Jamm og jæja........
Jú byrjum á Damien...... hann er sko ekkert ógurlegur....... hann er bara ÆÐISLEGUR....... bara alveg MEIRIHÁTTAR að hafa farið til hans. Alveg einstök upplifun...... TAKK Sigrún Inga!!!!!
Damien er sem sagt orkumiðlari og er alveg yndislega frábær, núna þegar ég sit og hugsa til hans, verður mér heitt í hjartanu og brosið breiðist út um andlitið....... hann er ÆÐI...
Eiginmaðurinn elskulegur fór í lyfjagjöfina á þriðjudaginn og þyngdist þar um hin venjubundnu 3 kíló. Ekki er hægt að segja annað en þessi ellllllska hefur átt mun betri daga en daginn í dag!!!
Ég fór í leikhúsið í morgun og fékk giggið!!!! Er núna á fullu að búa til form og hanna og hugsa og skipuleggja!!!! Frábært!!!
Líka nóg að gera hjá okkur í InRoom. Erum komnar með 2 stór verkefni, auk ráðgjafanna sem við vorum með fyrir!!!! Geðveikt...... erum hálfnaðar við að verða miljónamæringar........ eða var það milljarðamæringar???
Fékk eitt í viðbót í dag í leikhúsinu!!! Fékk pakka...... og hann má ekki opna nema í viðurvist allra í fjölskyldunni....... ég er frekar ábyggileg og er ekki búin að opna hann ennþá........ þar sem fjölskyldufaðirinn var löglega afsakaður frá kvöldmatnum!!!! Bíð spennt eftir að opna hann....... hann er lítill og kemst fyrir í veskinu mínu. Hann er þunnur og er gullslaufa á honum!!! Ég veit ekki frá hverjum hann er!!!! Alveg satt!! Er frekar mikið að kafna úr spennigni..... en ætla að hemja mig. En er sko búin að kreista (hann er harður) hrista (heyrist ekkert) og lykta (bara pakkapappírslykt) af honum....... engar vísbendingar!!!!!! Ferlegt ástand!!!!
Er farin að sofa...... sendið góðar og jákvæðar hugsanir....... þær eru vel þegnar!!!
Þangað til næst;
ég
p.s. stækkkaði þetta fyrir þig!!!! Á þetta að vera stærra????
