Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Over analisering!!!!!

01. mars 2010 klukkan 22:49

Manstu eftir því þegar að það var ekki hægt að tala öðru vísi en snúa útúr setningunum sem þú sagðir ..... eða snúa orðunum við eða brengla setninguna þannig að hún var alveg ferlega fyndin???

Manstu ekki eftir því??? Nú þá ertu pottþétt fædd/ur eftir 1975!!!!!

En nú er ég orðin svo gömul að ég man ekki eftir nema tveimur frösum ....... og við skulum átta okkur á því að þeir voru sko mun fleiri!!!!

Það var aldrei sagt neitt annað en: rúða upp skrúfuna og svo fékk maður sér begg og eikon!!! Í dag eru þeir búnir að komast að því að þetta er einhverskonar sjúkdómur ........ svona eins og RDHD eða RSSR eða DHRMSN eða hvað þeir heita nú allir þessir flottu skammstöfuðu sjúkdómar sem eru til í dag ...... þegar ég var að alast upp þá voru nú bara villingar ...... engir ofvirkir eða með athyglisbrest eða þannig ....... heldur voru þetta hreinir og klárir villingar ........ og voru þeir pottþétt allir rauðhærðir!!!! Það er allavega svoleiðis í minningunni!!!!

Í dag væru þessir rauðhærðu villingar eflaust greindir ofvirkir þessar elllllskur ......... og eru pottþétt ekki allir rauðhærðir!!!!

En það er nú hægt að ofgreina þetta allt saman ....... ég meina ef viljinn er fyrir hendi!!!!

En við rúðuðum sko bara upp skrúfuna okkur til gamans á meðan við borðuðum begg og eikon!!!!

Það er meira að segja búið að komast að því að lyklaborðin við tölvurnar innihalda allt að 30.000 sýkla!!! ........ og að lyklaborð sem konur nota eru mun sýklavæddari en karlalyklaborð ..... því konum finnst víst betra að sitja við tölvuna og snæða en körlum ....... en skil þetta samt ekki alveg, þar sem konur eru nú duglegri við að þvo sér um hendurnar, t.d. eftir klósettferðir ....... þeir eru sko líka búnir að rannsaka það!!!!

....... spurning hvort að gömlu góðu ritvélararnar hafi nokkurníman verið teknar í sýklapróf!!!! ........ og hver ætli niðurstaðan úr því prófi hefði orðið ......... ég meina það voru nú bara konur sem notuðu ritvélar hérna "in the good old days"!!!!!!

Ætla að fara að sofa og reyna að gleyma því að ég hafi verið að káfa á 30.000 sýklum á meðan á þessu pikki stóð og reyna að rifja upp einhverja fleiri góða frasa frá unglingsárunum!!!!

Gúten næt!!!!

Frú Megabeib
Anna fimma skrifar ...
 
He, he, eh,.... ég er sko fædd fyrir ´75 ...... því að ég man þetta allt eins og það hefði verið í gær - og veistu , þetta er enn að há mér !! og svo er ég að komast að því með alls konar spurningalistum að ég er stórlega gölluð.... ég hefði slegið greiningarmet ef það hefði verið hefð á því greina börn í denn. Ég er reyndar hætt að drekka kitla lók, en plís feysur eru nú dálítið til vandræða !!!

Svo þegar ég las þetta með sýklana.... þá var ég akkúrat að stinga upp í mig bita !! hann stóð næstum í mér, en þegar ég fattaði að þetta voru bara sýklar frá mér, þar sem ég er sú eina sem notar tölvuna mína, þá slakaði ég á og teygði mig í sprittbrúsann ;D

kv. frá þessari ofur sýklahræddu

"nei, nei, nei..... er ekki allt í lagi hjá þér ? Þú notar EKKI borðtusku til að þurrka upp úr GÓLFINU !!!!!
04. mars 2010 klukkan 10:54
dagny sylvia skrifar ...
 
man líka eftir þessu, en man ekki eftir neinni setningu í augnablikunu (var líka að vakna eftir næturvakt). en við höfum verið rosalega dugleg við að snúa nöfnum við... og hafa eftirfarandi pör fengið varanlega nöfn ;) Rósi og Hódda, Sóas og Bonja og Donnis og Derte :) Þau vita það bara ekki ;)
04. mars 2010 klukkan 14:23
Frú Megabeib skrifar ...
Frú Megabeibhehehehe .......... skellt nú bara uppúr Anna mín!!! Þú ert fyndin!!!! ......... og þetta með borðtuskuna gleymist seint!!! MJÖG seint!!!!

hehehe kannast við þessi pör Dagný ....... er meira að segja með eitt í viðbót ..... Pína og Stalli ........ en kalla þau stundum Palestína ......heheheheee ....... og þau vita ekki af því heldur!!!!!
04. mars 2010 klukkan 17:48

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar