Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

HOT YOGA!!!

26. ágúst 2010 klukkan 21:13
Fór í Yoga tíma áðan ...... HOT Yoga....... ellllllska HOT YOGA!!

Hef aldrei áður farið í yoga tíma, en hef prófað Pilates og mér finnst þetta nokkuð svipað ..... ég verð kannski klár í þessu einhvern daginn ...... en verð að segja að ég mætti alveg vera töluvert liðugari og ég tala nú ekki um mun minni um mig...... þessi fita sem alsstaðar er á líkamanum á mér er endalaust að þvælast fyrir mér!!!! ...... svo nú bíð ég spennt eftir að hún fari ..... markmiðið er semsagt ennþá sem fyrr høj og slank!!!

Það sem einkennir hot yoga tímana ....... svona fyrir þá sem ekki hafa prófað þá ....... er að hitinn í salnum er skrúfaður uppúr öllu valdi ..... já ég held að það sé alveg 37°C inni salnum þegar æfingarnar fara fram.

Þetta endar að sjálfsögðu í að maður svitnar ógurlega ..... allsstaðar!!!! ........ og ég elllllllska það!!!!

Ég svitna alltaf svo mikið bara við að gera ekki neitt ........ og mér finnst það frekar ógeðfellt ....... en þarna má ég svitna eins og ég vil og það er bara HOT!!!! 

Það rennur svoleiðis á mér svitinn að það er engu líkara en ég hafi farið í sturtu í ÖLLUM fötunum þegar ég hef lokið tímanum ..... en það er líka allt í lagi ...... því það er HOT!!!!

Í dag þegar ég brunaði heim úr tímanum ........ já nei ég fór ekki í sturtu þarna niðurfrá, finnst ég alveg eins geta gert það hérna heima ......... eða ég var á leiðinni að bruna heim úr tímanum, löðursveitt og rjóð í kinnum hitti ég eina kunningjakonu mína sem ég hef ekki hitt lengi......... tókum við spjall saman þar sem ég sat á fáknum mínum tilbúin í brunið heim.

Hún spurði um daginn og veginn, t.d. hvernig sameiginlegir vinir hefðu það, hvað væri að frétta af frænku minni og hvernig börnin hefðu það ég svaraði spurningum hennar af bestu getu og að sjálfsögðu dásamaði ég börnin mín vinstri og hægri ...... því þau gerast ekki öllu flottari en þau!!!!

Svo spurði hún: "ertu komin með nýjan kall" ...... og ég svaraði að sjálfsögðu "nei" ....... "aha" sagði hún þá "það er þessvegna sem þú lítur svona vel út"!!!! ...... mig langar að árétta það að ég var rennsveitt og eldrauð eins og tómatur í framan þegar konan lét þetta útúr sér!!!!

Mér fannst það ÆÐI!!!!

Að hennar mati er það nefnilega betra að vera án kalls ....... því þeir geta oft verið til svo mikilla vandræða!!!!

Well ...... ég er allavega í skýjunum eftir þetta hól frá konunni og kvaddi hana með virktum og sagðist vonast til að hitta hana sem oftast ...... því ekki er leiðinlegt að fá svona gullhamra .... sérstaklega þegar maður lítur út eins og ég gerði á þessari stundu!!!!

Svo núna ætla ég í hot yoga eins oft og ég get .......

........ því það er svo HOT!!!!
 
Frú Megabeib
Anna aðalpæja skrifar ...
 
þú ert svo GORDJÖSSLÍ HOT, alltaf elllskan :)
27. ágúst 2010 klukkan 11:22
Auður Lísa skrifar ...
 
Hot yoga það er kannski málið :) finnst nú ekkert spennandi tilhugsun að svitan eins og /&#"#
30. ágúst 2010 klukkan 07:54
Frú Megabeib skrifar ...
Frú Megabeibtakk Annan mín ....... mikið ofboðslega væri ég til í að finnast ég vera eins æði og þér finnst ég vera!!!! ........ en takk fyrir að hafa endalaust þessa ofurtrú á mér!!!!

Auður Lísa ..... hot yoga er algerlega málið ........ þetta er snillllllllld ...... það er einmitt þessvegna sem mér finnst þetta svona gott ...... þar sem ég svitna bara við að tannbursta mig ........ og það er "leyfilegt" að svitna eins og /&#"# í hot yoga ....... það hentar mér ljómandi vel!!!!
14. september 2010 klukkan 18:02

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar