Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Stađur: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Stađur: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Stađur: On the Kleik

Ég

Sjúkraţjálfun????????

17. október 2009 klukkan 12:23
Var að skoða myndir í gær af glóðurauganu margumtalaða!!!

Þetta er ekkert smá glóðurauga sem ég hef náð mér í ....... ekki skrítið að fólk hafi fengið sjokk þegar það sá mig...... miklu meira sjokk en ég nokkurntíman var með .......

Mér var nefnilega ekkert illt í þessu ......... engan veginn ........ en er núna orðin þokkalega þreytt á því að geta ekki lyft hægri augabrúninni!!!!

Það var sagt við mig í gær: "þarftu ekki bara að fara með hana í sjúkraþjálfun??" ....... mér fannst það ógeðslega fyndið ........ en fór svo að hugsa ........ ef ég hefði slasað mig á hendi og væri ekki orðin góð eftir fjórar, já FJÓRAR FOKKINGS vikur ....... þá færi ég eflaust í sjúkraþjálfun!!!!

Svo núna ætla ég með augabrúnina í sjúkraþjálfun ........ sko bara hérna heima hjá mér ....... ég sjálf það er að segja...... ætla sko ekki að labba inn til sjúkraþjálfara og biðja um að fara í sjúkraþjálfun út af bólginni augabrún!!!!

Gat ekki einusinni fengið klippinguna sem ég hefði viljað fá sökum þess að þessi bévítans augabrún lafir niður í augað á mér!!!! Ekki það að ég er nú samt alveg gordjöss með nýju fínu klippinguna mína!!!!

Er að spá í að búa til albúm á Facebook með seríu af glóðurauganu .......... því það breyttist frá morgni til kvölds!!!! Bara fyndið!!!

Veit ekki alveg hvað þessi gamli á efri hæðinni er að spá ...... gleymdi allavega alveg að hafa mig með í ráðum..... eða kannski þetta var eina leiðin til að stoppa frúna af ........ láta hana fljúga á hausinn og fá stærsta glóðurauga sem sést hefur norðan Alpafjalla!!! ...... ja..... í það minnsta hlustar hún ekki nógu vel ....... svo þetta var kannski eina ráðið??? ...... allavega var þetta nánast sársaukalaust ..... og ég braut ekki hælinn undan skónum og ég brotnaði ekki ...... þó ég hafi nú fengið lungnabólgu og augnbrúnabólgu...... þá er það ekkert til að tala um ........ ég er þokkalega búin að vera spök!!!!

Er farin að leika sjúkraþjálfara á sjálfri mér!!!!
Hvað var það nú aftur sem maður setti á til að minnka bólgur??? ...... var það heitt eða kalt????
Frú Megabeib
Anna fimma skrifar ...
 
þú ert fyndin ; ) og yndisleg
17. október 2009 klukkan 15:27
Auđur Lísa skrifar ...
 
þú ert frábær :)
21. október 2009 klukkan 15:54
dagny sylvia skrifar ...
 
gera eins og uma thurman i Kill Bill þegar hún kemst útaf sjúkrahúsinu og stelur bílnum (pussy wagon) hans Buck´s og byrjar að endurhæfa á sér tærnar... :)
26. október 2009 klukkan 14:39

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar