Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Einungis 15 mínútur á dag!!!! ...... hvað er það????

04. mars 2010 klukkan 18:05
Það er alveg furðulegt hvernig mér tekst ekki að finna 15 mínútur á dag til að hlusta á einkadótturina lesa upphátt fyrir mig!!!
Skyndilega eru alltaf þessir dagar búnir og hún ekki búin að lesa og það er orðið of seint því hún á að fara að sofa!!!!

En þegar ég hugsa um það get ég ekki séð hversu erfitt það geti verið að taka frá 15 mínútur svo barnið mitt geti orðið ennþá betri í lestri ....... hún er nebblega lesblind og Á að lesa upphátt á hverjum degi í 15 mínútur!!!!

Held að þetta sé spurning um forgangsröðun ........ mér finnst SVO leiðinlegt að hlusta á hana lesa....... nenni því bara ómögulega....... ég veit að maður á ekki að segja þetta upphátt ...... hvað þá skrifa það niður ........ en ég finn mér ALLTAF eitthvað annað til að gera en hlusta á hana ........ því ég tek alveg út fyrir það!!!!

Kennarinn hennar er nú búin að uppgötva það að hún er ekki látin lesa mikið heima og setti hana (reyndar ásamt einhverjum fleiri börnum ....... kannski er það ekki bara hún sem á svona vonlausa móður!!!) í eitthvað lestrarátak ...... og ekki nóg með það að ég þurfi núna að hlusta á hana lesa í 15 mínútur, þá þarf hún að gera einhver verkefni úr lesna hlutanum sem taka endalausann tíma finnst mér!!!! ......... er SVO ekki að nenna þessu ....... líður svona eins og þegar hádegisfréttirnar voru sagðar á rás 1 á sunnudögum eða þegar þessi leiðindar fótbolti rúllaði á skjánum á laugardögum ...... verð alveg tóm inní mér og langar mest að leggjast niður og sofa!!!! ...... er þetta í lagi????

En nú er ég búin að teygja lopann nógu lengi ........ VERÐ að fara og hlusta á einkadótturina lesa ....... við skuldum nefnilega 3 daga!!!! ........ legg ekki meira á þig!!!!!
Frú Megabeib
Anna Aðalpæja skrifar ...
Anna Aðalpæjamikið svakalega þekki ég þetta vel líka..... þá er bara að taka fram handavinnuna og reyna að anda rólega á meðan, :D
Eða bara skipuleggja sig betur !!!!!!
04. mars 2010 klukkan 20:22
Frú Megabeib skrifar ...
Frú Megabeib....... held að ég verði að skipuleggja mig betur ........ get nefnilega ekki gert neitt annað en hlusta og horfa á hana lesa........ verð að FYLGJAST með hverju orði sem hún les!!!! Þetta er sko ekki að gera sig ........ en þarf bara að koma á skipulagskúrsus hjá þér mín kæra!!!
04. mars 2010 klukkan 22:44

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar