Hraðamet fyrir allan peninginn!!!!
01. mars 2010 klukkan 00:05
Fór í leikhús í gær ........ eflaust ekki frásögu færandi en ........ ætla nú samt að segja frá því ....... eða kannski mest aðdragandanum að blessaðri leikhúsferðinni!!!!
Það var ákveðið löööööngu fyrir jól að förinni væri heitið í leikhús. Búið að panta miða og alles ...... og var það á vegum einhvers annars en mín ...... sem betur fer annars væri eflaust ekki búið að panta miðana ennþá!!!!
Mér var falið það hlutverk að ná í miðana. ...... sem ég taldi vera létt verk og löðurmannlegt og það væri sko eitthvað sem ég væri ekki lengi að hrista fram úr annarri erminni!!!
Í fyrsta lagi þá setti þessi leikhúsferð allt úr skorðum í hausnum á mér!!!
Fyrst misreiknaði ég mig um heila helgi, svo gleymdi ég að ná í miðana á umtöluðum degi ...... en náði samt að ná í þá svo af leikhúsferðinni gæti nú orðið!!!
Þar sem við vorum að fara nokkur saman var ég svo lánsöm að það var boðist til að koma og ná í mig ...... sem ég að sjálfsögðu þáði með þökkum ....... þar sem bílinn minn er ennþá grafinn í fannfergi og er ekki víst að til hans spyrjist fyrr en eftir maaaaaaaarga daga!!!!
Ég tilkynnti að ég yrði tilbúin klukkan hálf sjö! Og var það svo einlægur ásetningur minn að vera tilbúin þá!!!
En einhverju sló saman í hausnum á mér, svo að þegar klukkan sýndi hálf sjö þá hringdi síminn og mér var tilkynnt að farið mitt væri bara rétt ókomið, stóð ég á handklæðinu einu klæða með rennblautt hár og maskara niður á kinnar!!!! Var ég á engan hátt undir þetta búin, enda bara búin að vera í dúllerý gírnum ....... ég meina ég var að fara í leikhús og ætlaði sko að vera GORDJÖSS!!!
Án þess að lasta einn eða neinn, verð ég að segja að það var sett hraðamet hér á heimilinu í að finna föt, og þá meina ég föt frá innstu flík til þeirrar ystu!!!! Ásamt því að hengja þær utan á minn fagra kropp!!!
Enginn tími var til að ákveða hvort betra væri að fara í þessum skóm eða hinum, og alls enginn tími til að finna út hvaða taska færi best við átfittið!!!!
Þegar fylgdarliðið bankaði uppá var ég nánast tilbúin, átti bara eftir að skella mér í kápuna, (hefði sko ekki getað þetta án hjálpar einkadótturinnar!), og ef ég hefði látið vera að nefna ástand mitt þegar ég tók við símtalinu ........ þá hefði sko engan grunað neitt!!!!
Finnst mér núna að það eigi að vera til sérstök íþróttagrein þar sem keppt er um hver er fljótastur að hafa sig til og vera samt sem áður, dropp dedd gordjöss ....... og svo á að keppa í þessari grein á Olympíuleikunum ....... því ég er sannfærð um að það eru margar konur sem geta tekið þátt ....... því konur eru náttla snillingar!!!!
....... en það yrði bara einn sigurvegari ...... og það væri ég!!!!

Frú Megabeib

En ég ætla að leggja það til við Olympíunefndina að það eigi að keppa í húsmæðrafræðum ........ þú myndir vera sigurvegari þar ........ afhverju??? því þú hefðir mig sem þjálfara!!!! hehehehheeee........ við yrðum góðar saman!!!!