Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Einu sinni á ári!!!!

30. júní 2010 klukkan 23:43

Einusinni á ári þarf ég að fara til tannlæknis.

Mér leiðist það alltaf jafn mikið. Fer þangað með kvíðahnút í maganum.

Ógleðistilfinningin vellur upp í munninn á mér þegar ég finn lyktina þegar ég kem inn í anddyrið og magnast eftir því sem ég nálgast afgreiðsluna. Þetta stigversnar þegar búið er að "tékka mann inn" og ég sit í sófanum á biðstofunni og bíð eftir að röðin sé komin að mér. Sem betur fer eru á biðstofunni nokkuð gott úrval af blöðum, á misjöfnum aldri og með misskemmtilegar greinar að lesa, en þetta hjálpar mikið til við að dreyfa huganum áður en hið óhjákvæmilega skellur á ..... nafnið manns er kallað upp og maður er kallaður fyrir aftökunefndina!!!

Í stólinn sest ég og þegar hér er komið sögu er andardráttur minn orðinn óreglulegur, kvíðahnúturinn í maganum er orðinn nánast óbærilegur og hendurnar orðnar þvalar og munnurinn orðinn skraufþurr af því einu að vera sestur í tannlæknastólinn....... sem er mjög þægilegur annars, bara ef hann væri staðsettur einhversstaðar annarsstaðar ..... kannski bara í stofunni heima fyrir framan sjónvarpið!!!

Tannlæknirinn minn ..... eða reyndar tannlæknan mín, því hann tannlæknirinn er nebblega kona ..... er hin ágætis einstaklingur og hefur það eina unnið sér til ama að vera tannlæknir, og það tannlæknan mín!!! Aumingja konan!!!

Allt á stofunni er til fyrirmyndar og mjög vel í takt við nútímann. Stúlkurnar, bæði tannlæknan og aðstoðarkonan hennar skarta alltaf bleikum bolum og er munnvatnssvuntan (heitir það ekki það annars?) bleik og bandið sömuleiðis, drykkjarmálin eru bleik og vantar bara að það sé spiluð bleik músík, en held ég ekki að það sé hægt, svo þær halda sig bara við rás1 ..... ekki margir sem gera það í dag ...... og er það alveg hið mest afslappandi sem hugsast getur við þessar aðstæður. Það eina sem verulega er hægt að setja útá þetta bleika þema er að skóhlífarnar eru bláar!!! ..... passar það náttla enganveginn inn í þetta bleika fína, róandi umhverfi og hef ég nefnt það við þær, reyndar nefni það í hvert skipti sem ég kem, að þetta sé algert stílbrot, en mér skilst að það sé ekki hægt að fá bleikar skóhlífar, þær eru víst búnar að kanna það!

Ég opna munninn og tannlæknan skoðar, kroppar, pússar og potar, og á meðan ligg ég og þori varla að anda af ótta!!!

Þegar hún er búin kemur dómurinn, og ó mæ god hvað ég kvíði því ALLTAF jafn mikið!! En oftast, og já eiginlega alltaf segi r þessi ellllllska: "engin hola"!!!! .... Vá hvað ég verð glöð, hjartað í mér tekur alveg aukaslag af eintómri kæti!!!

Samt fer tungan í mér einn rannsóknar hring um góminn og ég þori alveg að spyrja:"en þetta? Hvað með þetta? Ertu viss um að þetta sé ekki neitt?" 

Tannlæknunni minni finnst þetta óþarfa pjatt í mér ..... þar sem ekkert þarf að gera við ...... en ég get ekki hamið mig þar sem ég er að springa af gleði og ánægju yfir holulausu tönnunum mínum.

Gleðin varir alveg þangað til ég þarf að borga fyrir heimsóknina ...... það var ekkert sem þurfti að gera við ...... en ég þarf samt að láta óhemju mikinn pening af hendi fyrir, að því að mér finnst vera alger óþarfi að rukka fyrir ....... hún þurfti jú ekki að gera neitt!!!

Létt á fæti valhoppa ég nú samt útaf tannlæknastofunni .... einstaklega glöð yfir því að það sé heilt ár í næstu heimsókn ...... já alveg HEILT ÁR!!!!!

Mér líður alveg eins þegar ég fer með bílinn minn í skoðun!!!

Kannski undarleg samlíking...... en samt staðreynd.

Enda er ferlið jú svipað.

Heimsókn einusinni á ári.
Kostar formúu .... að vísu ertu látinn borga fyrirfram.
Velgja í magann þegar gengið er inn í anddyrið.
Allt til fyrirmyndar samkvæmt nútíma tækni og þekkingu.
Það er skoðað, reyndar ekki pússað, en það er potað og kroppað og jú reyndar skakað líka.
Kvíðahnútur í maganum þegar kallað er á mann inn með bílinn.
Bið á biðstofu með gömlum þreyttum tímaritum með gömlum þreyttum sögum.
Bið upp á von og óvon um hvort bíllinn sleppi í gegn án athugasemda.
Endalaus gleðin þegar bíllinn er kominn með nýjan skoðunarmiða og skoðunarmaðurinn segir:"engin athugasemd".

Þetta er dáldið líkt ........ það eina stóra sem skilur þessar tvær heimsóknir að er það að ekkert "litaþema" er á skoðunarstöðinni, til að róa taugarnar. Það er hlustað á Bylgjuna eða aðra poppstöð svo tónlistin dunar á meðan beðið er og það er boðið uppá kaffi í skoðuninni en einungis vatn til skolunar hjá tannlæknunni...... og jú svo fær maður deyfingu hjá tannsínu ....... en ekki í skoðuninni!!!

En eitt eiga þessar heimsóknir sameiginlegt ..... þær eru óhjákvæmlega eitt af því sem ég VERÐ að gera á hverju ári!!!!

.......... og í ár er ég búin með báðar!!!!! Júhúúúúúú!!!!!!

Frú Megabeib
Anna aðalpæja skrifar ...
 
Hugsaðu þér hvað þú getur nú slappað af í HEILT ÁR :) Þetta krefst nú eiginlega hátíðarhalda, það finnst mér......þyrftum að skella okkur í sumarbústaðinn og fagna :D

En eru þær ekki með bleika hanska ?? Ég sá á YouTube myndband með bleikum hönskum að dansa !!! Bentu þeim á þetta........... eða nei, þú verður búin að gleyma því, það er svo langt þar til þú ferð næst :D

kveðjur til þín Frú Megabeib
A5
01. júlí 2010 klukkan 09:36
Frú Megabeib skrifar ...
Frú Megabeibnú man ég ekki hvernig hanskarnir eru á litinn ...... en gott ef þeir eru ekki bleikir líka!!! Þetta eru nú smekkmanneskjur!!!!

Ég er ALLTAF geim í sumarbústaðinn!!!! Just let me know!!!
07. júlí 2010 klukkan 21:18

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar