Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Glóðurauga ............ FARÐU!!!!!!!

27. september 2009 klukkan 23:30
Merkilegt......... eða fyndið........ eða kannski bara grátlegt!!!????

Þegar ég fer út ..... þá vil ég einna helst fara út á meðan það er ennþá bjart......... svo ég geti verið með sólgleraugun án þess að það sé glápt ALLTOF mikið á mig!!!!

Mér finnst þetta athyglisvert, því ég stend sjálfa mig að því að fela glóðuraugað!!!
Þó svo að mér finnist einstaklega fyndið hvernig það er tilkomið og tek reglulega myndir til að halda yfir það örlitla dagbók........ því það breytist frá morgni til kvölds!!!!

Fór með börnunum mínum áðan í verslun........ var með sólgleraugun að sjálfsögðu....... afgreiðslumaðurinn horfði einkennilega á mig........ ég spurði börnin hvort þetta væri sjáanlegt í gegnum gleraugun ......... og já!!!! Það var eitthvað ljós þarna í loftinu sem fór beint niður og lýsti upp glóðuraugað eins og það væri jólatré á aðfangadag!!!! Ekki skrítið að maðurinn hafi horft á mig........ hefði kannski átt að rífa niður gleraugun????

Þá hefði hann pottþétt fengið sama sjokkið og ungi drengurinn sem bankaði uppá og var að selja klósettpappír...... eða dömurnar tvær sem voru að selja lakkrís!!!! ....... fólk verður alveg ferlega skrítið í framan og flóttalegt til augnanna!!!!

Ætti ég að fara að ganga með skilti á mér sem segði: "Ég var ekki lamin!!!"

Veit ekki hvort það sé neitt betra ......... glóðurauga er alþjóðlegt merki þess að þú sért beittur ofbeldi........ ég geri víst lítið til að breyta því ........ verð bara að brynja mig þolinmæði og bíða þess að það hverfi!!!!!

Finnst samt athyglisvert hvað ég skammast mín einhvernveginn fyrir að vera með þetta framan í mér!!!!

........ börnin mín eru búin að samþykkja að fá súlu í stofuna!!!! ..... spurðu hvort þau mættu æfa sig á henni líka!!!!! LENGI LIFI SÚLUDANSINN!!!!! ......... sem líkamsrækt sko!!!!!
Frú Megabeib
Elsa Dögg skrifar ...
 
Ég er búin að vera þarna. Með glóðarauga og allir flóttalegir. Ég fór í smá aðgerð í kringum augun þann 5. jan. sl. og fékk líka svona svaka "flott" glóðarauga. Í janúar notar maður ekki mikið sólgleraugu, þannig að Gunni gekk á eftir mér og sagði við alla, ég barði hana ekki , hún var í aðgerð. Svo var bankað upp á hjá mér og fyrir framan stóðu krakkar að safna dósum fyrir Þrótt. ég teymdi þau og mömmuna sem var með þeim niður í geymslu þar sem ég fann marga svarta ruslapoka af bjórdósum. Ég sá alveg hvað konan hugsaði. "Aumingja konan á mann sem drekkur og lemur hana svo." Ég útskýrði fyrir konunni og börnunum af hverju ég liti svona út og þeim var mikið létt.
Það var skrítin lífsreynsla að vera með glóðarauga.
Kær kveðja,
Elsa Dögg
28. september 2009 klukkan 14:50

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar