Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Stađur: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Stađur: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Stađur: On the Kleik

Ég

Jólapakkar!!!

13. október 2009 klukkan 20:21
Ég tek á móti jólapökkum í ár!!!

Bara svona til að ALLIR í kringum mig viti það tímanlega ....... eða sko þeir sem gætu mögulega gefið mér jólapakka ...... þá hafa þeir tímann fyrir sér núna og ætti ekki að koma neinum á óvart að jólin eru þann 24. desember í ár!!!

Sem er eftir rétt rúma tvo mánuði!!!!

..... og þar sem ég fékk ENGA jólapakka í fyrra, sem er kannski skiljanlegt þar sem ég gaf út þá yfirlýsingu að ég vildi ekki jólapakka ....... ég meina við fórum jú til Kanarý ........ þá fékk ég heldur ekki NEINA pakka í fyrra!!!! Eru það fyrstu jólin í mínu lífi þar sem ég ekki fæ pakka á aðfangadag ....... það var skrítið ........ en ég hef heldur aldrei fengið pizzu í matinn á aðfangadag fyrr!!!! ...... en ég man samt hvað mér fannst þetta skrítið!!!!

Þannig að ég er búin að komast að því að ef ég gef út tilkynningu um að ég taki á móti pökkum í ár ..... þá HLÝT ég að fá jólapakka!!!

Annars tala börnin mín stanslaust um jólin og hvað þeim hlakki til og hvað það verður notalegt og hvað það verður huggulegt .......... get ekki sagt að ég sé sammála þeim ......... en ég held að þau hlakki meira til en áður sökum þess að þau fengu engin jól í fyrra með gömlum hefðum og þess háttar!!!

Mér hlakkar, eða er það ég hlakka ........ get aldrei lært þetta ......... en sama hvort það nú er þá kvíði ég jólunum eins og öðrum hátíðum þar sem fjölskyldan er saman í fríi ..... eða svona fjölskylduhátíðir ...... eins og afmæli, jól, páskar, ferming ....... æi já svona get to gether with the familie things!!! Það er sárt og tómlegt........ en ætli ég komist ekki í gegnum það á samanbitnum jöxlunum eins og í gegnum svo margt annað!!!! ........ það hlýtur að vera ....... kýli sársaukan niður í maga og mála á mig brosið og hamast við að láta engan sjá sársaukann ....... ekki einusinni börnin mín....... þó svo þau séu ansi lunkin við að sjá undir grímuna sem móðir þeirra ber svo snilldarlega!!!!

......... en að öllu þessu slepptu ....... þá ætla ég að árétta það ........ fyrir þá sem hefðu á því áhuga ........ ÉG TEK Á MÓTI JÓLAPÖKKUM Í ÁR!!!!
Frú Megabeib
Svakalega er ég fegin á að þú minntir mig að jólin kæmu upp á tuttugastaogfjórða þetta árið. Ég á það til að gleyma afmælisdögum og þessi hefði mögulega aaaalveg farið fram hjá mér ef ekki væri fyrir þína einskæru hjálpsemi.
Auðvitað er sárt á svona gatheringum.... þá er þetta allt svo eitthvað right in your face... maður er svo illilega minntur á.
Ég vona að þau jól komi elskan mín, fyrr en seinna þar sem þú brosir út í annað af endurminningum sem poppa upp, finnir ylinn í hjartanu og ornir þér andartak en svo grípi krakkarnir athyglina og þú gleymir... þangað til næst.
13. október 2009 klukkan 23:49
Anna fimma skrifar ...
 
Er eitthvað annað á óskalistanum heldur en fartölva ?
14. október 2009 klukkan 10:42

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar