Juleball, juleball i Nisseland .........
27. október 2009 klukkan 00:12
Börnin mín bestu hafa þá áráttu að þurfa endilega að spila og syngja jólalög allan ársins hring!
Þegar það keyrði úr hófi hér um mitt sumar og ég var orðin dáldið þreytt á að hlusta á "Heims um ból" "Juleball" og "Ég sá mömmu kyssa jólasvein" bæði á dönsku og íslensku ........ sagði ég STOPP, hingað og ekki lengra!!!! Þau gætu fengið að hlusta á jólalög þegar nær drægi jólum .......... og hafði ég þá í huga kannski bara eins og þeir í útvarpinu ........ byrja ekkert að spila þau fyrr en 1. desember!!!
Ég útskýrði það með þeim orðum að maður hlustaði ekki á jólalög á sumrin ....... heldur á veturnar og þá rétt fyrir jólin!!!
Þar sem börnin mín hlakka óendanlega til jólanna og tala endalaust og stanslaust um að þau séu nú alveg að koma ...... þá er búið að vera að bíða eftir því ....... og þá sérstaklega einkadóttirin ....... og án þess að ég hefði hugmynd um það ........ að það kæmi vetur og hún gæti farið að spila jólalög með góðfúslegu leyfi móður sinnar!!!!
Hún komst sem sagt að því í gær, sunnudag, að það væri kominn vetur ........ að fyrsti vetrardagur hefði verið um þessa helgi!!!
Síðan eru búin að hljóma jólalög um alla íbúð ....... henni til mikillar gleði og ánægju!!!! ........ velur hún helst að setja á "fóninn" dönsk jólalög eins og "Juleball, juleball i Nisseland ....... ", "Paa loftet sidder nissen...." "Höjt paa tæets grönne top......." osfrv.
Hún er búin að skreyta herbergið sitt með því jólaskrauti sem hún komst hjálparlaust yfir, eða það er að segja því jólaskrauti sem hún fann án þess að spyrja móður sína um hjálp ........ því hún er nú nokkuð klók, vissi að móðir hennar hefði ekki farið í að ná í jólaskrautskassa til að hún gæti farið að skreyta í herberginu sínu ....... eða bara á heimilinu!!!! Móðirin hefði ekki tekið þátt í því ...... svo hún bjargaði sér bara sjálf!!!!
Það jólaskraut sem er aðgengilegt á heimilinu allan ársins hring eru jólasveinahúfur!!!! ........ og við eigum nokkuð margar!!!!
Þannig að nú hljómar úr herberginu hennar jólalög fyrir allan peninginn og það hanga jólasveinahúfur um allt herbergi!!!!
Hún er líka búin að búa til skilti á hurðina hjá sér sem á stendur: "Komdu í Jólaskap" og "Jól, jól, JÓL og Jól".
Svo segir fólk að IKEA sé snemma í því!!!!!
Mikið er ég fegin að vera í vinnu ........ þar þarf ég í það minnsta ekki að hlusta á jólalögin fyrr en 1. desember!!!!!

Frú Megabeib

hlakka til að fara að hlusta á jólalög og skreyta og baka og pakka og........
Jólakveðja
xoxo
Ég skil þig nú mjög vel, finnst allt of snemmt að hlusta á jólalög í október..... mér hættir til að vera búin með allt jólaskapið lööööngu fyrir jól, en ég er nú ekki jafn mikið jólabarn og sumir aðrir !!
Jóla Hvað ?
pínku ponslan