Pakkinn............
Kv.
ég




Jæja þá er ekki annað að gera en hella sér út í að skrifa og skrifa og skrifa...... ætti eiginlega að fara að skrifa þessa bók sem er alltaf að brjótast um í hausnum á mér!!! En finnst ég aldrei hafa tíma til þess..... kemur kannski einn daginn!!! Er með svo margar hugmyndir að ég ætti kannski að ákveða mig og byrja á eins og einni bók!!! Nei ekkert svona bullllllll..... nóg annað að gerast hérna þessa dagana!!!!!!!!!! Geri það þegar ég hef tíma (jeh wright... og hvenær er það????)´
Þetta er helst í fréttum:
Vorum með afmæli fyrir einkadótturina í gær, fyrir vini og ættingja.... heppnaðist það bara vel og er prinsessan í skýjunum. Mikið var gaman að hitta alla........ og ég er frekar stolt af mér að hafa haldið uppá það núna........ en ekki bíða með það fram í nóvember eins og gerst hefur!!!!!!!
Eiginmaðurinn er að fara blóðprufu á eftir til að tékka á blóðinu hans og sjá hvort að allt sé ekki orðið klárt fyrir næstu lyfjameðferð, sem hefst þá væntanlega á morgun.
Frúin er að fara í Borgarleikhúsið og hitta búningahönnuð!!!! Jú jú passar!!!! Búningahönnuðinn vantar vantar hatta í sýningu hjá sér, og frúin er jú einusinni hattahönnuður!!!!! Og getur að sjálfsögðu reddað höttum í sýninguna!!! Í LEIKHÚSINUM!!!!!!!!! Jesssss jesssss jesssssssssssss!!!!!
Svo erum við hjónin að fara í dag og hitta orkumiðlarann ógurlega hann Damien!!! Hlakka dáldið til þess að hitta hann........ verð að segja það!!! Er búin að heyra dáldið af honum....... þetta verður spennó!!!!
Og síðast en ekki síst er það í fréttum að ég er búin að brjóta fína mixarann minn!!!! (var einmitt að passa að setja ekki klakana neðst!!!!!!) En þar sem ég var svo sniðug að kaupa ALVÖRU blandara frá Kitchen Aid, þá gat ég (eða eiginlega maðurinn minn, ég skammaðist mín of mikið!!!!) farið og fengið nýtt svona stykki alveg eins og það sem mér tókst að brjóta!!!! Þetta er víst voðalega algengt..... að maður brjóti þessi stykki.....hjúkk mikill léttir ..... það er ekki BARA ég og Guðrún sem erum svona miklir klaufar!!!!!!!!! Þannig að nú virkar hann aftur þessi elllllllllllska!!!!!!! Eitt besta heimilistæki sem ég hef eignast um ævina!!!!
Veðurfréttir:
Rok og sól!!
Vona að þessi síðuskipti valdi ekki miklu raski hjá ykkur........ set inn link hérna til hliðar ef þið skilduð eiga erindi á gamle siden......... hlakka til að sjá ykkur í kvittinu!!!
Þangað til næst;
ég