst í tilefni bíóferðar !!! Svar óskast
knús í knús
10. ágúst 2009 klukkan 20:03
Jóna Á. GísladóttirEf þú manst gloríurnar þá eru þær ekki gloríur. Aðeins skemmtun. Svo eru það gloríurnar. En þær teljast ekki með því þú manst þær ekki anyway. So.. nothing to worry about beautiful
12. ágúst 2009 klukkan 23:51

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar