Góðar stundir
06. júlí 2010 klukkan 11:43
Hugsa í bloggfærslum og FB stadusum núna. - er það eðlilegt?
Dagur tvö punktur.
Búin að fara í ræktina. Ásamt mér voru hinir frægu Íslendingarnir eins og Einar Bárðar, Ívar Hauks og æi hvað heitir hún nú aftur ... eitthvað Lind ..... Helga Lind?? ... eða Inga Lind??? æi man það ekki ..... en þetta var bara huggulegt hjá okkur ..... það hafa eflaust verið fleiri frægir sem ég þekki ekki enda er þetta sko stöð fræga og flotta fólksins!!! Þessvegna æfi ég þarna og hvergi annarsstaðar!!!! Maður fellur svo vel í fjöldann!!!
Búin að setja í eina þvottavél og á leiðinni að setja í aðra ...... svo verða framin skil á klósettpappír til þeirra sem voru svo elskulegir að versla slíkan varning af einkasyninum.
Þar á eftir verður farið í verslunarleiðangur til að kaupa lopa í ekta íslenska lopapeysu handa einkasyninum, svo hann geti verið dáldið töff þegar það kemur haust og hann þarf að fara að klæðast yfirhöfnum af einhverju viti ....... og svo líka svona svo ég hafi eitthvað að gera fyrir framan sjónvarpið ...... er ekki alveg að höndla það að sitja bara og gera ekki neitt .... finnst tíma mínum varið til einskins ...... ég meina það eru nú einusinni takmörk fyrir því hversu oft er hægt að naglalakka sig, eða hvað???
Eftir þetta verður einkadóttirin sótt á námskeiðið og þegar heim er komið verður hafist handa við eitthvað ofur skemmtilegt ....... því við erum jú í fríi ... ehehehehe ....... þá á ALLTAF að gera bara eitthvað svakalega skemmtilegt!!!!
Þangað til næst;
Góðar stundir.

Frú Megabeib

Ég VISSI það að það kæmi að því að þú yrðir að hafa eitthvað að gera í höndunum og yrðir leið á að "gera ekki neitt" !!! Hí hí hí, nei nú verð ég að koma til þín.....fljótlega
knúsin mín
A5