Djöst blogging aránd!!!
Hjá okkur gengur lífið sinn vanagang. Þó erfitt sé að samlaga breyttum aðstæðum heimilislífinu..... reynum við okkar besta og þetta er nú allt að koma..... svona með kalda vatninu!!!!
Eiginmaðurinn er alveg ofboðslega þreyttur og fara geislarnir ekkert voðalega vel í hann. Sefur hann og sefur!!! En það er víst fylgikvilli og ekkert við því að gera. Geri mitt besta til að reyna að sætta mig við það....... gengur frekar illa...... en æfingin skapar meistarann ekki satttt????
Hef ég tekið upp þann sið að taka símann af á kvöldin...... svo við fáum næði...... þegar maðurinn er vakandi....... og svo líka börnin okkar fái smá athygli...... svona áður en þau fara að sofa....... og svo ég fái ró og frið...... þurfi t.d. ekki að vera að svara símasölufólki!!!!
Er þetta svakalega stórt, erfitt og mikilvægt skref fyrir mig....... taka símann af!!!!! En þetta gefur ofboðslega mikið.
Eins með að þiggja þá hjálp sem endalaust er verið að bjóða mér........ en ég er að verða klárai í því...... þáði t.d. kökurnar frá svilkonunum í afmæli sonarins og fékk eyrun lánuð hjá hjúkkunni og svona ýmislegt sem mér er að takast!!!! Er ég nú bara frekar stolt af mér...... verð að segja það!!!!!
Annars er ég alveg óendanlega heppin........ ég hef mömmu og pabba hérna hjá mér til að hjálpa mér með ALLT. Alger forréttindi!!!! veit ekki hvernig ég færi að ef þau væru ekki hérna!!!! Hjálpa mér við að þvo, elda mat og sinna börnunum........ alveg rosalega heppin.......... já bara svona heimskulegann hlut eins og versla eða tæma uppþvottavélina!!!! Sé það alveg fyrir mér að ég myndi nú bara sleppa þessum hlutum ef þau væru ekki hér!!!!! Óendanlega þakklát fyrir að hafa þau!!!!
Takk fyrir alla orkustraumana.
Takk fyrir að vera svona dugleg að kvitta, þó ég sé ekki dugleg að blogga.
Takk fyrir að hugsa til okkar, við metum það mikils.
Jákvæðar hugsanir gera svoooooo mikið.
Knús til ykkar, allann hringinnnnnnnn......
ég
