Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Dagur í lífi konu!!!

22. febrúar 2010 klukkan 22:12
Fór í dag með vinnubílinn uppá vinnuverkstæði ..... það var verið að laga hann fyrir mig ........ það er klárlega karlmannsverk ...... og svo þurfti líka að þvo hann ........ og það er líka klárlega karlmannsverk!!!!

Alveg eins og fara út með ruslið og skipta um ljósaperur og hlýja köldum tám!!!!

Kvenmannsverk er t.d. að fara í bæinn og kaupa föt ..... á alla fjölskylduna ........ feður jafnt sem börn!!! ...... og að sjálfsögðu á sjálfa sig í leiðinni!!! Allar afmælisgjafir sem gefnar eru innan og utan fjölskyldunnar. Halda utan um heimboð og aðra stórviðburði í lífi fjölskyldunnar sem og mestöll innkaup heimilisins þ.e. eins og húsgögn og velja rétta parkettið og þessháttar.

Listinn er að sjálfsögðu á engan hátt tæmandi en hægt er að segja að flest allt annað er samvinnuverkefni karla og kvenna.

Það er ekki að því að spyrja að miklar umræður spunnust þegar ég var búin að láta í ljós þessa yfirlýsingu mína að þrífa bílinn væri karlmannsverk!!!!

Ég get ekki að því gert en mér finnst bara gaman að því að fá að vera kona!!!!

Þrátt fyrir að það geti nú farið í taugarnar á mér að það skuli vera gerðar miklu meiri kröfur til kvenna en karla ..... og ég ætli að vera karlmaður í næsta lífi ....... þá er fínt að vera kona og það er fínt að það skuli vera til karlmannsverk og kvenmannsverk!!!!

Mér finnst t.d. ekkert leiðinlegt þegar það eru opnaðar fyrir mér hurðir, eða mér hleypt á undan í gegnum sjálvirkar hurðir. Eða víni eða vatni bætt í glasið mitt þegar það er farið að tæmast án þess að ég þurfi að biðja um það. Mér finnst það dáldið æði ..... þó svo að valkyrjan í mér eigi erfitt með að láta það eftir ....... en ég er að æfa mig og það gengur bara nokkuð vel ..... reyndar eru fáir karlmenn til að æfa sig á því þeir eru alltaf með þetta sítuð "já en þetta vilduð þið, rauðsokkurnar"!!!! ..... nei reyndar ekki ...... ég bað aldrei um að það væri komið fram við mig eins karlmann ...... en styð rauðsokkurnar heils hugar í mörgu sem þær áunnu eins og þeim mannréttindum að fá að kjósa!!!!

Þegar ég svo bakkaði bílnum út frá vinnunni, litu karlkyns vinnufélagarnir hver á annan og sögðu: "týpísk kona!!" .... voru eitthvað ekki alveg nógu sáttir við aksturslag frúarinnar ....... ég rúllaði rúðunni lengra niður og stakk hausnum út og brosti til þeirra allan hringinn og kallaði til þeirra:

"Já það er FRÁBÆRT að vera kona, and I´m loving it!!!"
Frú Megabeib
Anna fimma skrifar ...
 
Að sjálfsögðu þarf að hafa jafnvægi á þessu öllu og körlum þykir nú ekki leiðinlegt að vera dálitlir riddarar og bjarga konum úr vandræðum.... ég held að það sé almennt fast í eðli þeirra :) Og ég held að vel flestum karlmönnum þyki meira sexý þegar kona er kvenleg og vel til höfð, heldur en kona sem er eins og trukkabílstjóri, með smurolíu í hári og andliti !!!
Þú og ég erum búnar með þann pakka, að þurfa að sanna okkur eitthvað :) Nú er bara að brosa og njóta :) þess að vera dropp dedd gorjöss KONA.
22. febrúar 2010 klukkan 23:24
Frú Megabeib skrifar ...
Frú MegabeibEinmitt Annan mín ........ búnar með þann pakka!!!! ........ og þarf EKKERT að fara þangað aftur!!!!

Takk mín kæra fyrir að kvitta ........ það er svo gaman!!!!
23. febrúar 2010 klukkan 20:10
dagny sylvia skrifar ...
 
veistu ad eg er ad vinna á vinnustað þar sem dyrnar eru opnaðar fyrir mér, mér er hleypt fyrst í gegn og ég fæ betri stólinn... oft staðið upp fyrir mér!!! ég elska þetta!!! þetta er í fyrsta skipti á ævinni sem ég upplifi svona!!! og mér finnst ég prinsessa :)
24. febrúar 2010 klukkan 09:10
Frú Megabeib skrifar ...
Frú MegabeibNákvæmlega Dagný! Þetta er svo dásamlegt þegar komið er fram við mann eins og konu!
Og ég get alveg sagt þér að ég held að það séu nánast allir karlmenn sem gera það nema íslenskir!!!!!
24. febrúar 2010 klukkan 21:18

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar