Hvað á að að gera við dauðs manns föt!!!
Hvað á að gera við dauðs manns föt???
Það er erfitt að svara þessari spurningu og ég hef velt henni fyrir mér undanfarin svona sirka tvö til tvö og hálft ár!
Ég á dáldið erfitt með að henda þeim ..... eða jafnvel gefa þau í Rauða Krossinn ....... þetta er flókið og vekur upp tilfinnaöldur sem ég vil alveg án vera ....... þeink jú verrí möts!!!
Þetta eru allt heilar og góðar flíkur og er alveg hellings peningur sem liggur í þessum skyrtum, peysum, bolum, skóm, buxum og íþróttafötum ........ en hvað á ég að gera??? Auglýsa: Föt til sölu ...... af dauðum manni!!!! ....... held einhvernveginn að það væru ekki margir sem myndu hanga hérna á húninum hjá mér til að næla sér í skó af dauðum manni ..... hver vill eiginlega feta í fótspor hans????
Ég gæti líka boðið útvöldum að koma og kíkja á góssið ....... fjölskyldu og vinum ....... en er ekki viss um að það væri gott fyrir neinn aðila í því sambandi ....... veit það samt ekki ...... þetta eru alveg heilar flíkur og það er nú einusinni kreppa!!!! ....... en efast samt einhvernveginn smá um að það sé snilldar hugmynd!!!
Þetta er eitthvað sem ég er búin að ýta á undan mér í lengri tíma ....... og hefði örugglega ýtt á undan mér í ennþá ef ekki hefði komið til þessi rótering á herbergjaskipan heimilismeðlimanna hérna núna!
........ sem leiðir til þess að ég verð að taka ákvörðun um það ekki seinna en NÚNA hvað ég ætla að gera við fötin sem maðurinn sem dó átti!!!!
Ræddi þetta við vinkonuna, hún gat ekki gefið mér nein ráð þar sem hún gat ekki sett sig í mín spor.
Ræddi þetta við einkasoninn ...... ræddi þetta fram og til baka og hann endaði á því að segja:
...... þetta eru auðvitað dauðs manns föt, en þetta eru föt okkar dauða manns........ auðvitað eru tilfinningar tengdar þeim ...... en ..... ekkert hægt að velta sér uppúr því!!!
Svo núna ætla ég að ræða þetta við þennan gamla á efri hæðinni ...... og já þá er ég ekki að meina pabba þegar hann er að vinna uppi á þaki ...... heldur hinn gamla manninn ........ og tékka á því hvort hann eigi ekki einmitt réttu lausnina fyrir mig........
....... hann þarf bara að muna að gefa mér skýr svör þessi ellllllllllska!!!!
Over and out ....... ég!!!

Ég skil vel að þetta er ekki auðvelt en gangi þér vel.
Hmmm.... mit forhold til tøj fra mine kære som ikke er længere, har ført en omskiftelig tilværelse. Jeg har noget hængende, resten blev vi i familien enige om at give til den nærliggende genbrugsforretning. Så var der måske nogen, som kunne få glæde af tøjet.
Nu har jeg ikke længere et ønske om at gemme på tøj, fra dem der ikke er mere. Minderne er i live i mine tanker og følelser. Derfor ville jeg nok finde et sted, hvor hjemløse kan søge hjælp, hvis jeg atter stod og skulle tage sådan en beslutning.
Men som din veninde siger, så har også jeg meget svært ved at sætte mig ind i netop din situation, og kan ikke give dig et råd, bare gætte på, hvad jeg måske selv ville gøre.
Håber du finder en løsning, der fungerer for jer alle 3.