Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Að deila ..........

03. febrúar 2010 klukkan 22:16
Mikið sakna ég þess að hafa ekki einhvern til að deila hlutum með!!!

Einföldum, hversdagslegum, skemmtilegum, sorglegum hlutum ....... bara deila.

Einhvern sem ekki þarf að setja inn í málin, þekkir mig frá upphafi til enda, getur hlegið með mér, grátið með mér, sungið með mér og já bara spjallað við mig um allt og ekkert. Dáðst að börnunum mínum með mér, farið yfir daginn með mér, farið með mér í innkaupaleiðangur í hina ofur leiðinlegu búðir!!!

Deila með birgðunum og erfiðu hlutunum, flóknu hlutunum.

Held að það sé manninum eðlislægt að vilja deila hlutum með öðrum ........ kannski kökusneið eða jafnvel síðasta rolló molanum ........ og ég sakna þess alveg enalaust!!!!

Ekki það að það eru fullt af eyrum útum allan bæ sem eru tilbúin til að hlusta á mig og deila með mér ....... en það er bara ekki það sama!!!!

Eins og þegar börnin mín gera eitthvað extra skemmtilegt eða það koma rosalega flottar einkunnir frá þeim, eða þau standa sig sérstaklega vel í íþróttunum eða þegar þau fara á skólaball og mamman stendur rígmontin yfir myndarlegu börnunum sínum ....... vantar einhvern til að deila þessu með!!!! ....... það er nú takmarkað hversu mikið fólk nennir að hlusta á mig dásama börnin mín!!! ....... sem ég skil ósköp vel ........

En það þýðir víst lítið að fárviðrast yfir því ....... þetta er tímabil sem er búið og gert og kemur ekki aftur ........ þar af leiðandi er ég líka alveg einstaklega þakklát fyrir að hafa fengið að vera þeirrar ánægju aðnjótandi að hafa haft einhvern til að deila með í svona mörg ár!!!!

......... en verð að viðurkenna það að ég hefði svo gjarnan viljað hafa Ása minn hjá mér til að deila með mér stoltinu yfir flotta stráknum okkar sem skellti sér á skólaball áðan .......

....... eða bara deila með mér norðurljósunum í gærkvöldi ........ ekkert merkilegra en það!!!!
Frú Megabeib
Anna fimma skrifar ...
 
Ó ellllsku vinkonan mín, mikið ofsalega skil ég þig vel. Þetta skiptir svo miklu máli, allt fær svo miklu dýpri merkingu og tilgang. Einhver sagði einhvern tímann; "það er betra að elska og missa, heldur en að hafa aldrei elskað" ..... ég held að það sé mikið til í þessu, þó svo að söknuðurinn sér oftar en ekki óbærilegur, þá er svo margar fallegar og góðar minningar, sem að gera okkur að því sem við erum í dag. Það er allt öðruvísi að segja frá og útskýra atburði eftir á, jafnvel þó að eyrun séu góð, þá kemur það aldrei að fullu í stað þess að deila stundinni með dýrmætum vini, nákvæmlega þegar hún á sér stað.
En það er sko alveg rétt hjá þér að þú átt sko flottan strák, hann á ekki sinn líkan.......... og þú reyndar líka :) flotta, dropp dedd gordjöss vinkonan mín :)

Norðurljósakveðjur

moi :*
04. febrúar 2010 klukkan 22:38
Jóna Á. GísladóttirNú ætla ég bara að skammast mín og fara og kaffæra Bretann í einhverjum frásögnum sem hann hefur engan áhuga á, en hlustar (eða þykist gera það) bara fyrir mig.
Knús á þig kæra blogg- og fésbókarvinkona
08. febrúar 2010 klukkan 21:46

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar