Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Prófíll

  • Nafn: Frú Megabeib
  • Staður: On the Kleik

Ég

Að efast um eigið ágæti!!!!

12. apríl 2011 klukkan 21:35
Er búin að vera dáldið að ferðast um á netinu undanfarið og lesa hinar ýmsu "bloggfærslur" hjá hinum ýmsu konum.

Margt er áhugavert, annað misgáfulegt, sumt er hrein þvæla að mínu mati, annað er til eftirbreytni og enn annað er bara skemmtilegt aflestrar!

Það sem mér finnst vera sammerkt með þessum bloggkvendum er að þær eru allar taldar ofurbloggarar á sínu sviði.

Þær hafa allar miklar skoðanir og tala tæputungulaust um málefni sem liggja þeim á hjarta.

Þetta finnst mér vera hið allra besta mál ....... að mörgu leiti ...... en hefur fengið mig til að spyrja sjálfa mig spurninga um hvernig ég myndi haga mér í tilteknum aðstæðum, hvernig sumir geta verið algerlega veruleikafirrtir og svo hefur þessi lestur meira að segja fengið mig til að efast um eigið ágæti!!!!

Jú það er rétt ..... eigið ágæti!!!

Ég tel nú, þó ég segi sjálf frá, ég ekkert vera neitt sérstaklega ómyndarleg kona. Ég er jú frekar í hávaxnari kantinum og kannski ekki alveg á réttum stað í þessum fræga BMI stuðli. Svo væri kannski hægt að segja að ég væri frekar ákveðin, jafnvel frekja, en það hefur bara hver sína skoðun á því!!! Ég er fremur jákvæð að eðlisfari, finnst óhemju gaman að hlæja og hafa gaman að lífinu. Eitt af skemmtilegri áhugamálum mínum er daður og daðra ég jafnt við karla, konur, börn og dýr, (og bara svo það sé á hreinu að daður þarf alls ekki að vera neitt kynferðislegt!!) ...... og tel ég mig nokkuð góða í daðrinu ..... enda skapar æfingin meistarann og hef ég æft mig í mööööööörg ár!!!! Ég kem nokkuð vel fyrir mig orði, hvort sem er í töluðu orði eða rituðu.

Ég er nokkuð sjálfsörugg, svona fyrir þá sem þekkja mig ekkert alltof vel og er bara nokkuð sátt við hana mig, nákvæmlega eins og ég er!!!!

Hvað í veröldinni getur þá verið sem fær mig til að efast um eigið ágæti???

Jú það eru bloggskrif kvenna um hvernig eigi að haga sér á stefnumóti!!!

Ég verð bara að viðurkenna það að ég hef aldrei á ævinni farið á stefnumót!!!! ....... en mér finnst það vera óhemju spennandi hulinn heimur þar sem hlutirnir gerast!!!! ........ samkvæmt nýjustu fréttum úr bloggheimum!!!!

Kannski er ég að misskilja allt þetta stefnumótadæmi!!! Er það stefnumót þegar maður fer og hittir kunningja sinn á kaffihúsi í klukkutíma yfir kaffibolla??? (ekki það að ég drekki kaffi, en kunninginn gerir það!!! ..... ég drekk bara eitthvað annað í staðinn!!!) .... well þá verð ég að viðurkenna að ég held að ég hafi farið á eitt stefnumót um ævina!!!!

Þá er komið að eigin ágæti aftur!!!

Fyrst það virðast ALLAR bloggkonur landsins vera endalaust á stefnumótum, og tala um það eins og ekkert sé sjálfsagðara en fara á stefnumót í tíma og ótíma, og að hreinlega ALLIR eru ALLTAF á stefnumótum (ég meina það þarf að gefa út leiðbeiningar og viðmiðunarreglur um hvað má og hvað má ekki á stefnumóturm) .......... hlýtur að vera eitthvað að mér, fyrst ég hef aldrei farið á stefnumót!!!!

Ég er aðeins búin að vera að kynna mér þetta:

Er ég ekki á Facebook? (þar gerast hlutirnir víst) - jú jú er þar..... en finnst bara vera endalaust einhverjir lúðar þar sem reyna að tala við mann, og jú ég gef þeim sko alveg séns....... belive me!!!!

Fer ég ekki út? (ekki bankar neinn uppá hjá manni svo út þarf maður nú að fara) - jú jú geri það ....... en er eiginlega alveg búin að fá nóg af misdrukknum, oftast ofdrukknum karlmönnum á veitingarhúsum borgarinnar!!!!

Er ég búin að skrá mig á einkamál.is (eða aðrar sambærilegar síður) - jú jú hef prófað það ........ en án þess að vera sérlega fordómafull eða með sleggjudóma eða alhæfingar, þá er fullmikið af perrum þar fyrir minn smekk!!!

En þrátt fyrir þessar aumu tilraunir mínar til þess að leggja út net, þá er mér aldrei boðið á stefnumót!!!!

Er það þá nokkuð skrítið að maður efist um eigið ágæti???

Þar sem ekkert kommentakerfi er hjá þessum fínu bloggskrifarastúlkum ....... get ég ekki sett inn fyrirspurnina:

"Hvernig í "#$&/%#"#$%#$%%&%#"#%&&/ ....... kemst maður á stefnumót????"

........... þó það sé ekki til annars en prófa öll þessi fínu ráð sem þessar skvísur eru endalaust að gefa!!!!
Frú Megabeib
Dagný Sævarsd skrifar ...
 
ég fer oft a stefnumót... eiginlega mjög oft. Oftast med Rikke eda Gitte, eda ágústu (Dísu áður en hún flutti) og við smsumst bara: "café?" og svo deitum við ;)

en hef aldrei farið með hinu kyninu á svona alvöru stefnumót... get því ekki hjálpað þér. En veit að einn sem þú þekkir, spyr bara konur í biðröðum eða einvhersstaðar hvort þær vilji drekka með honum kaffi? (þeas ef honum finnst þær sætar...) og hann hefur fengið "já"... og svo fóru þau á café. það er genialt! :)
13. apríl 2011 klukkan 14:20
Anna aðalpæja skrifar ...
 
Mér finnst það náttúrulega alveg fáránlegt að þú farir að að efast um eigið ágæti.... en ég ræði það við þig seinna !!! En ég er líka mjög glöð og sammála því sem að þú segir um þig sjálfa mín kæra, þú hefur þetta allt og miklu miklu meira til ;D

Ég hef einu sinni farið á stefnumót, og það var í hádeginu niðrií bæ. Það var viðskiptavinur sem að gekk lengi á eftir mér að hitta sig í kaffibolla, og til að losna við hann féllst ég á það ......... nema hvað að þegar ég sest við borðið hjá honum þá hallar hann sér nær mér og horfir á mig með seyðandi augnarráði... svo spyr hann: "Hver er Anna (og nefnir mig með fullu nafni) ? Segðu mér allt, og ég meina ALLT um Önnu (og aftur nefnir hann fullt nafn mitt) " !!!! Ég veit ekki hvað þér finnst en mér finnst það ekkert skrítið að ég hef bara farið á EITT date

knús, mía kara
A5
13. apríl 2011 klukkan 19:35
Alice skrifar ...
 
Ville ikke være foruden dit venskab og er taknemmelig for, at vore veje krydsede hinanden.
26. maí 2011 klukkan 13:37

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Flokkar