Einkennilegt ţetta lif!!!
14. september 2009 klukkan 00:25
Ég er búin að fara hamförum í skápum eldhússins í dag.
Það eru búnir að fara í það minnsta 3 pokar í ruslatunnuna ....... pokar fullir af útrunnum matvörum og öðrum óþarfa sem fylltu skápana hjá mér!!!
Kannski ekki bara matvörur sem voru útrunnar........ en æi svona hlutir eins og niðursuðuvörur sem einhvernveginn gleymast aftast í skápunum, sem einhverntíman eiga að vera notaðir en eru það svo aldrei.... veit ekki afhverju það var keypt í upphafi en hefur eflaust átt að gera eitthvað rosalega gott úr því.
Ferlega mikið af kryddi sem er útrunnið........ vissi ekki einusinni að krydd hefði síðasta söludag á því, en komst að því í dag að það er sko þannig!!! ........ fullt af því sem endaði í ruslinu!!!
Pappírar sem staflast upp og enda í hrúgu sem verður svo stór að enginn kemst yfir nema fuglinn fljúgandi ....... hrúgan hefur minnkað til muna, þó ekki horfin með öllu....... enda var þetta ansi stór hrúga!!!!
Á milli allra pappíranna leyndist dagatal frá árinu 2007.
Veit ekki afhverju það var ekki búið að henda því....... eða jú eiginlega veit það..... ég skrifa svo oft eitthvað svakalega merkilegt á dagatalið, eins og fyrstu tönn dótturinnar eða hvenær einkasonurinn fékk gat á hausinn eða hvenær ég átti að fara til tannæknis........ mis merkilegar upplýsingar...... en svo geymi ég dagatalið til þess að geta fært mikilvægar dagsetningar á ábyggilegan stað þar sem hægt er að ganga að þeim vísum þegar þörf er á þeim!!! ...... það er svo undir hælinn lagt hvenær ég svo kem þessum upplýsingum á ábyggilegan stað...... en það er aftur annað mál!!!!
Árið 2007 ........ eflaust það erfiðasta í mínu lífi fram að þessu....... og þó!!!!
Þegar ég tók það og fletti í gegnum það er það bara eins og önnur dagatöl frá öðrum árum...... búið að færa inn afmælisdaga fjöslkyldunnar, setja inn tannlæknatíma og annað mis mikilvægt.
Þar er kyrfilega merkt inn brottfarardagsetning fyrir fríið okkar til Danmerkur sem og heimkomudagsetning.......
Eins einkennilega og það hljómar þá er ekkert merkt eftir ágúst........ kannski ekki skrítið...... hafði öðrum hnöppum að hneppa en merkja inn dagsetningar martraðarinnar!!!
Mikið er ég glöð og þakklát fyrir að við skildum hafa farið til DK þetta sumarið. Fengum frí öll saman, gjörsamlega óvitandi um það að þetta væri seinasta fríið okkar allra fjögurra saman ....... alveg ómetanlegt fyrir okkur þrjú og þá ekki minnst fyrir börnin mín.
Að árið 2007 skildi hafa getað byrjað svona fullt tilhlökkunar fyrir komandi sumri að því ógleymdu að við hjónin skelltum okkur til Noregs í apríl (það stendur sko í dagatalinu) og að það skuli hafa getað endað eins hræðilega fyrir okkur litlu fjölskylduna eins og raun bara vitni........ það er algerlega óskiljanlegt!!!
Jafnvel í dag er mér fyrirmunað að átta mig á því hvað þetta tók stuttan tíma ....... hvernig hafði ég þetta af??? Ekki veit ég það!!!
Í hrúgunni ógurlegu var líka bréf sem mér barst í nóvember árið 2007 ........ verulega einlægt bréf og þar stóð meðal annars að þó ég ætti erfitt með að trúa því núna þá myndi mér eiga eftir að líða betur....... og ég trúði því ekki þegar ég las það þá!!!
...... en ég verð að játa það, og mér finnst það ekkert leiðinlegt, en mér líður betur....... betur en þá ..... vissulega koma dagar sem eru verri en aðrir, dagar þar sem mér finnst herra Guð hafa svindlað á mér all hrottalega og óska honum þá í norður og niðurfallið...... en svona alla jafna þá líður mér betur!!!!
En í heildina litið var gott að finna dagatalið og lesa það í gegnum og sjá hvað við áttum gott líf saman ...... eins var alveg dásamlegt að lesa bréfið og komast að því að það sem í því stóð var satt og rétt .... hvað ég hef náð langt síðan í nóvember 2007!!!
Dagurinn í dag var góður dagur.......... með bræddum osti!!!!

Frú Megabeib

Mikið var nú gott að þú áttir góðan dag og að þér líður betur í dag en í nóvember 2007 :-)
Kv. frá DK, Begga
Kveðja,
Elsa Dögg
knús í þitt hús mín kæra
AR