Á bensínstöðinni
07. júlí 2010 klukkan 20:43
Einkennilegt hvað sumu fólki virðist liggja meira á í lífinu en öðru fólki.
Einkennilegt hvað sumt fólk getur verið með mikinn yfirgang og frekju.
Einkennilegt hvað sumt fólk er upptekið af sér og sínu lífi og tekur ekki tillit til annarra í kringum sig.
Lenti í alveg einkennilegu áðan.
Ég brá mér á bensínstöð, vissulega af því að bíllinn minn var jú farinn að krefjast meira eldsneytis til þess að geta haldið áfram að bera mig á milli staða.
Ég dældi gullvökvanum á fákinn og snaraðist svo léttfætt inn til að greiða fyrir áfyllinguna.
Ég skiptist á nokkrum orðum við afgreiðslumanninn þegar röðin kom að mér og að því loknu snaraðist ég út í bílinn minn, sem var tilbúinn til aksturs.
Fyrir aftan mig hafði lagt eitt stk. hvítur, upphækkaður jeppi með þakbox og fínerý. Reglulega flottur jeppi. Ég hugsaði með mér:"flottur jeppi, ekta bíll til að fara í hálendisferðir á. Ætli þetta séu útlendingar? Örugglega Frakkar". Ég leit ekki á númeraplötuna en brosti til franska bílstjórans með viðurkenningu í augunum yfir flotta jeppanum hans og ekki laust við smá öfund yfir því að hann væri á ferðalagi og það um hálendi Íslands.
Ég vippaði mér inn í bíl og í því sem ég er að setja á mig öryggisbeltið er flautað!!!
Jú jú það var Frakkinn fyrir aftan mig. Að sjálfsögðu þurfti hann að tala við mig. Gleymdi ég einhverju? Missti ég eitthvað?
Ég hætti við öryggisbeltaásetninguna og opnaði hurðina snéri mér aftur og horfði á Frakkann með spurningarsvip.
"Drullaðu þér í burtu þarna! Við erum búnir að bíða hérna í 10 mínútur!"
Þetta var sagt á mínu ástkæra ylhýra móðurmáli, eða réttara sagt öskrað á mig! Reyndar ekki fallegi Frakkinn sem sat við stýrið, heldur farþeginn hans sem var búinn að rífa upp hurðina hjá sér og stóð og steitti hnefann framan í mig.
Mér brá verulega, á þessu átti ég alls ekki von á!
Ég svaraði honum:"Róaðu þig maður!"
Svarið sem ég fékk öskrað á mig var eitthvað á þessa leið:"Róa mig, ég er bara ekkert æstur. Já koma sér í burtu þarna. Við höfum ekki allan daginn!"
Ég svaraði:"Góði farðu þá bara á aðra dælu!"
Ég ákvað að láta staðar numið þar sem ég var ekki ein á ferðinni, með börnin í bílnum og þorði hreinlega ekki að taka sénsinn á því að ef ég gerði ekki eins og maðurinn krafðist og það sem fyrst, myndi hann örugglega bara berja mig. Eða það var í það minnsta mín tilfinning.
Ég keyrði útaf bensínstöðinni alveg miður mín. Skammaðist mín fyrir samlanda minn sem hagaði sér svona fyrir framan Frakkann.
Skammaðist mín fyrir að einhver gæti komið svona fram við aðra, ég hélt í alvörunni að þetta væri bara í bíómyndunum sem svonalagað gerðist.
Eftir á að hyggja þá held ég alveg örugglega að Frakkinn hafi hreinlega ekki verið Frakki, heldur bara líka óþolinmóður íslenskur karlmaður eins og ferðafélagi hans. Kannski með aðeins minna af testesteróni á ferð og flugi um líkamann!
........ eða var hann kannski á einhverju öðru ..... miðað við tryllingslegt augnaráðið, munnsöfnuðinn og froðufellingarnar ...... þá kemur það vel til greina!!!

Frú Megabeib

Get sko vel skilið að þér hafi brugðið illa við svona framkomu, en ég lenti í svipuðu í Bleika Svíninu um daginn..... en þar var það "virðulegur" heimilisfaðir sem hagaði sér svona fyrir framan konu sína og börn !!!
Svo er ég alveg til í að rífast ofan í afturenda við svona dóna, en því miður er svo margir klikkaðir aðilar úti í þjóðfélaginu að maður gæti allt eins lent í því að vera barinn til ólífs við að mótmæla svona framkomu.
En ef að þig vantar áfallahjálp, þá er ég til þjónustu reiðubúin ;D as always
k.kv.
A5
Var að hugsa um að vera ekkert að æsa mig, jafnvel fara útúr bílnum og ræða við manninn ...... en tryllingurinn í honum stoppaði mig ..... og það að hann var á MIKLU stærri bíl en ég ...... hann hefði einfaldlega getað keyrt yfir mig!!!!