Saga Glóđuraugans ... stytt útgáfa!!!!
21. september 2009 klukkan 20:07
Vildi að ég gæti sagt að ég hafi verið kófdrukkin ........ en ég var það ekki!!!
Vildi að ég gæti sagt að mér hafi verið hrint ........ en mér var það ekki!!!
Vildi að ég gæti sagt að ég hafi verið að bjarga gamalli konu frá því að vera rænd ...... en get það ekki!!!!
Ég gerði þetta algerlega sjálf og hjálparlaust..... eða kannski ekki aaaaalveg hjálparlaust..... ég meina það er örugglega hægt að kenna bílstjóranum um þetta ....... eða rútunni!!!!
Ég náði mér í þetta flotta glóðurauga á fimmtudagskvöldið ....... sko kvöldið að íslenskum tíma ...... reyndar var nótt þar sem ég var stödd ....... en það er kannski ekki eitthvað sem skiptir máli!!!!
Ég var á leiðinni heim eftir hið ánægjulegasta kvöld í faðmi ísbjarnar og annarra glæsimenna ........ á leiðinni heim eftir mikinn og skemmtilegann dans, góðan mat og frábæran félagsskap.
Ég var komin á áfangastað. Rútan sem hafði þann tilgang að keyra okkur heim, var stopp þar sem ætlunin var að stíga af henni.
Ég var glöð að vera komin á áfangastað.
Ég lagði það ekki á mig að troða mér fremst í rútuna til að komast út að framan, heldur snaraðist valhoppandi niður þröngu, myrku tröppurnar að aftan!!!!
Af einhverri undarlegri ástæðu var ekki "rétt" bil á milli seinustu trappanna (er með vitni).
Bílstjórinn laggði bílnum í einhverri undarlegri fjarlægð frá kantinum á gangstéttinni (er með vitni).
...... sem leiddi til þess að þegar ég, valhoppandi, á fullri ferð, missti fótanna í seinustu tröppunni, náði ég þeim ekki undir mig aftur og hafnaði á andlitinu ...... þar slokknaði líka á mér!!!
Mér er tjáð að bílstjórinn (veit ekki hvaða fæðingar hálfv..... það nú er ....... enda perki!!!) hafi rétt verið við það að keyra yfir mig ..... en einhver af samferðafólki mínu náði nú að stoppa hann áður en það hafðist (enda væri ég eflaust í gifsi á báðum ef honum hefði tekist ætlunarverk sitt!!!) ..... hann kom, sá að ég var að ná meðvitund, spurði mig að einhverju (ekki man ég hvað það var) skellti sér svo bara aftur í rútuna og brunaði í burtu!!!!!
Þegar ég rankaði við mér man ég að það fyrsta sem ég hugsaði var:"fokk, braut ég hælinn undir skónum mínum?? Shitt, shitt, shitt!!"
Ég fór á slysó!!!!
Beið þar í rétt um 3 klukkutíma og var svo send heim með næsta leigubíl eftir að læknirinn var búin að fella þann dóm að ekkert væri að mér ....... en ég ætti eftir að fá þetta líka flotta glóðurauga, og ekki væri hægt að gera neitt í því!!!! Tókst mér þó að væla út nokkrar verkjatöflur, þar sem við höfðum ekki svoleiðis með okkur á hótelherberginu!!!!
Þrátt fyrir langa bið og harða stóla, skemmtum við okkur konunglega og lærðum helling. T.d. á önnur okkar einungis eftir að skrifa lokaritgerðina í læknisfræði annars er hún nánast útskrifuð ....... sjúkdómsgreindi alla sem áttu leið hjá!!!
Við hlógum og hlógum!!! ........ og ekki batnaði það eftir að búið var að komast að því að frúin var óbrotin og nokkuð heil eftir hrakningarnar........ grenjuðum við þá úr hlátri..... enda búnar að vaka í eina 22 klukkutíma!!!!
Ekki er vafi í mínum huga að starfsfólk Fredriksberg (já segið þetta á dönsku!!! ....... var ekki hægt að fara með mig eitthvað annað??? nei ég bara spyr....... það er ekki eins og það hefði verið hægt að velja úr 4 skadestúum...... nei veljið það sem er með erfiðasta nafnið!!!! ....... hvernig haldið þið að það hafi verið að panta leigubíl??? ...... nei það er engin umfram þjónusta á slysó á Fredriksberg, ég varð að hringja sjálf á leigubíl!!!! ....... og já þrátt fyrir að vera nokkuð sleip í dönskunni....... þá kemur sko hnútur á tunguna á mér þegar ég reyni að segja Fredriksberg!!!!) ..... já starfsfólkið hefur haldið að við værum kófdrukknar ........ eða á einhverju, t.d. sveppum ........ því við hlógum svo mikið!!!!
Eins og við vorum ábyggilegar, skynsamar og einkar skipulagðar þýddi þetta fall mitt náttúrulega, að það varð að aflýsa Bilkaferðinni ....... og veit ég ekki alveg hvort ég er svekktari yfir að hafa misst af því að kaupa alla skóna sem ég ætlaði að kaupa, er þess þá heldur ennþá glaðari yfir að hafa ekki brotið hælinn undir skónum mínum .......... eða klósettsetunni!!!!!!
Þetta hljómar kannski undarlega, en........
....... fyrst þetta þurfti að koma fyrir er ég ákaflega þakklát fyrir að ég er ekki brotin neins staðar, það þurfti ekki að sauma mig, ég er ekki í gifsi, þetta gerðist á síðasta degi svo ég þurfti ekki að vera í vinnunni og hitta kúnna með þetta framan í mér, ég er með allar tennur heilar ...... sko ekki brotnar eftir fallið meina ég!!!!
Ég er lurkum lamin og það eru alltaf nýjir marblettir að koma í ljós ..... ég finn full mikið til í síðunni .... en það er ekkert sem nokkrar parkódín forte redda ekki!!!! ............ verst að ég má ekki keyra þegar ég er búin að bryðja þær!!!
En ég er gordjöss með flottasta glóðurauga norðan alpafjallanna og hún athyglissjúka ég fæ ótakmarkaða athygli þessa dagana ......... sko ef ég tek niður sólgleraugun!!!!!

Frú Megabeib

Farðu vel með þig því þú ert svooo dýrmæt.
liklega hefdi verid heppilegast fyrir thig ad lenda a Ríkinu... stysta nafnid ;)
En það er ekki á þig logið elsku frú megabeib, það sem þú tekur þér fyrir hendur , það gerir þú með stæl...... enda gorjöss fyrir allan pakkann ;) alltaf, alltaf :))
Já þú varst heppin að ekki fór verr. Og glóðuraugað er á förum er ég viss um.
Verst með non-shoe-shopping