Taka til ....... eða ekki???
&tEr að taka til í skápnum í svefnherberginu ....... hvers vegna í veröldinni safnar maður að sér undarlegustu hlutum???? ..... eða kannski gera það ekki allir ...... bara ég!!!
.... og að sjálfsögðu nenni ég ekki að taka til þarna heldur finnst miklu skinsamlegra að skrifa bloggfærslu....... þó svo að ég viti ekkert um hvað hún eigi að vera.......
Jú ........ er búin að komast að því að mig vantar nauðsynlega fleiri kjóla og flottar peysur, einsog einn pels og ..... nei bara að jóka!!! .... skil ekki hvernig mér getur alltaf fundist að ég eigi ekki nein föt .... þegar ég finn ekki einusinni nein föt í skápnum, því hann er yfirfullur af fötum!!!!
Þetta er eitt af leyndardómum lífsins væntanlega!!!???
En tók ákvörðun um það fyrir nokkru að áður en ég væri tilbúin til að hleypa nýjum karlmanni inn í líf mitt, þá horn;yrfti ég að taka til í geymslum (já er með tvær plús hluta úr bílskúr!!! ...... þetta er ekki alveg að gera sig!!!!), skápum og þessháttar hlutum, þar sem ég er alltaf á leiðinni að gera þetta en kem því aldrei í verk. Hef pottþétt ekki tíma til þess ef það myndi nú skyndilega skella á með að ég yrði skotin í einhverjum!!! ... fyrir utan það að ég held ég vildi ekki að neinn, sem rétt er að kynnast hinni frábæru mér, sæi inn í skápa og ofan í skúffur, hvað þá í geymslur heimilisins ...... held að það sé hreinlega skaðlegt fyrir utanaðkomandi!!!!
Ég er að sjálfsögðu búin að vera að draga fæturnar með að taka til ..... þó svo að ég viti að þetta er eitthvað sem nauðsynlegt er að gera ..... þetta er svo hreinsandi fyrir sálina ...... sama hvort nýr karlmaður stæði á tröppunum eða ekki!!!
En ...... held samt að þetta hafi dáldið með það að gera að HVAÐ á ég að gera ef það bankar eitt stk. hérna uppá??? ..... veit það nebblega ekki alveg ...... þessvegna er miklu betra að vera ekkert að taka til í þessum skápum ...... því þá er lítil hætta á því að ég hleypi neinum inn í líf mitt!!!!
...... eða hvað??? Hvar er eiginlega Fraud þegar maður þarf á honum að halda????

þú ert svvoooooo sæt ;D
vittu til .... þetta smellur allt saman þegar allt verður tilbúið til þess ;D
Vertu ekki að flækja hlutina að óþörfu, láttu þér bara líða vel.... tiltekin í sálinni , .... eða ekki :)
kv. A5
@ Auður Lísa: Ég veit það ...... er líka að vinna í því hægt og rólega!!! ...... það kemur allt á endanum vonandi!!!
@ Anna: He ehehe þú líka (Óli píka??) ..... fer í það að láta mér líða vel ...... er snarhætt að flækja hlutina ....... það tekur því ekki!!!!! .... eða hvað???