Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Þetta er bara hreinlega karlmannsverk!!!!

03. janúar 2010 klukkan 17:12
Það eru sumir hlutir sem eru bara "mans thing" og aðrir hlutir sem eru bara "womans thing" ...... þannig er það bara!!! Sama hvernig öllum rauðsokkum heimsins líður þá er þetta nú eiginlega bara staðreind...... eða allavega í mínum huga.

Sumir hlutir eru fyrir hvort kynið sem er og er þá sá sem hæfari er til starfsins oftar en ekki með það á sínum "to do" lista.

Heima hjá mér var þetta ekkert voðalega flókið ...... hérna einusinni það er að segja ...... tók náttúrulega nokkur ár í þróun til að finna út hvaða "things" væru "mínir" og hvaða hlutir væru "Ása". Að sjálfsögðu gekk þetta árekstralaust fyrir sig ...... hmmmm eða ekki ........ að sjálfsögðu voru árekstrar í þessu eins og svo mörgu öðru en við vorum nú algerlega búin að koma þessu í fastar þægilegar skorður og leið okkur líka svona stórkostlega vel með fyrirkomulagið okkar!!!!

Svo ofan á það að vera sviptur manni, félaga, föður og vini þá fór hinn helmingurinn sem sá um rekstur heimilisins líka ....... þannig að allir hlutir sem voru "Ása" hlutir urðu allt í einu "mínir! hlutir ....... frekar pirrandi ..... svona ofan á allt annað!!!!

Einn af "Ása" hlutum var að þvo bílinn ........ enda er það án nokkurs vafa í mínum huga "mans thing"!!!!
Þannig að þrátt fyrir að það séu rúm tvö ár síðan Ási þvoði bílinn okkar síðast ...... þá er ég ekki búin að átta mig á því að ég þarf að gera það ...... ef bíllinn á að vera þrifinn á annað borð!!!!

Ég man hreinlega ekki hvenær ég þreif bílinn seinast ....... það er svo langt síðan!!!! ....... en varð þrátt fyrir einlægan mótvilja minn að fara og þvo bílinn, því ég var hætt að sjá út um framrúðuna ...... þar sem ég er bara með eina rúðuþurrku!!!! 

Skutlaðist ég á eina af þessum fínu þvottastöðum þar sem maður gerir þetta sjálfur með slöngum, kústum og blæstri og já bara nefndu það!!! ......... mikið leiðist mér að þvo bílinn ....... en ekkert við því að gera ef ég ætla að sleppa því að lenda í árekstrum með því að geta séð útum framrúðuna!!!!

Þarna stóð frúin og skutlaði tjöruleysi, háþrýstiþvætti, bleikri sápu og bóni á bílinn undir öruggri stjórn einkadótturinnar ..... í háhæluðum skóm og pels!!!! Legg ekki meira á þig!!!!  

Efa ég það ekki að þeir sem hafa litið inn í bás nr. 4 í dag hafa glott vel út í annað þegar þeir sáu frúna tipla um á háu hælunum í pelsinum við að þvo bílinn, reyndar þann mesta kattarþvott sem þessi elska hefur nokkurntíman fengið!!!! ..... en ég sé útum framrúðuna!!!!

Næst ætla ég bara að keyra inná einhverja svona sjálfvirka þvottastöð og láta einhverja sjá um þetta fyrir mig!!!!

Það vantar rúðupiss núna ........ ég er svo fegin að það get ég fengið á næstu bensínstöð, þar sem það fylgir eitt stk. maður sem setur það á bílinn fyrir mig ...... því það er pottþétt "mans thing" að setja rúðupiss á bílinn!!!!

Þetta verður gert á morgun ....... það er að segja ef bíllinn verður ekki það frosinn að ég hreinlega komist ekki inn í hann!!!!!
Frú Megabeib
Gudrun Th skrifar ...
 
Heppin ad vera á Ísl. med rúdupissmálid. Hér eru engir kallar á bensínstødunum sem geta reddad konu í naud, enda er rúduvøkvinn svo mikid ódýrari í BILKA en á kallalausubensínstødvunum ;o)
Kvedja úr endalausri snjókomu . . .
04. janúar 2010 klukkan 08:38
Gunnar H skrifar ...
 
Sendu bara krakkana með bílinn næst og við reddum þessu það skiptið. Með hina rúðu þurkuna að þá er hún í vinnslu.
04. janúar 2010 klukkan 10:36
Jóna Á. GísladóttirÉg er sammála þér. Ég er alveg svakalega sammála þér... sumt er bara karlmannsverk (og annað fer betur í kvenmannshöndum). Að þrífa bíl er svo sannarlega eitt af því sem ég flokka undir karlmannsverk, einfaldlega vegna þess að mér finnst að eiginmenn (kærastar, hjásvæfur) eigi að vera huggulegir við konurnar sínar. Maðurinn minn er nú ekkert endilega á sama máli þarna. Honum finnst minn bíll bara vera mitt mál. Enda er bíllinn minn alltaf grúúúútskítugur (líka hans hehe).

Ég get vel ímyndað mér að það sé erfitt að standa frammi fyrir því að skyndilega er ''allt þitt mál''. Og ég veit að það er ekki erfitt út af því að þér finnist of mikið að gera, heldur hitt að í hvert sinn sem þú gerir eitthvað sem var ''hans mál'' hlýtur að vera áminning um að allt er breytt.

Gleðileg og heillaríkt nýtt ár til þín mín kæra. Megi 2010 verða þér og þínum happadrjúgt og gæfuríkt skref fram á við.
04. janúar 2010 klukkan 10:48
Anna fimma skrifar ...
 
Hæ, sætust ;)

Mikið skil ég þig vel, og mikið er ég sammála þér. Og ég verð að segja að þú opnar augu mín fyrir hvað maður verður oft ómeðvitaður um hvað maður hefur það gott.... ég hef ekki mikið verið að pæla í þessum verkaskiptingum, fatta alltí einu að það eru mýmörg dæmi um þær í mínu hjónabandi. Og ég hef tekið meðvitaða ákvörðun um að taka eftir þeim og þakka fyrir þær á meðan ég get...
En ég er að velta fyrir mér - Var ekki IKEA að auglýsa að það fylgdi maður með baðherbergjunum frá þeim ? Nú, ef að "sá gæji" er ekki góður í "hans verkum", þá getur þú kannski kíkt í Bílanaust eða einhverja slíka "kallabúð" og athugað hvað er í boði þar !!!!

kveðja
A5
05. janúar 2010 klukkan 13:10
Frú Megabeib skrifar ...
Frú MegabeibOOOoooohhhh þið eruð yndisleg!!!
Takk fyrir að kvitta!!!!

@ Guðrún: Verst að ég er hætt að keyra inná bensínstöðvarnar og láta bara einhvern sjá um að fylla á bensínið fyrir mig ..... því það er líka algerlega karlmannsverk, að sjá um að það sé alltaf nóg bensín á bílnum!!!!!

@ Gunnar: börnin eru ekki ennþá komin með bílpróf ...... annars væri þetta dáldið gott plan!!!! ....... er líka dáldið að velta því fyrir mér hvernig ég kæmist til baka ef ég skutlaði nú bara börnunum og bílnum til þín!!!! Það er dáldið flókið you see!!!!

@ Jóna: Takk fyrir ..... ég er alveg með það á hreinu að árið 2010 verður stórkostlega skemmtilegt og happadrjúgt!!! ....... og bara "right back at you!" mín kæra.

@ Anna: Set þetta tótallý á planið ........ og ef það kemur einhver undarlegur svipur á gæjana þá segi ég bara: "já en Anna sagði mér að gera þetta"!!!!!!

Var ég búin að nefna það???? TAKK fyrir að kvitta!!!!!
07. janúar 2010 klukkan 18:06

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar