Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Það var einu sinni fyrir laaaaaaaanga löngu að það var þáttur í sjónvarpinu.......

06. september 2009 klukkan 22:29
Þetta kallar á eitt stk. blogg!!!!

Einkadóttirin var eitthvað að tjá sig....... og af einhverri undarlegri ástæðu minnti hún mig skyndilega á Bikar í Prúðuleikurunum!!!!

Ég sagði við hana:" þú ert nú alveg eins og Bikar í Prúðuleikurunum!"

Þá svaraði einkasonurinn:" Prúðu hvað????"

Wów hvað ég átti ekki von á þessu!!!!

Að vísu heyrir hann ekki helminginn af því sem ég segi þessa dagana við hann!!! Hélt að þetta væri svona eitt af því mómentum........ þar sem ég er sannfærð um að þetta hefur eitthvað með aldurinn að gera!!! ........ sko hans!!!

Man eftir því þegar ég sendi bróður hans til eyrnalæknis þegar hann var jafn gamall einkasyninum........ því bróðirinn gerði lítið annað en segja endalaust HA? við mig........ sama hvað ég sagði!!!
Eyrnalæknirinn sendi hann heim með þau skilaboð til mín að hann væri með 100% heyrn og að ég ætti að tala skýrar og vera viss um að ég hefði fulla athygli drengsins þegar ég væri að tala við hann!!! Tel því að þetta hafi eitthvað með aldurinn að gera!!!!

En í þetta skiptið heyrði einkasonurinn alveg hvað ég sagði........ vissi bara ekki hvað ég var að tala um!!!! Fannst það einstaklega undarlegt þar sem ég hélt að hvert mannsbarn þekkti Prúðuleikarana!!!! ....... hvarflaði ekki að mér eitt stundarkorn að hann vissi ekki HVAÐ ég væri að tala um!!!! Hélt í ALVÖRUNNI að ég væri ekki orðin svona gömul....... ég sem er alltaf 32!!!

Mikið er ég þakklát fyrir YouTube!!!!

Fór að sjálfsögðu beint í tölvuna....... sló inn Prúðuleikararnir og fann HELLING af síðum með þeim!!! ...... hentist niður stíginn sem var fullur af minningum um Prúðuleikarana og skemmti mér konunglega yfir Dýra, Bikar, Sænska kokkinum, hinni óborganlegu Svínku og Kermit..... að ógleymdum köllunum tveimur sem endalaust voru að kommenta á sjóvið!!!!

Börnin skemmtu sér ekki síður yfir móður sinni ....... þar sem hún sat og skælbrosti og hló og reyndi af fremsta megni að útskýra Prúðuleikarana fyrir þeim!!!

Lengi lifi Prúðuleikararnir, YouTube og Pigs in Spaaaaaaaace!!!!!
Frú Megabeib
Anna fimma skrifar ...
 
Ég skil sko alveg að þér hafi brugðið við þetta, og ég rifja upp eina svona "brugðna" minningu okkar tveggja: Það var ungur drengur sem í sakleysi sínu spyr hvað er BRAGGI....... og við ungu konurnar hoppum upp á nef okkar af hneykslun og undrun að barnið ( ofvitinn) skuli ekki vita hvað ´det er for noget´ !! Jú, jú, þetta var fyrir tíma YouTube........ Sem betur fer vorum við með bílpróf og hægt að keyra drenginn beint út á flugvallarveg og sýna honum bragga með eigin augum.
08. september 2009 klukkan 17:23

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar