Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Það er allt í lagi að gráta!!!! - my ass!!!!

15. desember 2009 klukkan 19:08
Ég ER töffari!!!!

Finnst einhvernveginn auðveldara að takast á við lífið og tilveruna ef ég rígheld mér bara í það að vera TÖFFARI ........ finnst það gott .......... það er eitthvað sem ég kann!!!

Þegar maður er Töffari þá er maður heldur ekkert að væla neitt........ bítur bara á jaxlinn og heldur áfram með lífið og tilveruna ......... hvort maður er glaður og hamingjusamur, ætla ég nú alveg að láta liggja á milli hluta...... þar sem ég er það hvort sem er ekki þessa dagana ........ þá er fínt að vera bara Töffari!!!

Töffarar gráta heldur ekki!!! ...... það er ekki TÖFF!!!!

En margir segja nú að það sé allt í lagi að gráta ...... og eflaust er það líka allt í lagi ........ mér finnst það bara vont!!!!

Mér finnst vont að gráta og horfa á börnin mín með hræðslusvip á andlitinu vitandi ekki sitt rjúkandi ráð hvað þau eigi að gera til þess að láta mömmu sinni líða betur ........ þau geta ekki gert nokkurn skapaðan hlut hvort sem er.

Mér finnst vont að gráta þegar ég er alein ........ þá verð ég svo innantóm og ómöguleg og vantar ennþá meira að maðurinn minn sé hérna hjá mér til að taka utan um mig og knúsa mig og segja mér að allt verði í lagi.

Mér finnst vont að gráta þegar ég er stödd í búð eða öðrum mannamótum ........ þoli ómögulega þessa athygli sem það vekur þegar flóðgáttir augnanna opnast og tárin byrja að hrynja niður kinnarnar ....... fólkinu í kringum mig líður ekkert sérlega vel og mér líður þá mun verr þegar ég læt öðru fólki líða illa!!

Ég hef oft gripið til þess ráðs að brynna nokkrum músum þar sem ég hef setið ein í bílnum, vel falin á bakvið sólgleraugun og maskarinn nær ekki að fljóta með niður kinnarnar ........... verst að þá er ég oftast á leiðinni að hitta fólk og þá er nú ekki gott að vera nýbúin að gráta .......... því þá líður fólki illa og veit ekki hvernig það á að vera og þá líður mér illa og það er vont!!!

Það var sagt við mig að þetta sem ég væri að ganga í gegnum, þ.e. að missa Ása minn svona og takast á við sorgina sem því fylgir, væri ekki atburður, heldur ferli. Hversu langt ferlið væri misjafnt eftir einstaklingum og vel gæti farið svo að þetta væri lengra ferli en ég gerði mér í hugarlund!!! Ég vildi óska þess að þetta væri bara atburður ........ svo þetta gæti bara verið búið ....... svona eins og jólin ....... bara klára dæmið og halda áfram ...... eins og alvörunni Töffari!!!!

Þeir sem segja að það sé hollt og gott að gráta hafa pottþétt ekki tekið með í dæmið að daginn eftir óhemju mikinn grát þá vilja augnhvarmarnir gjarnan bólgna ansi mikið upp ........ allavega mínir ..... og verð ég að segja að ég lít kannski ekki sem best út eftir slíkar grátkviður!!!!

Í gær fór tappinn úr og ég grét og grét og grét ....... hef ekki grátið svona mikið síðan ég veit ekki hvenær ....... gat bara ekki hamið mig ........ Töffarinn yfirgaf mig og ég grét!!!! ........ ég grét allt gærkvöldið, og nánast meira og minna alla nóttina líka ...... vaknaði í það minnsta með tárvot augun í morgun ....... og stokkbólgin líka!!!!

........ og svo þurfti ég að fara í vinnuna ......... svona útlítandi!!!! ..... ekki séns að ég hefði getað skellt á mig maskara til að fela bólgna hvarmana, ég ætla nú ekki einusinni að ræða baugun ......... átti ég þá bara að sleppa því að fara í vinnuna??? ....... og eyða deginum í það að gráta meira ......... og verða þá ennþá verr útlítandi á morgun????

Ég beit á jaxlinn, mætti í vinnuna ómáluð og bólgin, samstarfsfólk mitt fékk að sjálfsögðu sjokk ...... ég tjáði mig ekki frekar um málið ......... var bara ómáluð og bólgin í vinnunni ........ en hætt að gráta!!!!

Þannig að þeir sem segja að það sé gott að gráta og það sé leyfilegt að gera það þegar þess gerist þörf ........ þeim ætla ég bara að gefa langt nef ..... því þeir hafa POTTÞÉTT ekki þurft að fara í vinnuna daginn eftir og hitta fullt af fólki og þurft að útskýra bólgin augu og baugu!!!!!

Þá er miklu betra að vera bara Töffari!!!!
Frú Megabeib
Anna fimma skrifar ...
 
Þú ERT töffari, og flottustu töffararnir gráta STUNDUM...... og þeim finnst það ekkert flott, en hinum í kringum þá finnst þeir flottir..... því þá sést að þeir hafa TILFINNINGAR og eru mannlegir eins og við hin, sem erum kannski að reyna að vera töffarar líka. Svo er líka NAUÐSYNLEGT
16. desember 2009 klukkan 12:26
Anna fimma skrifar ...
 
ÚPS .... eitthvað fór þetta frá mér áður en ég var búin að klára að segja það sem ég ætlaði að segja..... en það er kannski ekkert skrítið, ég tala svo mikið !!
en.... það er líka NAUÐSYNLEGT að fá útrás , svona stundum. Þetta ferli (svindl, svik og prettir ) hefur bara sinn tíma og því miður er ekki hægt að hraðspóla yfir það sama hvað maður vill. Sumir fá erfiðari verkefni en aðrir, hvers vegna veit ég ekki, en þitt verkefni ER erfitt, MJÖG erfitt og til að takast á við það þarftu að leyfa þér að nota alla hjálp og hjálpartæki sem þú hefur tök á.
Ég hélt að ég væri að gráta nóg fyrir þig, en eitthvað hefur það nú klikkað hjá mér síðustu vikur, og nú er ég fúl út í mig fyrir að hafa ekki hringt í þig á mánudaginn. Þú hefðir kannski ekkert viljað tala við mig þá, eða grenjað með mér....... ég veit ekki.
En málið er þetta, þú ert töffari, nó matter what......... en ég..... ég sem væli í tíma og ótíma, er NAGLI, svo einfalt er það
kæmpekram
16. desember 2009 klukkan 12:38
Auður Lísa skrifar ...
 
Knús til þín..... ég er líka Töffari og skil þig mjög vel...
21. desember 2009 klukkan 08:55
Jóna Á. GísladóttirÆi ég veit ekkert hvað ég á að segja. nema kannski það að þú átt að gráta ef þú færð útrás við það. En ef þér líður bara illa við það, á meðan og á eftir, ekki þá láta neinn segja þé að þú EIGIR að gráta. Það er engin regla til um þessa hluti. Gerðu hlutina á þínum hraða á þinn hátt og með þinni hentisemi. Kapíss!?
22. desember 2009 klukkan 22:28
Guðrún Þorleifs skrifar ...
 
Linda mín, grátin eða ógrátin, þá ertu bara yndisleg.
27. desember 2009 klukkan 18:38

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar