Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Hvar enda þessi ósköp!!!????

14. ágúst 2009 klukkan 21:01
Ég er náttúrulega ekki alveg í lagi!!!

Ekki það að ég hafi nokkurntíman verið það...... en þetta held ég bara slái öllu við!!!!

Eftir að hafa farið á vitlausum tíma að ná í einkasoninn á sunnudaginn síðasta ...... og hafa komist að því að allar upplýsingar birtust á internetinu um nákvæma tímasetningu heimkomunnar........ ákvað ég að hafa vaðið fyrir neðan mig og kanna það hvenær börnin ættu nú að lenda í dag ...... svo ég þyrfti ekki að hanga á bílaplaninu í lengri tíma við að gera akkúrat ekki neitt!!!

Ég tékkaði á þessu í dag........ og jú jú ...... einkasonurinn átti að koma heim klukkan 20:00 á heimkomudegi og einkadóttirin klukkan 20:30 á heimkomudegi.

Svo ábyggilega móðirin hamaðist við að taka til á heimilinu setja í uppþvottavélina, henda rusli, þrífa gólfin, ganga frá skóm (sem voru ófá pörin) og flíkum sem farið var úr þar sem frúin stóð þar sem enginn var til að taka eftir þvi nema hún sjálf!!!! Ekkert af áðurtöldu hefur verið gert alla vikuna!!!! .......... já það er rétt....... heimilið leit út eins og eftir létta loftárás........ en hvað skiptir það máli þegar ég er hvort sem er ALEIN hérna????

En ég gat ekki hugsað mér að láta börnin mín koma heim í þessa óreiðu........ svo það var gírað og græjað svo nú er heimilið spink og span!!!!!

Allt klárt til að hendast af stað til að ná í einkasoninn ....... svo gætum við mæðgin bara setið saman á bílaplaninu og kjaftað saman þangað til skellibjallan einkadóttirin kæmi!!!!

.......... alveg ferlega gott plan....... þangað til ég ...... af einhverri rælni....... kíkti á dagsetningarnar!!!!!

Jú jú einkadóttirin er á leiðinni í bæinn og mun verða á áfangastað klukkan 20:30 .......

........... en einkasonurinn kemur á sunnudaginn!!!!!!!!
Frú Megabeib
Alice skrifar ...
 
Jep, lyder bekendt ;-) Tænk, hvis vi havde mere end 2 børn????
15. ágúst 2009 klukkan 07:14
Anna fimma skrifar ...
 
ha, ha, ha, rétt hjá Alice, hugsaðu þér ef þú værir eins og ég, ........ nú eða Ósk !!!!!!!!!!! En það er alveg sama hvað, þú ert og verður GULL, FALLEG OG DDG :)
15. ágúst 2009 klukkan 11:44
Guðrún Þorleifs skrifar ...
 
Ertu þá enn á bílaplaninu?
15. ágúst 2009 klukkan 21:39
hehe Guðrún Þorleifs orðaði mína spurningu
17. ágúst 2009 klukkan 11:13

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar